Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni Herforingjastjórn Níger stóð um helgina af sér valdaránstilraun, sem virðist hafa verið nokkuð alvarleg. Rússneskir málaliðar eru sagðir hafa skipt sköpum fyrir herstjórnina og bundu þeir enda á um sólahringslangt umsátur um herstöð nærri Niamey, höfuðborg landsins. Erlent 31.8.2026 14:28
„Þeir munu hengja mig“ Vladimír Pútín óttast það að binda enda á stríðið gegn Úkraínu án þess að ná fullum tökum á Donbas-svæðinu svokallaða. Hann er sagður telja að hann yrði ráðinn af dögum ef hann gerði það og þess í stað ætlar hann að leggja enn meira í stríðsreksturinn. Erlent 31.8.2026 11:30
Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu. Erlent 31.8.2026 08:40
Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem þýsk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins. Erlent 21. ágúst 2026 15:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Rússum hefur ekki vegnað vel á víglínunni í Úkraínu í sumar og hafa lítið sótt fram en þó eitthvað og á nokkrum stöðum. Framsókn þeirra hefur að mestu verið bundin við víglínuna norður af Pokrovsk og í Dónetsk-héraði. Færa má þó rök fyrir því að þungamiðja stríðsins sé ekki lengur víglínan og að staðan þar skipti minna máli en langdrægar árásir Rússa og Úkraínumanna. Erlent 20. ágúst 2026 09:01
Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Danski þjóðarflokkurinn hefur rekið ellefu manns með tengsl við rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna úr flokknum eftir að hann reyndi að seilast til áhrifa. Sérfræðingur segir spurninguna ekki hvort kirkjan tengist rússneskum stjórnvöldum heldur hversu mikið. Erlent 20. ágúst 2026 08:45
Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Andri Freyr Viðarsson eru æskuvinir að austan og hafa brallað ýmislegt í gegnum tíðina. Þeir rifjuðu upp saman þegar rússneskur togari kom til Reyðarfjarðar og þeir skiptu á leikföngum og raftækjum við sjómennina fyrir rússneskar sígarettur. Lífið 19. ágúst 2026 14:41
Kanye treður upp í Rússlandi Rapparinn Ye, betur þekktur sem Kanye, West heldur tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. West er stærsti tónlistarmaðurinn sem treður upp í landinu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Á síðustu árum hafa nöfn á borð við Jason Derulo, DaBaby, Flo Rida, Akon og Timbaland komið þar fram. Tónlist 19. ágúst 2026 13:40
Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur kallað eftir því að boðað verði til forsetakosninga í landinu. Hann segir að Úkraínumenn megi ekki láta Rússa „halda lýðræðinu í gíslingu“; frelsið sé ástæða baráttu þeirra yfir höfuð. Erlent 19. ágúst 2026 06:30
Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016. Innlent 19. ágúst 2026 01:01
Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Rússar hafa á undanförnum árum komið upp herstöðvum víða í vesturhluta landsins. Þaðan eru þeir taldir geta skotið öflugum drónum langt inn á landsvæði ríkja Atlantshafsbandalagsins. Erlent 17. ágúst 2026 23:47
Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns Rússneskur stjórnarandstöðuþingmaður var dæmdur í rúmlega ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu í dag. Hæstiréttur Rússlands meinaði flokki hans að bjóða fram í þingkosningum í haust. Erlent 17. ágúst 2026 14:57
Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Mykhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, segir mögulegt að Úkraínuher muni geta gert árás á Rússland með heimsmíðaðri skotflaug á næstu þremur til sex mánuðum. Erlent 17. ágúst 2026 08:02
Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Íslenskur blaðamaður búsettur í Kænugarði var vakinn um þrjúleytið í nótt við sprengingar. Rússar gerðu umfangsmikla eldflauga- og drónaárás á úkraínsku höfuðborgina í nótt. Erlent 16. ágúst 2026 12:16
Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir stórfelldar dróna- og eldflaugaárásir Rússa í Úkraínu í nótt. Áfram skiptast ríkin á drónum og eldflaugum en úkraínsk drónaárás hæfði vöruhús netverslunarrisans rússneska Wildberries sem stóð í ljósum logum í morgun. Erlent 16. ágúst 2026 10:29
Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki. Erlent 13. ágúst 2026 23:47
Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti. Erlent 13. ágúst 2026 22:02
Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Tveir eru sagðir látnir og tólf særðir eftir árás Úkraínumanna á flotastöð Rússa við Svartahaf í nótt. Forseti Úkraínu segirr dróna og flugskeyti hafa hæft loftvarnarkerfi Rússa, bryggjur og aðra hafnarinnviði. Erlent 12. ágúst 2026 13:36
Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum. Erlent 11. ágúst 2026 22:01
Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Yfirvöld í Rússlandi hafa sleppt bandarískum uppgjafarhermanni úr fangelsi. Robert Gilman hafði setið inni í meira en fjögur ár á grunni umdeildra ákæra og við slæmar aðstæður. Donald Trump segir Vladimír Pútín hafa samþykkt að sleppa honum í mannúðarskyni en Gilman er sagður vera mjög heilsulítill. Erlent 11. ágúst 2026 18:16
Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Forsvarsmenn Sænsku öryggislögreglunnar Säpo segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg rússneskra njósnara og útsendara þeirra úr sendiráði ónefnds Evrópuríkis. Markmið Rússanna mun hafa verið að hafa áhrif á stjórnmál í Svíþjóð og að kasta rýrð á ríkisstjórnina, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið. Erlent 10. ágúst 2026 22:21
Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Þrettán manns í það minnsta eru sagðir hafa fallið í drónaárás Úkraínumanna á olíuhreinsistöð í rússneska sambandslýðveldinu Tatarstan í nótt. Rússnesk yfirvöld fullyrða að eitt barn sé á meðal þeirra föllnu í árásinni sem er ein sú blóðugusta frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 10. ágúst 2026 11:59
Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu væntanlega til Rússlands. Þá segir hann eldflaugar frá Norður-Kóreu hafa fundist á landsvæði Úkraínu. Erlent 10. ágúst 2026 06:43
Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tatíana Kim er ríkasta kona Rússlands. Hún starfaði fyrstu fullorðinsárin sem enskukennari, en stofnaði árið 2004, þá 28 ára gömul, fyrirtækið Wildberries, sem lýsa mætti sem rússneska Amazon, og hefur grætt á tá og fingri síðan. Nú er reksturinn sagður í hættu, vegna stríðs Rússlands og Úkraínu. Viðskipti erlent 8. ágúst 2026 22:50