Landhelgisgæslan
1 2 3 4 5 6 … 38 ›
Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna manns sem hafði slasast á fæti þar sem hann var í mótorhjólaferð á hálendinu. Hann var í kjölfarið sóttur af sjúkrabíl á flugvöllinn í Reykjavík og fluttur undir læknishendur. Innlent 6.9.2026 14:09
Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Hvorki skip né þota frá Bandaríkjunum tók þátt í kafbátaleitaræfingu NATO við Íslandsstrendur, sem er hluti af Norður-Víkingi. Frá 2006 hafa Bandaríkjamenn leitt æfinguna en þátttaka þeirra var minni í ár en áður. Á næstu misserum stefna Bandaríkin á að draga úr herafla sínum í NATO-ríkjum í Evrópu. Innlent 6.9.2026 13:19
Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust. Lífið 6.9.2026 11:20
Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Langar bílaraðir hafa myndast þar sem veginum hefur verið lokað meðan á vinnu á vettvangi stendur. Innlent 5.9.2026 20:15
Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Bæjarráð Fjallabyggðar skorar á stjórnvöld að tryggja fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri. Innlent 31.8.2026 13:16
Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki hægt að verðleggja þyrluútkall en þegar ferðamenn hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi hafi Landhelgisgæslan reynt að innheimta í gegnum tryggingar. Það hafi þó ekki sýnt góðan árangur. Útköllum hefur fjölgað verulega síðustu ár. Innlent 25.8.2026 23:49
Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Þyrla Landhelgisgæslunnar var send að austanverðum Sólheimajökli í kjölfar útkalls vegna manns sem hafði slasast á fæti um tvöleytið í dag, sunnudaginn 23. ágúst. Hann var hífður upp og fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur en skömmu áður höfðu björgunarsveitir sótt annan slasaðan mann á svipuðum slóðum. Innlent 23.8.2026 18:15
Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis. Innlent 22.8.2026 20:11
Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Talsvert mikið viðbragð var á fjórða tímanum í dag þegar göngumaður slasaðist illa á fæti á stað þar sem virkilega erfitt var að komast að honum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar björgunarsveitum og um klukkan hálf sex hafði maðurinn verið hífður upp. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar og athugunar. Innlent 16.8.2026 20:17
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til aðstoðar viðbragðsaðilum í nágrenni við Hvolsvöll á sjöunda tímanum vegna tilkynningar um veikindi. Því er um sjúkraflug að ræða. Innlent 16.8.2026 19:21
Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Kallað var til aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar um klukkan fjögur síðdegis vegna slasaðs göngumanns í nágrenni við Glym fyrir botni Hvalfjarðar. Svæðið þar sem maðurinn slasaðist er með öllu ófært bílum. Innlent 16.8.2026 17:08
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestfjalli við Skorradalsvatn á fjórða tímanum vegna manns sem hafði dottið og slasað sig. Innlent 15.8.2026 15:55
Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Rétt fyrir klukkan átta í morgun bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð um eld um borð í litlum fiskibát um tuttugu sjómílum norður af Flateyri. Einn var um borð í bátnum en hann var óhultur þegar aðstoð barst. Innlent 11.8.2026 16:32
Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins. Innlent 10.8.2026 12:55
TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Landhelgisgæslan hefur hafið eftirgrennslan um lítinn skemmtibát, sem siglt var út á Sundin í morgun, þar sem áhöfn hans hefur ekki látið vita af sér. Ekkert bendir til þess að báturinn sé sokkinn en eftirlits- og björgunarflugvélin TF-SIF hefur verið ræst út til að svipast um eftir bátnum. Innlent 10.8.2026 11:41
Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Björgunarfélag Árborgar var kallað út í gær um klukkan 21 vegna slasaðs einstaklings við Háafoss. Björgunarfélagið segir björgun hafa reynst mjög krefjandi vegna böruburðar. Ekkert símasamband er þar sem maðurinn fannst. Innlent 10.8.2026 10:42
Sækja slasaðan mann að Háafossi Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur nú í átt að Háafossi, innst í Þjórsárdal, þar sem ferðamaður slasaðist. Innlent 9.8.2026 22:51
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið á miðhálendinu. Innlent 9.8.2026 11:05
Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur nú til móts við sjúkrabíl sem flytur slasaðan mann eftir hestaslys sem varð austur við Kirkjubæjarklaustur. Innlent 8.8.2026 20:09
Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Flugsveit belgíska hersins kemur til landsins í lok vikunnar til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Þotugildra verður sett upp á Akureyrarflugvelli. Innlent 7.8.2026 06:45
Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tvöfalda þyrfti flota Landhelgisgæslunnar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti að vera að mati yfirflugsstjóra gæslunnar. Yfirvöld hafi verið jákvæð fyrir slíkri stækkun en nú reyni á efndir. Mikil aukning varð á útköllum hjá gæslunni í sumar,. Innlent 6.8.2026 22:01
Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landhelgisgæslan heiðruðu Ómar Ragnarsson í dag með dagsferð á Sauðárflugvöll á hálendi Austurlands. Ómar kom flugvellinum á kortið í baráttu sinni fyrir náttúruvernd á Austurlandi og gegn Kárahnjúkavirkjun. Ómar segir brýnt að viðhalda flugbrautum þar og auka vitneskju um völlinn, öryggisins vegna. Innlent 5.8.2026 19:29
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss nærri Fosshóli í Þingeyjasveit. Ökumaðurinn ók fram af fjögurra metra hengju. Innlent 5.8.2026 12:44
Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Skipverji á Bandero segir aðstæður um borð ómannsæmandi. Lítið hafi verið um mat síðustu daga og áhafnarmeðlimir neyðst til að ganga örna sinna í vaska um borð. Aðstoðarlögreglustjóri segir að öllum skipverjum verði gert kleift að ganga frá borði. Innlent 4.8.2026 19:33
„Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Forstjóri Útlendingastofnunar segir að ákvörðun um brottvísun og endurkomubann áhafnar Bandero, sem hefur ekki farið lönd né strönd síðan á fimmtudag, muni liggja fyrir í þessari viku. Andmælaréttur skipverja er liðinn og er nú unnið að því að ákveða örlög þeirra. Innlent 4.8.2026 12:13
Knapi datt af baki Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld vegna slyss á hestbaki. Innlent 2.8.2026 20:13
Slasaðist á fæti uppi á hálendi Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar sækir göngumann á hálendi sem slasaðist á fæti í nágrenni við Laugaveg. Maðurinn er milli Hrafntinnuskers og Álftavatns. Innlent 1.8.2026 13:40
Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 1.8.2026 11:23
Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna manns sem hafði slasast alvarlega á fæti eftir fall í Vestmannaeyjum. Innlent 1.8.2026 08:15
Paul Watson afar ánægður með handtökuna Paul Watson fer ekki í grafgötur með að helsti tilgangur aðgerða Bandero er að ná athygli heimsins. Myndavélarnar eru hans helsta vopn og það að Gæslan hafi ráðist til uppgöngu gráir fyrir járnum skaffaði honum myndefnið sem hann þurfti. Innlent 31.7.2026 16:57