Erlent
Stórsigur Hamas-fylkingarinnar Hamas-fylkingin vann stórsigur í þingkosningum Palestínumanna í gær og hlaut 76 þingsæti. Fatah-flokkur Mahmouds Abbas, forseta, fékk aðeins 43 sæti. Þetta sýna fyrstu tölur frá kjörstjórn sem birtar voru nú síðdegis. Stjórnmálaskýrendur segja þessa niðurstöðu veikja vonir um að hægt verði að hefja friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs að nýju á næstunni. Erlent 26.1.2006 17:35
Palestínumenn vilja ekki óbreytt ástand Bush Bandaríkjaforseti segir úrslit þingkosninga Palestínumanna í gær vísbendingu um að Palestínumenn séu óánægðir með ástand mála í heimastjórninni. Hann telur þó rétt að Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, verði áfram við völd. Erlent 26.1.2006 16:25
Bandaríkjamenn aðvara Hamas-liða Ekki verður haldið áfram með friðarviðræður vegna deilu Ísraela og Palestínumanna ef Hamas-samtökin, sigurvegarar í palestínsku þingkosningunum í gær, viðurkenna ekki tilverurétt Ísraelsríkis. Þetta sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hún ávarpaði Heimsviðskiptaráðstefnuna í Davos í Sviss í dag. Erlent 26.1.2006 15:33
Sprenging í Rúmeníu Að minnsta kosti einn lét lífið og 3 slösuðust þegar sprenging varð í verksmiðju í Suður-Rúmeníu í dag. 1000 íbúðir í nálægum byggingum eyðilögðust og fjölmargir bílar einnig sem lagt hafði verið í næsta nágrenni. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni. Erlent 26.1.2006 15:29
Hamasliðar kokhraustir Forsætisráðherra Palestínu hefur sagt af sér en í þingkosningunum í gær náðu hin herskáu Hamas-samtök það góðum árangri að þau hljóta að teljast sigurvegarar kosninganna. Hamas-liðar eru kokhraustir og hafa lýst yfir fullnaðarsigri í þingkosningunum. Erlent 26.1.2006 14:37
Forsætisráðherra Palestínu segir af sér Ahmed Qurie, forsætisráðherra Palestínu hefur sagt af sér og ríkisstjórnin öll. Þá hafa Hamas-samtökin lýst því yfir að þau hafi sigrað þingkosningarnar í Palestínu. Erlent 26.1.2006 09:31
Símaráðgjöf fyrir barnaníðinga Barnaníðingar geta nú leitað sér aðstoðar í Danmörku, nafnlaust. Heilbrigðisráðuneyti hefur ákveðið að koma á fót símaráðgjöf fyrir barnaníðinga á danska ríkissjúkrahúsinu. Þjónustusíminn er hugsaður fyrir barnaníðinga sem vilja leita sér aðstoðar en hann verður opinn í einn til fjóra tíma á viku. Erlent 26.1.2006 07:16
Ríkisborgarar frá A-Evrópu sækja til Danmerkur Sífellt fleiri ríkisborgarar Austur-Evrópulanda sækja um dvalar- og atvinnuleyfi í Danmörku. Á síðasta ári fengu um fimm þúsund manns frá nýju Evrópusambandslöndunum dvalar- og atvinnuleyfi en það er tvölfalt fleiri en árið áður. Erlent 26.1.2006 06:57
Æ fleiri ungar konur gera tilraunir til sjálfsvígs Æ fleiri ungar konur í Danmörku reyna að taka eigið líf. Frá árinu 1990 hefur tilraunum til sjálfsvígs meðal kvenna á aldrinum 20-29 ára aukist um 66% en aukningin hefur verið sérlega mikil á síðustu árum. Erlent 26.1.2006 06:46
Verkfalli flugmanna SAS í Danmörku er lokið Flugmenn SAS í Danmörku ákváðu í dag að snúa aftur til vinnu eftir að hafa fundað með stjórnendum félagsins. Erlent 25.1.2006 20:18
Google ritskoðað í Kína Kínverjar geta senn farið að notfæra sér Google-leitarvélina á Netinu, en böggull fylgir skammrifi. Leitarvélin verður stillt þannig að tiltekin leitarorð sem tengjast pólitísku andófi skila engum niðurstöðum. Erlent 25.1.2006 20:14
Íranar fagna tilboði Rússa Íranar fagna tilboði stjórnvalda í Moskvu um að Rússar auðgi úran fyrir þá en segja nauðsynlegt að útfæra tilboðið betur. Stjórnvöld í Teheran hóta því að hefja auðgun úrans af fullum krafti ef kjarnorkudeilu þeirra við Vesturveldin verði vísað til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 25.1.2006 20:09
Hamas og Fatah með yfir 40% atkvæða Hamas-fylkingin hlaut 42% atkvæða í þingkosningum Palestínumanna í dag en Fatah-flokkur Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, fékk 45% ef marka má fyrstu útgöguspá vegna kosninganna. Þetta er nokkuð á skjön við niðurstöður kannana í aðdraganda kosninganna þegar Hamas var spáð um 30% atkvæða og Fatah um 40% Erlent 25.1.2006 20:01
Ísraelar hindruðu kosningar í Austur-Jerúsalem Mikil spenna ríkti á herteknu svæðunum í Palestínu enda hafa þingkosningar ekki farið þar fram í áratug. Í Austur-Jerúsalem fékk aðeins brot kjósenda að neyta atkvæðisréttar. Erlent 25.1.2006 19:20
Spár benda til að Fatah fái flest atkvæði Fyrstu útgönguspár benda til að Fatah-hreyfing Mahmouds Abbas hafi fengið um 46 prósent atkvæða í palestínsku þingkosningunum sem fram fóru í dag. Að því er Reuters-fréttastofan hermir fengu hin herskáu Hamas-samtök rétt rúmlega þrjátíu prósent. Erlent 25.1.2006 19:09
Leitarsveit SOS-barnaþorpanna hefur uppi á börnum í Pakistan Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, látlausar rigningar og snjókomu, umhverfis skjálftasvæðið í Pakistan hefur leitar- og hjálparsveit SOS-barnaþorpanna haldið áfram uppteknum hætti við að finna og skrá börn sem eru ein á báti eftir jarðskjálftana. Nú eru 129 slík börn í umsjá SOS-barnaþorpanna og hefur þeim verið komið fyrir í barnaþorpum eða í neyðarskýlum SOS til bráðabirgða. Erlent 25.1.2006 15:39
Góð kjörsókn í Palestínu Kjörsókn í Palestínu hefur verið góð það sem af er degi en þar kjósa landsmenn nýtt þing, í fyrsta sinn í tíu ár. Útlit er fyrir að Hamas-hreyfingin fái nánast jafnmikið fylgi og Fatah-flokkur Mahmouds Abbas, forseta heimastjórnarinnar. Erlent 25.1.2006 11:27
Walt Disney kaupir Pixar Walt Disney hefur gert samning um kaup á teiknimyndafyrirtækinu Pixar á 7, 4 milljarða dollara eða sem samsvarar 455 milljörðum íslenskra króna og er áhætlað að öll hlutabréf Pixar verði komin í eigu Disney um mitt þetta ár. Ed Catmull verður forstjóri hins nýja sameinaða fyrirtækis Disney og Pixar. Steve Jobs einn af stofnendum Apple verður framkvæmdastjóri og formaður. Erlent 25.1.2006 08:51
Fylgi Fata og Hamas flokkanna hnífjafnt Kannanir benda til að fylgi Fata, flokks Abbasar forseta Palestínu, og Hamas, sem Ísraelsmenn telja hryðjuverkasamtök, sé hníf jafnt, en ellefu flokkar eru í framboði í þingkosningunum í Palestínu í dag.Sumir óttast að þar með verði friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs enn óljósari en aðrir benda á kosti þess að Hamas berjist fyrir markmiðum sínum á stjórnmálasviðinu í stað þess að grípa til hermdarverka. Erlent 25.1.2006 08:55
Chris Penn fannst látinn Leikarinn Chris Penn fannst látinn við fjölbýlishús í Santa Monica í Kaliforníu síðdegis í gær. Chris Penn er bróðir hins þekkta leikara Sean Penn. Ekki er enn vitað hvernig hann lést. Í dag átti að frumsýna síðustu mynd Chris sem hann lék í ,The Darwin Awards á Sundance kvikmyndahátíðinni. Erlent 25.1.2006 09:01
Fjöldi manns mótmælti áætlun ráðamanna á Hahítí Um fjögur hundruð mótmælendur gengu um götur fátækrahverfisins Cæt Solei á Haítí í gær til að mótmæla þeirri áætlun ráðamanna að flytja kjörstaði í forsetakosningunum sem fram undan eru í landinu út fyrir hverfið. Skotbardagar eru nánast daglegt brauð í hverfinu, og þá oftast á milli glæpaklíka og friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna, auk þess sem mannrán eru afar tíð. Erlent 25.1.2006 08:49
Mannleg mistök orsökuðu hrun byggingarinnar Stjórnvöld í Kenýa greindu frá því í gær að eigandi nýbyggingarinnar, sem hrundi til grunna í Nairóbí, höfuðborg Kenýa, á mánudag, hafi legið svo mikið á að koma húsinu upp að hann hafi skipað verkamönnunum að byrja á nýrri hæð, áður en steypan hafi þornað á hæðunum fyrir neðan. Erlent 25.1.2006 08:44
Ísraelar verða að gefa eftir hluta af Vesturbakkanum Ísraelar verða að gefa eftir hluta af Vesturbakkanum til að tryggja meirihlutasamfélag gyðinga á svæðinu. Þetta sagði sitjandi forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, í fyrstu opinberu ræðu sinni eftir að hann tók við embætti á hinni árlegu Herzliya-ráðstefnu í Ísrael í gær. Erlent 25.1.2006 08:15
Búið að aflýsa 315 ferðum á vegum SAS Danski armur SAS flugfélagsins hefur aflýst öllu flugi, eða 315 ferðum samtals í dag vegna launadeilu flugmanna og félagsins, en flug félagsins var að mestu lamað í gær af sömu orsökum. Tugir þúsunda farþega, þeirra á meðal margir Íslendingar, hafa lent í umtalsverðum erfiðleikum vegna verkfallsins og ekki er séð fyrir endan á því. Erlent 25.1.2006 08:09
Leikarinn Chris Penn látinn Leikarinn Chris Penn fannst látinn við fjölbýlishús í Santa Monica í Kaliforníu síðdegis í gær. Chris Penn er bróðir hins þekkta leikara Sean Penn. Ekki er enn vitað hvernig hann lést. Í dag átti að frumsýna síðustu mynd Chris sem hann lék í The Darwin Awards á Sundance kvikmyndahátíðinni. Lífið 25.1.2006 07:55
Bærinn ætlar ekki að greiða niður vændiskaup Fatlaður karlmaður í Árósum í Danmörku lagði nýverið fram kvörtun til félagsmálayfirvalda þar í bæ vegna þess að honum þótti sjálfsagt að bærinn myndi greiða niður kostnað hans fyrir vændisþjónustu. Maðurinn fór fram á fjárhagslega aðstoð á þeim forsendum að kaup á vændi væru einfaldlega of dýr fyrir mann í hans stöðu og því ætti bærinn að koma til móts við þau útgjöld hans. Erlent 25.1.2006 06:34
Háttsettir írakskir lögreglumenn grunaðir um aðild að hryðjuverkum Breskir og írakskir hermenn handtóku í dag fjórtán háttsetta lögreglumenn í borginni Basra. Þeir eru taldir eiga þátt í mikilli fjölgun hryðjuverka í borginni undanfarnar vikur. Erlent 24.1.2006 20:51
Fangar líklega fluttir til pyntinga með vitund stjórnvalda í Evrópu Rannsóknarnefnd Evrópuráðsins telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að Bandaríkjamenn hafi flutt fanga á milli landa til þess að láta pynta þá. Nefndin telur mjög líklegt að ríkisstjórnir í Evrópuríkjum hafi vitað af þessu. Erlent 24.1.2006 20:23
Alitalia aflýsir um 250 flugferðum Útlit er fyrir að ítalska flugfélagið Alitalia þurfi að aflýsa á þriðja hundrað flugferðum í dag vegna skyndiverkfalla starfsmanna. Aflýsa þurfti 250 flugferðum í gær. Síðan á fimmtudag hafa starfsmenn mótmælt fyrirhuguðum skipulagsbreytingum hjá félaginu. Erlent 24.1.2006 16:26
Eiginkona og börn Pinochets sökuð um skattsvik Eiginkona Augostos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra Chile, Lucia Hiriart, og fjögur börn þeirra voru handtekin í gær, sökuð um skattsvik. Er fjölskyldan öll sökuð um að telja ekki fram miljónir dollara. Erlent 24.1.2006 09:16