Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Verkstæði tæknifyrirtækisins Vélfags á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasali segir að samþykki bæði lánastofnunar og utanríkisráðuneytis þurfi áður en salan getur gengið í gegn. Viðskipti innlent 24.2.2026 13:56
Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari búsettur í Úkraínu, segir sorg ekki vera nægilega gott orð til að lýsa tilfinningunum sem vakna í dag. Fjögur ár eru síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 24.2.2026 11:09
Verjast fregna af viðræðum dagsins Þríhliða viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna um endalok innrásarstríðs Rússa í Úkraínu lauk í dag án eiginlegrar niðurstöðu. Viðræðurnar stóðu yfir í tvo daga í Genf í Sviss, en fundurinn í dag stóð yfir í aðeins tvær klukkustundir. Erlent 18.2.2026 16:36
Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki. Erlent 14. febrúar 2026 22:36
Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum. Erlent 14. febrúar 2026 14:59
„Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir auknum þrýstingi á Rússa. Það sé besta leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu og segir hann að ráðamenn í Rússlandi virði ekkert nema styrk. Hann sagði árásir Rússa á óbreytta borgara í Úkraínu vera gífurlega umfangsmiklar. Rússar hefðu notað sex þúsund sjálfsprengidróna í janúar. Erlent 14. febrúar 2026 13:12
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Rétt tæp fjögur ár eru liðin frá því Rússar hófu allsherjarinnrásina í Úkraínu, eftir margra ára átök milli ríkjanna og tengdra sveita í austurhluta landsins. Harðir bardagar geysa víða í Úkraínu og er mannfall sagt mikið. Rússar hafa þó náð tiltölulega litlum árangri í landvinningum sínum og leggja mikla áherslu á árásir á borgaralega innviði. Erlent 14. febrúar 2026 07:33
„Þá er Ísland kannski næsti biti“ Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. Innlent 13. febrúar 2026 20:47
Kann sjö tungumál, með fimm háskólagráður og kennir dönsku Í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöld mætti Tómas Arnar í Garðaskóla til að kynnast einum áhugaverðasta dönskukennara landsins sem er jafnframt doktor í kennslufræði. Lífið 13. febrúar 2026 11:01
„Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar. Innlent 12. febrúar 2026 21:00
Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Rússnesk stjórnvöld hafa takmarkað aðgang að samfélagsmiðlinum Telegram og sektað hann um milljónir til þess að „vernda rússneska borgara“. Þau vilja fá Rússa til að nota ríkissnjallforrit sem gerir þeim auðveldara fyrir að fylgjast með borgurunum. Erlent 12. febrúar 2026 09:20
Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Atlantshafsbandalagið hefur formlega hleypt af stokkunum verkefninu Vörður norðurslóða (e. Arctic sentry) sem er ætlað að auka eftirlit og umsvif hersveita og efla viðbragðsgetu bandalagsins í norðri. Utanríkisráðherra er mætt til Brussel og segir að Íslendingar muni finna fyrir hinu aukna umfangi. Innlent 11. febrúar 2026 20:20
Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga. Erlent 11. febrúar 2026 07:54
Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og meðlimir ríkisstjórnar hans eru að skoða hvort virkja eigi fleiri kjarnorkuvopn og íhuga mögulega tilraunasprengingu. Þetta hafa embættismenn Trumps gert ljóst á undanförnum dögum, síðan síðasti kjarnorkuvopnasamningurinn milli Bandaríkjanna og Rússlands rann sitt skeið í síðustu viku. Erlent 10. febrúar 2026 10:53
Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Volodomír Selenskíj forseti Úkraínu segir Bandaríkin hafa gefið Úkraínu og Rússlandi frest til loka júnímánaðar til að komast að samkomulag um frið. Hann sagði Rússum og Úkraínumönnum boðið til frekari viðræðna í Bandaríkjunum. Tveggja daga friðarviðræðum í Abu Dhabi lauk í gær án árangurs. Erlent 7. febrúar 2026 21:36
Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Rússneskir hermenn í Úkraínu hafa misst aðgang að internetinu gegn Starlink-gervihnetti eftir að Úkraínumenn báðu Elon Musk, eiganda fyrirtækisins SpaceX, um að takmarka aðgang Rússa að gervihnattaþyrpingunni. Herbloggarar í Rússlandi segja hermenn hafa kvartað yfir vandræðum við samskipti á víglínunni en hve áhrifamikil áhrifin eru ekki ljós enn. Erlent 6. febrúar 2026 10:41
Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Einn aðstoðarforstjóra rússnesku herleyniþjónustunnar GRU var skotinn og særður af óþekktum byssumanni í Moskvu í dag. Forstjóri GRU tók þátt í viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna í Abú Dabí í gær. Erlent 6. febrúar 2026 09:00
Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi hafa komist að samkomulagi um að koma aftur á formlegum og stöðugum samskiptum milli hernaðaryfirvalda ríkjanna. Tilkynnt var um þetta í kjölfar funda fulltrúa Bandaríkjanna og Rússlands á hliðarlínum viðræðna um Úkraínu í Abu Dhabi. Erlent 6. febrúar 2026 07:31
Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Að minnsta kosti 55 þúsund úkraínskir hermenn hafa fallið í átökum við Rússa, samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Átökin hafa staðið yfir í tæp fjögur ár en Selenskí segir að margra til viðbótar sé saknað. Fjöldi fallinna hermanna er líklegal mun hærri, eins og forsetinn viðurkenndi sjálfur. Erlent 5. febrúar 2026 16:53
Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur hvatt Bandaríkjamenn og Rússa til að komast umsvifalaust að nýju samkomulagi um fækkun kjarnorkuvopna. START-samkomulagið frá 2011 rennur út í dag. Erlent 5. febrúar 2026 07:43
Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. Erlent 3. febrúar 2026 07:00
Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Rússnesk flóttamannafjölskylda sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi tveimur vikum eftir keisaraskurð verður að óbreyttu send til Rússlands. Króatísk stjórnvöld hafa synjað móðurinni og börnunum um alþjóðlega vernd. Örlög föðurins, sem hefur sætt pólitískum ofsóknum í Rússlandi, eru óljós þar sem fjölskyldunni var sundrað í Króatíu. Innlent 2. febrúar 2026 19:04
Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Rússneskur dróni hæfði farþegarútu sem flutti námuverkamenn úr vinnu til borgarinnar Dnípró í dag. Fimmtán hið minnsta eru sagðir hafa látist. Erlent 1. febrúar 2026 17:28
Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Lögmaður stofnenda Vélfags segir að þeim sé haldið utan við fyrirætlanir stjórnarformanns þess. Þá hafi þeir ekki óskað eftir því að eignir væru fjarlægðar úr starfsstöðum félagsins. Staðhæfingar stjórnarformanns og lögmanns Vélfags í fjölmiðlum séu rangar. Viðskipti innlent 30. janúar 2026 15:58