Bretland

Bretland

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 69,5 milljónir (2025). Flatarmál: 243.610 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Chris Brown á skil­orði

Bandaríski söngvarinn Chris Brown hefur verið dæmdur til átta mánaða skilorðsbundins fangelsisdóms fyrir að slá mann með tekílaflösku í höfuðið á næturklúbbi í London árið 2023.

Lífið
Fréttamynd

Hvað veistu um… Karl Breta­konung?

Karl Bretakonungur varð konungur árið 2022 eftir andlát móður sinnar, Elísabetar II, sem hafði þá gegnt embætti drottningar frá árinu 1952. Þegar Karl tók við embætti konungs hafði hann verið krónprins í rúmlega sjö áratugi og varð þá elsti maðurinn til að taka við bresku krúnunni.

Lífið
Fréttamynd

Ótrú­leg saga fólks sem valdi mildi og mann­úð í stað reiði

Magnús Geir Þórðarson leikstýrir verkinu Högg eftir James Graham. Hann segist hafa fallið fyrir verkinu fyrir tveimur árum og það snert hann persónulega. Hann segir verkið hverfast um þá valkosti sem fólk getur staðið frammi fyrir í lífinu og hvað gerist þegar fólk velur mildi og mannúð í stað haturs og heiftar.

Menning
Fréttamynd

Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“

Gunnar Helgason er á rannsóknarferðalagi um Wales fyrir nýjan furðusagnaflokk sinn og hefur deilt myndböndum af vettvangi á Facebook. Deilingarstillingar miðilsins hafa strítt höfundinum og færslurnar ratað í ýmsar óviðkomandi grúppur, svo sem íbúahóp Grafarholts og Úlfarsárdals. Höfundurinn kann engar skýringar á málinu og kennir Mark Zuckerberg um klúðrið.

Lífið
Fréttamynd

Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið?

Í síðustu viku hélt hópur fornleifafræðinga til afskekktrar eyjar í Kyrrahafi. Vonuðust þeir til að leysa eina stærstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað varð um Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937 er hún reyndi að fljúga umhverfis jörðina? Unnendur hulinna leyndardóma þurfa þó ekki að örvænta. Dularfullur hlutur, sem hafði sést á gervihnattarmynd af lóni á eyjunni, reyndist ekki vera flugvél heldur trjábolir.

Lífið
Fréttamynd

Harry vill sættast við fjöl­skylduna

Harry Bretaprins hefur lýst því yfir að hann vilji sættast við fjölskyldu sína. Samband Harry við bresku konungsfjölskylduna, þar á meðal Vilhjálm bróður hans og Karl föður hans, hefur verið slæmt síðustu sex ár frá því hann ákvað að afsala sér konunglegum skyldum og flytja með eiginkonu sinni, Meghan Markle, til Bandaríkjanna.

Lífið
Fréttamynd

Biðja við­skipta­vini að vera á varð­bergi

Tískurisinn ASOS biðlar til viðskiptavina sinna að vera á varðbergi gagnvart óvæntum skilaboðum eða símtölum sem sögð eru koma frá fyrirtækinu. Notendur fengu senda meldingu frá meintum tölvuþrjótum.

Erlent
Fréttamynd

Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi

Írski metsöluhöfundurinn Sally Rooney hefur tekið bækurnar sínar úr sölu í Bretlandi. Hún styrkir samtök sem styðja Palestínu en eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Bretlandi.

Erlent
Fréttamynd

Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði

Maður lést eftir að tígrisdýr réðst á hann í dýragarðinum Yorkshire Wildlife Park á Englandi, að sögn lögreglu í Suður-Jórvíkurskíri. Hann er sagður hafa farið inn á afgirt svæði þar sem tígrisdýrið dvaldi.

Erlent
Fréttamynd

Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu

Norður-Írlandsmálaráðherra Bretlands hefur ákveðið að banna fyrirhugaða göngu Oraníureglunnar frá Drumcree-kirkju í Portadown. Deila um gönguna hefur staðið í nærri tvær vikur og vakið upp minningar um óöldina á tíunda áratug síðustu aldar.

Erlent