Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. Erlent 15.10.2026 10:33
„Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Vólódimír Selenskí, forseti Úkraínu, telur að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi svikið sig persónulega eftir að takmarkanir voru gerðar á notkun úkraínska hersins á Starlink-tækninni. Erlent 14.10.2026 23:41
Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, þvertekur fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Hann vísar á bandarísk stjórnvöld. Erlent 14.10.2026 20:01
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Bandaríkjamenn eru sagðir hafa hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að meina ríkjum Evrópu að kaupa vopn og flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínu. Það verði gert ef Úkraínumenn hætti ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Erlent 12. október 2026 06:57
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Rússar hafa gert árásir á orkuinnviði í Úkraínu eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta um orkuvopnahlé milli ríkjanna tveggja, að sögn Úkraínuforseta. Þrír hið minnsta eru látnir í borginni Karkív og tuttugu særðir. Erlent 11. október 2026 20:15
Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið. Erlent 11. október 2026 15:22
Vill nýjan Úkraínuforseta Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa brugðist vel við harðri gagnrýni Úkraínuforseta á dísilsamning Bandaríkjamanna og Rússa og telur að tími sé til kominn að Úkraína fái sér nýjan forseta „sem kunni að gera samninga.“ Erlent 10. október 2026 20:31
Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Fimmtán hið minnsta létust, þar af þrjú börn, þegar Rússar vörpuðu fimm svifsprengjum á úkraínsku borgina Saporíssjía í morgun. Sextán til viðbótar særðust og fleirra er saknað. Óttast er að fleira fólk kunni að vera fast undir rústum íbúðarhúsa. Erlent 10. október 2026 14:12
Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings. Erlent 10. október 2026 12:21
Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Volódímír Selenskí Úkraínuforseti gagnrýnir harðlega samkomulag Donalds Trump Bandaríkjaforseta um kaup á rússneskri díselolíu. Hann segir samninginn gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði. Erlent 10. október 2026 08:24
Trump samdi við Pútín um dísel Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa náð samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu. Erlent 9. október 2026 20:39
Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Mikhail Zvinchuk, einn helsti herbloggari Rússlands og stofnandi áhrifamikils miðils sem kallast Rybar, var handtekinn í Svartfjallalandi í morgun. Forsætisráðherra landsins segir hann hafa verið handtekinn eftir viðvaranir um tilraunir til að grafa undan stöðugleika í Svartfjallalandi. Erlent 9. október 2026 11:28
Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Líkurnar á því að Júlía Navalnaja, ekkja rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans Alexei Navalní, hljóti friðarverðlaun Nóbels ruku skyndilega upp á vinsælli veðmálasíðu í nótt. Það sama gerðist fyrir ári kvöldið áður en tilkynnt var að leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela hlyti verðlaunin. Erlent 9. október 2026 07:36
Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær. Erlent 8. október 2026 23:52
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið. Erlent 7. október 2026 13:25
Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Erlent 7. október 2026 11:31
Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sóttvarnalæknir telur litlar líkur á því að lungnapest sem greindist í rannsóknarstofu í Rússlandi berist til Íslands enda smitist lungnapest ekki eins hratt og til dæmis inflúensa þó hún geti verið banvæn. Innlent 6. október 2026 20:55
Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Tugir manna eru sagðir hafa verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu lést tveimur dögum eftir að hafa verið lögð inn á spítala. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar greina frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni sem er sögð hafa það helsta markmið að rannsaka skæða faraldra, það er að segja plágur. Erlent 5. október 2026 13:45
Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Rússar gerðu árás á mikilvæga brú í norðurhluta Kænugarðs í Úkraínu á sama tíma og kanslari Þýskalands mætti í heimsókn til borgarinnar. Erlent 4. október 2026 14:37
Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Vladimír Pútín syrgði Sovétríkin sálugu á öryggisráðstefnu sinni í Moskvu í gær. Forsetinn sagði meðal annars að fall þeirra hefði verið harmleikur mikill og haft hræðilegar afleiðingar fyrir milljónir manna. Í sömu ræðu sagði Pútín mikil ósannindi um innrás Rússa í Úkraínu og hélt því fram að hann hefði engan áhuga á því að ráðast á annað ríki í Evrópu, í sama mund og hann hótaði beitingu kjarnorkuvopna gegn Evrópu. Erlent 2. október 2026 11:15
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Rússland vinnur kerfisbundið að því að grafa undan getu Úkraínu til að fæða heiminn. Með því að ráðast á hafnir, siglingaleiðir og landbúnaðarinnviði er ekki aðeins verið að herja á Úkraínu. Þetta skapar líka aukið álag á hnattrænt fæðuöryggi, með alvarlegum afleiðingum fyrir milljónir manna langt fyrir utan Evrópu. Skoðun 1. október 2026 17:01
Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk. Erlent 30. september 2026 11:01
Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Hætt hefur verið við tvenna tónleika sem rapparinn Ye betur þekktur sem Kanye West átti að halda í Rússlandi í október. Ástæðan virðist vera sú að samningar hafi aldrei tekist á milli eigenda tónleikahalla og skipuleggjenda. Lífið 30. september 2026 08:01
Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Yfirvöld í Eistlandi segja útsendara Rússlands hafa gert íkveikjuárás á eistneskt hergagnafyrirtæki í Tallinn í ágúst. Rússneskir starfsmenn þarlendra leyniþjónusta hafi staðið að árásinni og er hún sögð liður í skuggastríði Rússa gegn Evrópu, sem ætlað sé að ógna ráðamönnum og íbúum heimsálfunnar og grafa undan stuðningi við Úkraínumenn. Erlent 29. september 2026 11:19