Íþróttir

Fréttamynd

Þjálfari seldi miða á svörtu

Mike Tice, þjálfari Minnesota Vikings í ameríska fótboltanum, hefur viðurkennt að hafa selt miða á Ofurskálina á svörtum markaði sem er að sjálfsögðu harðbannað samkvæmt reglugerð NFL-deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Götschl vann síðasta brunmótið

Austurríska skíðakona Renate Götschl sigraði á síðasta brunmóti vetrarins í heimsbikarkeppninni í morgun, en keppt var í Lenzerheide í Sviss. Ingrid Jacquemod frá Frakklandi varð önnur og þýska stúlkan Hilde Gerg þriðja. Janica Kostelic frá Króatíu varð fjórða og minnkaði forystu Önju Person frá Svíþjóð í keppni um alpagreinabikarinn í 45 stig. Person varð sjöunda í bruninu í morgun.

Sport
Fréttamynd

Árangurinn kom Schumacher á óvart

Michael Schumacher, ökuþór hjá Ferrari í Formúlu 1 kappakstrinum, sagði að lið sitt ætti að fá byr undir báða vængi eftir árangurinn í Melbourne-kappakstrinum.

Sport
Fréttamynd

Titillinn í augsýn hjá Miller

Bandaríski skíðakappinn Bode Miller færðist í dag skrefi nær því að verða heimsmeistari. Miller leiðir samanlagða stigakeppni, þar sem tekin eru saman stig fyrir árangur á heimsbikarmótum í bruni og stórsvigi, með 108 stigum en kappinn nældi sér í 80 stig í dag með því að verða annar í brunkeppni í Lenzerheide í Sviss.

Sport
Fréttamynd

Fulke leiðir í Quatar

Sænski kylfingurinn Pierre Fulke leiðir eftir fyrsta hring á Quatar Masters. Fulke lék á 66 höggum, sex undir pari, og hefur því eins högga forskot á Ástralann Richard Green, Svíann Henrik Stenson og Garry Houston frá Wales.

Sport
Fréttamynd

Cancellara í forystu

Fabian Cancellara frá Sviss er í forystu eftir fjórar áfanga í París-Nice hjólreiðarkeppninni, sem jafnan er álitinn æfingakeppni fyrir Tour de France sem fram fer í júlí. Cancellara vann fjórðu leiðina, sem spannaði 108 km frá Saint-Peray til Montelimar í Suður-Frakklandi, á tímanum 2:11.03 klukkustundum.

Sport
Fréttamynd

Mike Tyson í kickbox?

Mike Tyson, fyrrum heimsmeistari í hnefaleikum í þungavigt, stefnir á endurkomu þann 25. júní í Washington i Bandaríkjunum.

Sport
Fréttamynd

Skíðamóti frestað

Úrslitamótinu í Heimsbikarnum á skíðum hefur verið frestað þangað til á morgun og föstudag sökum mikillar ofankomu á keppnisstaðnum í Sviss.

Sport
Fréttamynd

Coulthard bjartsýnn

Skotinn David Couthard segir að góður árangur hans með Red Bull í fyrstu keppni ársins í Formúlunni hafi ekki verið heppni og telur að lið sitt geti gert skráveifu í keppnum ársins.

Sport
Fréttamynd

Schumacher hógvær

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher hefur varað menn við of mikilli bjartsýni á gengi Ferrari liðsins eftir fyrstu keppni ársins.

Sport
Fréttamynd

Gauti annar í Svíþjóð

Gauti Ásbjörnsson úr UMSS hafnaði í öðru sæti í sjöþraut á opna sænska meistaramótinu í fjölþraut sem haldið var í Karlskrona um liðna helgi. 

Sport
Fréttamynd

Klitschko og Rahman í hringinn

Bardaginn um WBC heimsmeistaratitilinn í þungavigt milli Vitali Klitschko og Hasim Rahman hefur verið bjargað á síðustu stundu.

Sport
Fréttamynd

Samstarf Breiðabliks og Augnabliks

Knattspyrnudeild Breiðabliks og knattspyrnufélagið Augnablik hafa skrifað undir samning um samstarf félaganna á knattspyrnusviðinu. Helstu atriði samningsins eru að Breiðablik mun lána Augnablik leikmenn sem af ýmsum ástæðum ekki komast að hjá Blikaliðinu.

Sport
Fréttamynd

Carew dæmdur í 3 leikja bann

Norski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, John Carew, var í morgun dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að hrækja á mótherja í leik með liði sínu Besiktas. Tyrkneska knattspyrnusambandið dæmdI Besiktas í tveggja milljóna króna sekt auk þess sem engir áhorfendur verða á næsta heimaleik liðsins.

Sport
Fréttamynd

Eiður byrjar inn á

Fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, Eiður Smári Guðjohnsen, er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Barcelona í síðari leik liðanna í meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Leikurinn hefst klukkan 19.45 og hann verður sýndur beint á Sýn. Eiður Smári verður í fremstu víglínu ásamt Mateja Kezman.

Sport
Fréttamynd

Stjarnan sigraði ÍS örugglega

Stjarnan sigraði ÍS í þremur hrinum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í blaki karla í gærkvöldi. Liðin mætast aftur á fimmtudagskvöld.

Sport
Fréttamynd

Ferrari enn best að mati Renault

Lið Renault í Formúlu 1 kappakstrinum fullyrðir að Ferrari sé enn liðið sem þurfi að leggja af velli þrátt fyrir að Giancarlo Fisichella, annar ökumanna liðsins, hafi farið með sigur af hólmi í fyrstu keppni ársins sem fram fór í Melbourne í Ástralíu um helgina.

Sport
Fréttamynd

Næsta NHL-tímabil í hættu?

Samband íshokkíleikmanna í NHL-deildinni hefur fallist á að funda með sambandi liðseigenda í þeirri von um að samkomulag náist varðandi launaþak leikmanna.

Sport
Fréttamynd

Bætti fimm ára gamalt Íslandsmet

Alda Harðardóttir bætti í gær fimm ára gamalt Íslandsmet Elínar Óskarsdóttur í keilu um einn pinna þegar hún náði 708 pinnum í þremur leikjum í deildinni í gærkvöldi. Alda fékk 22 fellur af 36 mögulegum.

Sport
Fréttamynd

Tyson ætlar aftur í hringinn

Hnefaleikagoðsögnin Mike Tyson hefur lýst því yfir að hann muni snúa aftur í hringinn í sumar en óljóst er hver keppinauturinn verður, ef hann verður þá nokkur. Tyson hefur ekki barist síðan hann tapaði á frekar niðurlægjandi hátt á rothöggi gegn breska boxaranum Danny Williams síðasta sumar.

Sport
Fréttamynd

Dennis ósáttur við ökumenn sína

Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, hefur gagnrýnt ökumenn liðsins eftir dapran árangur í Ástralíukappakstrinum um helgina.

Sport
Fréttamynd

Maier í sögubækurnar

Austuríski skíðamaðurinn Hermann Maier komst á spjöld sögunnar þegar hann vann sigur í risasvigi í Noregi um helgina.

Sport
Fréttamynd

Fékk gull á Opna bandaríska

Norðurlandameistarinn í tækvondó, Björn Þorleifsson, vann gullverðlaun í - 78 kílógramma flokki á Opna bandaríska meistaramótinu í Atlanta í Bandaríkjunum um helgina. Björn vann fimm bardaga og sigraði Ítalann Pacifico Laezza í úrslitaviðureign.

Sport
Fréttamynd

Tímatökurnar voru farsi

David Coulthard hefur látið hafa eftir sér að breyttar reglur í tímatökunum í Formúlu 1 hafi gert að að verkum að tímatökurnar á laugardaginn hafi verið eins og farsi.

Sport
Fréttamynd

KR sigraði Þrótt

Fjórir leikir voru í deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu í gær. KR sigraði Þrótt, 3-1. Arnar Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir KR og Sigmundur Kristjánsson eitt. Páll Einarsson skoraði fyrir Þrótt.

Sport
Fréttamynd

Barrichello bjartsýnn á framhaldið

Rubens Barrichello, ökuþór hjá Ferrari í Formúlu 1 kappakstrinum, varar fólk við að afskrifa liðið þrátt fyrir slaka byrjun Michael Schumacher á nýhöfnu keppnistímabili á mótinu í Melbourne sem fram fór um helgina.

Sport
Fréttamynd

Barthez neitaði að spila

Franski landsliðsmarkvörðurinn í knattspyrnu, Fabian Barthez, lék ekki með liði sínu, Marseille, í frönsku 1. deildinni í gærkvöldi. Í upphitun skömmu áður en Marseille átti að spila við St. Etienne var einhverju kastað úr áhorfendastúkunni í Barthez. Það varð til þess að hann neitaði að spila.

Sport
Fréttamynd

Woods endurheimti toppsætið

Undrabarnið Tiger Woods hefur endurheimt efsta sætið á styrkleikalista alþjóða golfsambandsins, eftir að hann sigraði á meistaramóti Ford á Flórída um helgina.

Sport