Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn taki afstöðu til frumvarps iðnaðarráðherra Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að Sjálfstæðisflokkurinn eigi eftir að taka afstöðu til frumvarps Iðnaðarráðherra um sameiningu Byggðastofnunar og fleiri stofnana sem tengjast nýsköpun og atvinnuþróun. Það hafi verið mjög vafasamt af Valgerði Sverrisdóttur og vanhugsað að kynna málið á sérstökum blaðamannafundi áður en afstaða stjórnarflokkanna lá fyrir. Innlent 28.3.2006 18:50
Þrjár milljónir manna mótmæla í Frakklandi Hátt á þriðju milljón mótmælti nýrri vinnulöggjöf harðlega í Frakklandi í dag. Andstæðingar hennar segja yngra fólki gert erfiðara um vik að fá langtímaráðningu og auðveldi vinnuveitendum að halda launum niðri. Lögreglan átti fullt í fangi með að verjast æstum mótmælendum sem ætla ekki að bakka fyrr en lögin verða dregin til baka. Erlent 28.3.2006 18:27
Kosið í Ísrael í dag Þingkosningar fara fram í Ísrael í dag. Valkostir eru afar skýrir að þessu sinni en á meðan Kadimaflokkurinn og Verkamannaflokkurinn vilja rýma minni landnemabyggðir, segja forsvarsmenn Likud-bandalagsins það ekki koma til greina. Útgönguspár verða birtar þegar kjörstöðum lokar í kvöld, kl. 20 að íslenskum tíma. Erlent 28.3.2006 18:21
Nafn mannsins sem lést í slysi við Kárahnjúka Maðurinn sem lést í vinnuslysi við Kárahnjúka í gær hét Eilífur Hammond. Hann var tuttugu og sex ára og til heimilis að Egilsgötu 30 í Reykjavík. Innlent 28.3.2006 18:19
Vitni sá bíl ódæðismannanna Íbúi í Garðinum sá bílinn sem fjórir ódæðismenn notuðu til að nema á brott mann á sjötugsaldri á laugardag. Um er að ræða stóran, amerískan bíl og kannar lögreglan bifreiðaskrár í von um að komast til botns í málinu. Innlent 28.3.2006 18:39
Kominn á sjúkrahús Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti með veikan sjómann á Reykjavíkurflugvelli nú rétt fyrir fréttir. Hann var sóttur í norskt selveiðiskip norður af Siglunesi en ekki var hægt að lenda fyrir norðan vegna veðurs. Innlent 28.3.2006 18:37
Taylor horfinn Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, hvarf í dag af heimili sínu í Nígeríu þar sem hann hefur verið í útlegð síðan 2003. Taylor er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi. Um síðustu helgi var haft eftir ráðamönnum í Nígeríu að þeir myndu ekki koma í veg fyrir handtöku hans. Erlent 28.3.2006 17:24
Gátu ekki lent á Akureyri Sif, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, sem sótti nú síðdegsi veikan sjómann í norskt selveiðiskip norður af Eyjafirði, gat ekki lent á Akureyri þar sem hún komst ekki inn Eyjafjörð vegna veðurs og skyggnis. Flytja átti manninn til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Stefnan er nú tekin á Sauðárkrók en í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að óvíst sé þó hvar þyrlan lendi að lokum. Innlent 28.3.2006 17:29
Setuverkfall á dvalarheimilum Á morgun miðvikud 29. mars hefst seturverkfall hjá ófaglærðum starfsmönnum sem starfa hjá Hrafnistu í Reykjavík, Hrafnistu Hafnarfirði, Vífilsstöðum, Víðinesi, dvalarheimilunum: Grund, Ás í Hveragerði, Sunnuhlíð og Skógarbæ. Innlent 28.3.2006 17:28
Telur ekki heppilegt að afnema samræmda gjaldskrá leigubíla Samgönguráðherra telur ekki heppilegt að afnema samræmda gjaldskrá leigubifreiða í samræmi við úrskurð Samkeppniseftirlitsins og segist hafa gert eftirlitinu grein fyrir því. Andstaða kom fram við breytingar hjá þingmönnum á Alþingi í dag. Innlent 28.3.2006 17:22
Veikur sjómaður fluttur til Akureyrar Sif, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, sótti fyrir stundu veikan sjómann í norskt selveiðiskip norður af Eyjafirði. Hann var fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Innlent 28.3.2006 16:52
Enn versnandi veður á Suðvesturlandi Enn er versnandi veður á Suðvesturlandi og inni á öræfum landsins. Ekki er búist við að storminn lægi fyrr en á morgun. Innlent 28.3.2006 16:49
Actavis kaupir rúmenskt lyfjafyrirtæki Actavis tilkynnti í dag um kaup á rúmenska lyfjafyrirtækinu Sindan, sem er sagt leiðandi samheitalyfjafyrirtæki í Evrópu hvað varðar sölu á krabbameinslyfjum. Kaupverðið er 12,8 milljarðar íslenskra króna og greitt með reiðufé. Innlent 28.3.2006 16:32
Tveir létust í óveðri í Þýskalandi Tveir létust í miklu óveðri í norðurhluta Þýskalands í gær. Þrjú hundruð þúsund manns voru án rafmagns í Hamburg. Erlent 28.3.2006 16:10
Hvassviðri slotað Eitthvað hefur hvassviðrinu slotað víða um land en aftakaveður var í Öræfum og á Skeiðarársandi fyrr í dag en þá fór þá vindhraðinn upp í 50 m/s í hviðum. Innlent 28.3.2006 16:07
Mál á hendur olíufélögum væntanlega þingfest fljótlega Mál Reykjavíkurborgar á hendur stóru olíufélögunum þremur, vegna meints ólögmæts samráðs þeirra, verður væntanlega þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok næstu viku. Þetta segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður sem fer með málið fyrir hönd borgarinnar. Innlent 28.3.2006 16:04
Starfsmannastjóri í Hvíta húsinu segir af sér Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að Andrew Card, starfsmannastjóri Hvíta hússins, hefði sagt af sér. Ástæðan er sögð dvínandi vinsældir forsetans. Card hefur verið starfsmannastjóri forsetans frá fyrsta degi. Erlent 28.3.2006 16:03
Actavis kaupir rúmenskt lyfjafyrirtæki Actavis Group tilkynnti í dag um kaup á rúmenska lyfjafyrirtækinu Sindan, sem er leiðandi samheitalyfjafyrirtæki í Evrópu í sölu á krabbameinslyfjum. Kaupverðið er 147,5 milljónir evra, jafnvirði 12,8 milljarða íslenskra króna. Kaupverðið er greitt með reiðufé. Viðskipti innlent 28.3.2006 15:29
Fons kaupir í Ticket Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson í Fons eru komnir með yfir 28 prósenta hlut í sænsku ferðaskrifstofukeðjunni Ticket. KB banki keypti sjö prósenta hlut líklega af næststærsta hluthafanum Skandia Liv og framseldi hann að hluta til Fons, sem er langstærsti eigandinn í Ticket. Viðskipti innlent 28.3.2006 15:17
Fyrrverandi ritstjóri Hér og nú sakfelldur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag ummæli, sem höfð voru um Bubba Morthens, í blaðinu Hér og nú, dauð og ómerk. Fyrrverandi ritstjóra blaðsins er gert að greiða Bubba 700 þúsund krónur í bætur auk hálfrar milljónar í málskostnað. 365 - prentmiðlar, útgefendur blaðsins, eru sýknaðir af kröfum Bubba. Innlent 28.3.2006 15:13
Fannst látinn Maðurinn sem leitað hefur verið að í dag fannst á þriðja tímanum í dag í bifreiðs sinni í grennd við Flúðir. Víðtæk leit var gerð að manninum sem var 22 ára. Innlent 28.3.2006 15:10
Beðið átekta varðandi björgunarflug Sif, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, er á Akureyri en henni tókst að lenda þar um kl. 13:18 en hún var á leið að sækja fárveikan sjómann um borð í norskt selveiðiskip. Þyrlan lenti fyrst á Dalvík vegna lélegs skyggnis en þegar vélin hafði verið þar í um tvær mínútur rofaði til og henni tókst að komast inn til Akureyrar. Áhöfn Sifjar bíður nú eftir ákvörðun um framhaldið en ráðgert er að meta stöðuna kl. 16. Innlent 28.3.2006 14:57
Hagnaður Jeratúns 7,29 milljónir Rekstrarhagnaður Jeratúns ehf., einkafyrirtækis í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, nam 7,29 milljónum króna á síðasta ári. Eigið fé nam 8,34 milljónum króna, samkvæmt ársuppgjöri fyrirtækisins. Starfsemi fyrirtækisins var í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til þess voru í skilum. Viðskipti innlent 28.3.2006 14:47
Vilja að dómstólar fjalli um umhverfismat vegna Norðlingaölduveitu Áhugahópur um verndun Þjórsárvera hefur stefnt íslenska ríkinu, Skipulagsstofnun og Landsvirkjun og vill að dómstólar skeri úr um það hvort umhverfismat vegna Norðlingaölduveitu hafi verið rétt. Hópurinn hyggst hefja fjársöfnun vegna málarekstrarins þar sem lögum um gjafsókn í tilvikum sem þessum hefur verið breytt. Innlent 28.3.2006 13:43
Fjölmenn mótmæli í borgum og bæjum Frakklands Þúsundir óeirðalögreglumanna vakta nú götur Parísar þar sem búist er við miklum mótmælum í dag vegna fyrirhugaðra breytinga á atvinnulöggjöf landsins. Erlent 28.3.2006 13:32
Afgana sem snerist til kristni sleppt úr haldi Afgönskum manni sem til stóð að taka af lífi fyrir að snúast til kristni, hefur verið sleppt úr haldi. Dómsmálaráðherra Afganistans staðfesti í morgun að maðurinn hefði verið látinn laus. Mál mannsins hefur vakið mikla athygli um allan heim og stjórnmálaforingjar á Vesturlöndum létu margir í ljós mikla reiði vegna málsins. Erlent 28.3.2006 12:46
Tvísýnt með björgunaraðgerðir fyrir norðan land Tvísýnt er með björgunaraðgerðir Landhelgisgæslunnar fyrir norðan land þar sem sækja á fárveikan mann um borð í norskt selveiðiskip. Fokkervél Landhelgisgæslunnar og TF SIF lögðu af stað í björgunarleiðangur frá Reykjavík um ellefuleytið í morgun eftir að beiðni barst um aðstoð þar sem skipið var statt í hafís 190 sjómílur norður af Skaga. Innlent 28.3.2006 13:25
Erfitt gæti reynst að mynda starfhæfa stjórn í Ísrael Tuttugu og fimm þúsund her- og lögreglumenn, gráir fyrir járnum vakta alla kjörstaði í Ísrael, þar sem sögulegar þingkosningar fara fram í dag. Fylgi við Kadima flokkinn virðist vera að minnka og erfitt gæti reynst að mynda starfhæfa ríkisstjórn að loknum kosningum. Erlent 28.3.2006 12:41
Sækja fársjúkann mann í norskt selveiðiskip Fokkervél Landhelgisgæslunnar og TF LÍF, minni þyrla Gæslunnar, lögðu af stað frá Reykjavík fyrir rúmri klukkustund til móts við norskt selveiðiskip, en þar er fársjúkur maður um borð. Tvær þyrlur varnarliðsins eru einnig í viðbragðsstöðu ef á þarf að halda. Innlent 28.3.2006 12:26
Aftakaveður á Suðausturlandi Aftakaveður er í vindhviðum í Öræfum og á Skeiðarársandi þar sem vindhraðinn hefur farið upp í 50 metra á sekúndu í hviðum. Nokkrir bílar hafa skemmst í sand- og malarfoki á Skeiðarársandi í morgun. Innlent 28.3.2006 12:23