Rússland

Rússland

Höfuðborg: Moskva. Mannfjöldi: 146,0 milljónir (2025). Flatarmál: 17.098.246 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Danir vara við aukinni ógn frá Rússum

Rússar eru líklegir til að gefa í þegar kemur að skuggastríði þeirra gegn Evrópu og að framkvæma fleiri fjölþáttaárásir á komandi mánuðum. Tölvuárásir, drónaárásir og skemmdarverk eru meðal þess sem kemur til greina en einhvers konar innrás í NATO-ríki þykir mjög ólíkleg.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Veturinn verði Rússum erfiður

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði yfirvöld í Moskvu við því í gær að Úkraínumenn myndu gera veturinn kostnaðarsaman fyrir Rússa, samþykki þeir ekki orkuvopnahlé. Ráðamenn í Úkraínu og bandamenn þeirra hafa lýst yfir vilja til að semja við Rússa um að hætta árásum á orkuinnviði og kornflutninga um Svartahaf.

Erlent
Fréttamynd

Bað Trump um „vetrarpakka“

Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi.

Erlent
Fréttamynd

Sam­þykktu frum­varp Grahams einu og hálfu ári seinna

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan.

Erlent
Fréttamynd

Af­hjúpa RIS-vanda í Evrópu og Banda­ríkjunum

Saksóknarar í Bandaríkjunum opinberuðu í gær ákærur gegn fimm mönnum sem grunaðir eru um að ætla sér að skipuleggja fjölþáttaógnir í Evrópu og framkvæma launmorð í Bandaríkjunum, fyrir hönd rússneskrar leyniþjónustu. Mennirnir mynda hóp sem kallaður er RIS og hafa þeir reynt að ráða aðra gegnum netið til að gera árásir fyrir þeirra hönd.

Erlent
Fréttamynd

Pútín er hvergi nærri því að láta undan

Pútín er reiðubúinn að halda þessu stríði áfram árum saman. Það er ekki vegna þess að ráðgjafar hans lofi honum skjótum sigri, þótt vel megi vera að þeir geri það. Stríðið er orðið innbyggt í pútínismann, rétt eins og pútínisminn er orðinn innbyggður í stríðið. Stjórnkerfi hans veitir honum frelsi til að gera það sem hann vill og arfleifð hans verður ekki lengur skilin frá stríðinu. Bæði Pútín og Rússland hafa búið sig undir langvinnt stríð.

Umræðan
Fréttamynd

Lýsti yfir sam­komu­lagi sem lá ekki fyrir

Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir.

Erlent
Fréttamynd

Rúss­neskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps

Draumabrúðkaup Donalds Trump yngri og Bettinu Anderson, nú Trump, á tveimur einkaeyjum í Bahamaeyjum í vor var að stórum hluta fjármagnað af rússneskum auðjöfri, sem hefur tengingar til Kremlar og Vladimírs Pútín. Umar Kremlev var einn nokkurra rússneskumælandi manna sem sóttu brúðkaupið, sem var að öðru leyti eingöngu fyrir nánustu vini og ættingja.

Erlent
Fréttamynd

Trump segir að á­rásum á orkuinnviði verði hætt

Donald Trump segir að ráðamenn í bæði Kænugarði og í Moskvu hafi samþykkt að ráðast ekki á orkuinnviði hvors annars. Þá heldur hann því fram að hærra olíuverð sé vegna Úkraínustríðsins en ekki vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Rússar hafa ekki staðfest að samkomulag hafi náðst en Úkraínumenn hafa boðið Rússum slíkt um nokkuð skeið.

Erlent
Fréttamynd

Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um

Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað.

Erlent
Fréttamynd

John­son rétt slapp við á­rás Rússa

Rússneskur dróni hæfði lest í bænum Yahodyn í Úkraínu, skammt frá landamærunum að Póllandi, skömmu eftir að fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands Boris Johnson og hátt settir öryggisráðgjafar Evrópuríkja höfðu farið sömu leið.

Erlent
Fréttamynd

Rússar gómaðir með leyni­lega sæstrengjaklippu

Norðmenn, Bretar og Bandaríkjamenn stöðvuðu Rússa við æfingar á nýju leynivopni sem hannað er til að skera á sæstrengi nærri Svalbarða í vor. Vopn þetta er borið af kafbátum og á að geta skorið á sæstrengi á gífurlegu dýpi, án þess að skilja eftir ummerki um hver hefði verið þar að verki.

Erlent
Fréttamynd

Töluðu saman í klukku­tíma

Donald Trump sagði Vladimír Pútín að hann vildi að endir verði fljótt bundinn á stríðið í Úkraínu, svo Rússland og Bandaríkin gætu aftur átt í eðlilegum samskiptum. Pútín sagðist styðja þetta sjónarmið Trumps.

Erlent
Fréttamynd

Kim fjölgar her­skipum sínum

Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, fylgdist í dag með athöfn þar sem herafli hans tók í notkun nýjan tundurspilli sem borið getur kjarnorkuvopn. Við tilefnið sagði Kim að fjölga ætti herskipum sem gætu borið kjarnorkuvopn og sagði þá vinnu þegar hafna.

Erlent
Fréttamynd

Rússar svara fyrir sig

Utanríkisráðuneyti Rússlands tilkynnti í dag að ræðismannsskrifstofu Þýskalands í Pétursborg yrði lokað. Þar að auki yrði Þjóðverjum gert að loka þýskum menningarsetrum í Moskvu og Pétursborg. Með þessu eru Rússar að svara með nánast sams konar aðgerðum og Þjóðverjar beittu Rússa á dögunum.

Erlent