Sport

Woods endurheimti toppsætið

Undrabarnið Tiger Woods hefur endurheimt efsta sætið á styrkleikalista alþjóða golfsambandsins, eftir að hann sigraði á meistaramóti Ford á Flórída um helgina.  Woods hafði betur gegn Phil Mickelson í lokaumferð mótsins, eftir að hafa verið tveimur höggum á eftir honum fyrir síðustu umferðina og sigraði að lokum með einu höggi. Woods lék brautina í Miami á 24 höggum undir pari og fékk að launum sportbíl og tæpa eina milljón bandaríkjadala.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×