Sport

Titillinn í augsýn hjá Miller

Bandaríski skíðakappinn Bode Miller færðist í dag skrefi nær því að verða heimsmeistari. Miller leiðir samanlagða stigakeppni, þar sem tekin eru saman stig fyrir árangur á heimsbikarmótum í bruni og stórsvigi, með 108 stigum en kappinn nældi sér í 80 stig í dag með því að verða annar í brunkeppni í Lenzerheide í Sviss. Helsti keppinautur Miller um heimsmeistaratitilinn, Benjamin Raich frá Austurríki, náði aðeins 11. sæti í bruninu í dag og fékk þar með 24 stig í hús. Keppnina í dag vann hins vegar Norðmaðurinn Lasse Kjus frá Noregi á 1:24.09 mínútum, 0,14 sekúndum fljótari en Miller. Þrjár heimsbikarkeppnir eru eftir á þessu leiktímabili en Miller getur tryggt sér sigurinn í stórsvigskeppninni á morgun. Vinni Miller og Raich tekst ekki að vera á meðal 15 efstu stendur sá fyrrnefndi uppi sem heimsmeistari. Austurríkismaðurinn Michael Walchofer tryggði sér hins vegar heimsmeistaratitilinn í bruni í keppninni í dag. Walchofer varð fjórði í keppninni í dag en það nægði honum til sigurs í samanlagðri brunkeppni heimsbikarmótanna. Walchofer fékk samtals 681 stig, Miller varð annar með 618 stig og Hermann Maier þriðji með 451 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×