Fréttir
Tekinn með heimatilbúna sprengju Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt akureyrskan karlmann til fjögurra mánaða fangelsisvistar. Hann var handtekinn með heimatilbúna sprengju og fíkniefni í júlí og var fjórum sinnum stöðvaður undir stýri á bifreið þrátt fyrir að vera búinn að missa leyfið. Innlent 2.11.2005 16:33
Hlutafjáraukning hjá FL Group Hlutafé í FL Group verður aukið um fjörutíu og fjóra milljarða króna að markaðsvirði. Þar með er talið hlutafé sem afhent verður sem hluti kaupverðs í skiptum fyrir hluti í Sterling flugfélaginu. Viðskiptavakt verður bæði í Landsbankanum og Kaupþingi banka. Innlent 2.11.2005 17:01
23 látnir eftir tilræði við mosku Nú er ljóst að að minnsta kosti 23 létust og f46 særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Musayyib í Írak í dag. Erlent 2.11.2005 17:01
Crouch fer að skora mörk fljótlega Hinn leggjalangi framherji Liverpool, Peter Crouch, hefur verið gagnrýndur nokkuð upp á síðkastið fyrir að ná ekki að skora mörk. Crouch kostaði Liverpool sjö milljónir punda í sumar og hefur enn ekki náð að skora í alvöru leik fyrir félagið. Sport 2.11.2005 16:47
Greiða 50 þúsund með hverri bók Ríkið greiðir um fimmtíu þúsund krónur með hverjun eintaki af Sögu stjórnarráðsins. Það er meira en þrefalt hærra verð en kaupendur greiða fyrir bækurnar út úr búð. Innlent 2.11.2005 16:40
Hámarksþyngd farangurs í Ameríkuflugi minnkar Farþegar á leið til og frá Bandaríkjunum verða framvegis að draga úr þyngd farangurs síns frá því sem áður var samkvæmt nýjum reglum sem þegar hafa tekið gildi. Ákveðið hefur verið að minnka hámarksþyngd hverrar tösku úr 32 kílóum í 23. Innlent 2.11.2005 16:48
Jólafrímerki með ilm af jólum Íslandspóstur gefur út tvær frímerkjaraðir á morgun, 3. nóvember. Myndefnin á þeirri fyrri er grágæs og stari en í hinni eru jólafrímerkin í ár. Jólafrímerkin eru sérstök að því leyti að þau eru með greni-, epla- og kanelilm. Innlent 2.11.2005 16:41
Ábyrgðarmaður og ritsjtórn ósammála Vilhjálmur Rafnsson ábyrgðarmaður Læknablaðsins segist ekki ætla að segja af sér ábyrgðarmennsku eins og ritnefnd Læknablaðsins lagði til á fundi síðastliðinn mánudag. Kári Stefánson hefur nú kært Vilhjálm til siðanefndar lækna vegna greinar Jóhanns Tómassonar "Nýi sloppur keisarans" sem birtist í septemberútgáfu Læknablaðsins. Innlent 2.11.2005 16:53
Gerði fimm ára samning við West Ham Alan Pardew er í skýjunum yfir því að hafa undirritað nýjan fimm ára samning við West Ham, en hann hefur stýrt liðinu í tvö ár og kom því nokkuð óvænt upp í úrvalsdeildina í vor. Byrjun liðsins í úrvalsdeild hefur svo farið fram úr björtustu vonum og því hefur Pardew nú skrifað undir nýjan samning. Sport 2.11.2005 16:33
Chirac hvetur til stillingar í úhverfum Parísar Jacques Chirac, forseti Frakklands, reyndi í dag að lægja óeirðaölduna sem gengið hefur yfir úthverfi Parísarborgar undanfarna daga. Þær blossuðu upp fyrir sex dögum eftir að tveir piltar af innflytjendaættum létust af völdum raflosts þar sem þeir földu sig fyrir lögreglunni í lítilli rafstöð. Erlent 2.11.2005 15:59
Ráðist á mosku sjíta í Írak Að minnsta kosti sjö létust og fimmtán særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan mosku sjíta í bænum Musayyib í Írak í dag. Árásin er gerð á lokadegi helgimánaðar múslíma, Ramadan, en árásir á sjíta í mánuðinum hafa verið tíðar. Múslímar búa sig nú undir þriggja daga frí, svokallað Eid, í kjölfar Ramadan en fríið hefst á morgun eða hinn. Erlent 2.11.2005 15:50
73 þúsund látnir af völdum skjálftans í Pakistan Yfirvöld í Pakistan greindu frá því í dag að tala látinna eftir jarðskjálftann 8. október væri komin upp í 73 þúsund. Talan hefur hækkað um sextán þúsund frá síðustu yfirlýsingu yfirvalda. Yfirmaður hjálparstarfsins í landinu sagði að sífellt fleiri látnir fyndust í rústum húsa og hann óttaðist að talan myndi hækka enn frekar. Erlent 2.11.2005 15:34
Aðeins þriðjungur félaga tekur þátt Kauphöll Íslands heldur kynningardag fyrir markaðsaðila í London í næstu viku. Aðeins þriðjungur félaga í kauphöllinni tekur þátt í kynningunni. Innlent 2.11.2005 15:28
Coca Cola verðmætasta vörumerki heims Coca Cola er verðmætasta vörumerki heims að mati tímaritsins Business Week. Næst koma Microsoft, IBM, General Electric og Intel. Í sjötta sæti er svo finnska vörumerkið Nokia en eftir því sem best verður séð er ekkert annað norrænt vörumerki á listanum yfir þau hundrað verðmætustu. Lífið 2.11.2005 15:01
Loksins samkomulag um nýtingu kolmunnaaflans Strandríki Evrópusambandsins, Ísland, Noregur og Færeyjar, náðu loks samkomulagi um nýtingu kolmunnaaflans á Norðaustur-Atlantshafi eftir sjö ára samningaþóf og fjölda funda. Viðræðurnar voru haldnar í Kaupmannahöfn og fá Íslendingar hátt í 18 prósent í sinn hlut. Innlent 2.11.2005 14:04
Verið að efnagreina sprengiefnið Verið er að efnagreina leifar af sprengiefni úr sprengju sem sprakk undir mannlausum bíl fyrir utan hús í Skeifunni í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt með þeim afleiðingum að nærstödd kona meiddist og bíllinn stórskemmdist. Innlent 2.11.2005 13:18
Rafmögnuð spenna í opnunarleikjunum Leiktíðin í NBA deildinni hófst í nótt með fjórum leikjum og ekki er hægt að segja annað en að byrjunin lofi góðu, því tveir leikjanna fóru í framlengingu og mjög óvænt úrslit urðu í fyrsta leiknum sem háður var í Oklahoma City. Sport 2.11.2005 07:00
Óeirðirnar í París færst enn í aukana Óeirðunum sem geisað hafa í París undanfarna daga virðist ekkert ætla að linna. Þær hafa nú færst í enn fleiri úthverfi borgarinnar en sex dagar er frá því þær hófust. Erlent 2.11.2005 12:54
CIA felur meinta hryðjuverkamenn í fangelsum fyrrverandi Sovétlýðvelda Bandaríska leyniþjónustan CIA felur meinta hryðjuverkamenn í leynilegum fangelsum í fyrrverandi Sovétlýðveldum, að sögn Washington Post í dag. Ein flugvél, sem talið er að CIA noti til fangaflutninga, fór frá Reykjavík til Búdapest í Ungverjalandi í síðasta mánuði. Innlent 2.11.2005 12:12
Nýtt lið sækir um þáttökurétt Nýtt keppnislið hefur nú lagt fram beiðni um að vera með í Formúlu 1 kappakstrinum á næsta ári. Það er fyrrum ökuþórinn Aguri Suzuki sem er í forsvari fyrir liðið, sem mun keppa með vélar frá Honda ef beiðni liðsins verður samþykkt. Liðið mun heita Super Aguri Formula One og yrði ellefta keppnisliðið á heimsmeistaramótinu á næsta ári ef allt fer að óskum. Sport 2.11.2005 05:07
11 milljarða skuldabréfaútgáfa í vikunni Gengi krónunnar hélt áfram að hækka í morgun eftir mikla hækkun í gær og er það rakið til stóraukinnar útgáfu skuldabréfa sem tryggð eru í íslenskum krónum. Hún nemur orðið ellefu milljörðum króna það sem af er vikunni og samtals á annað hundrað milljörðum. Innlent 2.11.2005 11:56
Blunkett segir af sér í annað sinn David Blunkett, ráðherra atvinnu- og eftirlaunamála í bresku ríkisstjórninni, sagði af sér í morgun. Blunkett hefur sætt ámæli fyrir að brjóta gegn siðareglum ráðherra með því að taka að sér launuð störf eftir að hann sagði af sér embætti innanríkisráðherra á síðasta ári. Erlent 2.11.2005 11:09
Dregið af launum fyrir að leggja niður vinnu á kvennafrídaginn Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar um að nokkur fyrirtæki í landinu hafi dregið eða ætli að draga af launum þeirra starfsmanna sem lögðu niður vinnu og gengu út klukkan 14.08 á kvennafrídaginn í lok október. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að þetta verði kannað betur í dag. Innlent 2.11.2005 10:48
Benitez ánægður með Morientes Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var ánægður með sigur sinna manna á slöku liði Anderlecht í Meistaradeildinni í gærkvöldi og þótti sérstök ástæða til að minnast á frammistöðu landa síns Fernando Morientes sem skoraði fyrsta mark sitt í langan tíma fyrir Liverpool. Sport 2.11.2005 04:30
Telur N-Kóreu ætla að halda áfram kjarnorkuframleiðslu Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir ekkert benda til þess að Norður-Kórea hyggist draga til baka áætlanir sínar um að hætta að framleiða kjarnorkuvopn. Yfirvöld í landinu hafa áður lofað að hætta framleiðslunni. Erlent 2.11.2005 09:46
Karl Bretaprins ræddi við Kofi Annan Karl bretaprins og eiginkona hans, Camilla Parker Bowles, eru komin til New York en þau eru í vikulangri opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Karl hitti meðal annars Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og ræddu þeir ýmis vandamál sem steðja að heiminum. Erlent 2.11.2005 09:40
Ísraelskur hemaður féll á Gaza Ísraelskur hermaður féll í skotbardaga við Palestínumenn á Gaza-ströndinni í morgun, að sögn talsmanns Ísraelshers. Þetta er fyrsta mannfallið í þeirra röðum síðan Ísraelsmenn yfirgáfu landnemabyggðirnar á Gaza snemma í haust. Erlent 2.11.2005 09:04
Íslendingar fjórða hamingjusamasta þjóðin Íslendingar eru fjórða hamingjusamasta þjóð í heimi ef marka má tölfræði hollensks gagnabanka sem starfræktur hefur verið undanfarin 20 ár. Innlent 1.11.2005 23:10
430 milljarðar til að verjast fuglaflensunni George Bush Bandaríkjaforseti hefur farið fram á við bandaríska þingið að það veiti sjö milljarða dollara fjárveitingu, eða tæplega 430 milljarða króna, til að berjast gegn fuglaflensunni sem hefur orðið 61 manni að bana í heiminum. Erlent 2.11.2005 08:40
Og fjarskipti hefja útrás sína í Færeyjum Og fjarskipti eignuðust í gær allan hlut í færeyska fjarksiptafyrirtækinu Kall en fyrir viðskiptin áttu Og fjarkskipti rúmlega áttatíu prósent í fyrirtækinu. Kaupin á Kalli eru fyrsta skref útrásar hjá fyrirtækinu. Innlent 2.11.2005 23:01