Fréttir

Fréttamynd

Hafði tilkynningaskyldu ytra

Rúmlega tveir þriðju hlutar hagnaðar Hauck & Aufhäuser árið 2004 eru vegna söluhagnaðar af Búnaðarbanka. Þýski bankinn hafði tilkynningarskyldu vegna kaupanna hjá þýska fjármálaeftirlitinu. Veltureikningur að stærstum hluta eign í Búnaðarbanka.

Innlent
Fréttamynd

Mannslát og grunur um nauðganir

Grunur leikur á að unglingsstúlku hafi verið nauðgað í Ólafsvík í nótt eftir að hafa verið byrlað ólyfjan. Karlmaður er í haldi lögreglunnar á Höfn í Hornafirði grunaður um aðra nauðgun. Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í Ketillaugarfjalli við Höfn í dag. Ekki er vitað hvað varð honum að aldurtila.

Innlent
Fréttamynd

Gengið gegn fátækt

Rúmlega hundrað þúsund manns mynduðu keðju utan um Edinborg í gær og kröfðust þess að valdamestu þjóðir heims aðstoðuðu ríki Afríku til að losna undan oki fátæktar. Myndaði keðjan hvítan hring, sem er merki alþjóðlegrar baráttu gegn fátækt.

Erlent
Fréttamynd

Kínversk sendinefnd gekk af fundi

Kínversk sendinefnd gekk af fundi með embættismönnum í heilbrigðisráðuneytinu í gær. Ástæðan er heimsókn taívanskrar sendinefndar til Íslands þar sem utanríkisráðherrann er með í för.

Innlent
Fréttamynd

Nauðgun kærð á Humarhátíðinni

Nauðgun hefur kærð á Humarhátíðinni sem fram fer á Höfn í Hornafirði um helgina. Að sögn Jóhanns K. Jóhannssonar hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, sem sér um gæslu á hátíðinni, er málið upplýst.  

Innlent
Fréttamynd

Fékk fiskikar í höfuðið

Karlmaður fékk fiskikar í höfuðið á Arnarstapa í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu og stóð til að fljúga eftir manninum en eftir nánari rannsókn var ákveðið að flytja hann til Reykjavíkur með sjúkrabíl og gekkst hann undir aðgerð í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

40-50 teknir fyrir hraðakstur

Á milli fjörutíu og fimmtíu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur af lögreglunni á Akureyri í gær og í nótt. Sá sem mældist á mestum hraða var á rúmlega hundrað og fjörutíu kílómetra hraða á þjóðvegi þar sem hámarkshraðinn er níutíu. Þá stöðvaði lögreglan í Ólafsvík tíu manns fyrir hraðakstur í gær og tvo fyrir ölvunarakstur.

Innlent
Fréttamynd

Berja konur til að sýna vald sitt

Svíar berja konurnar sínar til að sýna þeim hver ræður því þeir hafa misst stjórn á þeim utan heimilisins. Þetta segir sendiherra Svía í Brasilíu, Margareta Winberg, áður jafnréttisráðherra, í viðtali við brasilískt vikurit.

Erlent
Fréttamynd

Tvær lestir af teinunum

Sex öryggisverðir létust og tólf slösuðust í Tyrklandi í gær þegar tvær lestir fóru út af teinunum. Orsök slyssins eru kunn, kúrdneskir uppreisnarmenn sprengdu tvær sprengjur á lestarteinum, undir lestunum, með þessum afleiðingum. Þriðja sprengjan fannst ekki langt frá þar sem fyrsta sprengjan sprakk og tókst að aftengja hana.

Erlent
Fréttamynd

Hvenær er best að gifta sig?

Það er best að gifta sig 31. júlí, 3. ágúst eða 14. ágúst. Að sama skapi er 10. júlí afleitur dagur til veisluhalda. Veðurstofan hefur nú gert úttekt á veðrinu einstaka daga að sumarlagi klukkan þrjú eftir hádegi, allt frá árinu 1949, svo að fólk viti nú hvað sagan segir um líkur á góðu veðri á stóra daginn.

Innlent
Fréttamynd

Skessuhorn kaupir hestavef

Skessuhorn ehf. á Vesturlandi á hefur keypt vefmiðilinn www.847.is. Magnús Magnússon, framkvæmdastjóri Skessuhorns, segir að hann sé án efa einn vinsælasti vefur landsins á sviði hestamennsku og tengds efnis og bindur því miklar vonir við hann.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefni á færeyskum dögum

Á föstudagskvöld stöðvaði lögreglan á Snæfellsnesi nokkra bíla við Lyngbrekku í umferðareftirliti og gerði leit í þremur. Með hjálp fíkniefnahundar fundust níu grömm af amfetamíni, sautján e-töflur og eitthvað af hassi

Innlent
Fréttamynd

Milljónir fylgdust með

Í gær tóku þjóðir um allan heim höndum saman og héldu tónleika í níu borgum til að vekja athygli á neyð þróunarlandanna og safna pening þeim til styrktar. Tónleikarnir hófust í Tokýó, en einnig voru haldnir tónleikar í London, París, Róm, Moskvu, Fíladelfíu, Berlín, Barrie í Kanada og í Jóhannesarborg.  

Erlent
Fréttamynd

Enn ein sjálfsmorðsprengjuárásin

Tuttugu manns létu lífið í enn einni sjálfsmorðsprengjuárásinni í Bagdad í morgun. Flestir hinna látnu voru menn sem voru að skrá sig í lögregluna en uppreisnarmenn hafa undanfarið sérstaklega beint spjótum sínum að þeim hópi. Með því vilja þeir hræða menn svo færri þori að skrá sig.

Erlent
Fréttamynd

Lausn í sjónmáli

Háskólinn á Akureyri og Menntamálaráðuneytið hafa gert með sér drög að samkomulagi til að leysa fjárhagsvanda Háskólans.

Innlent
Fréttamynd

Kona vígir sig til prests

Frönsk kona tók þá áhættu á að verða gerð útlæg úr kaþólsku kirkjunni með því að vígja sjálfa sig til prests. Genevieve Beney og nokkrar aðrar konur héldu litla athöfn á báti í þeim tilgangi að draga athygli að reglu kaþólsku kirkjunnar að banna konum að vera prestar.

Erlent
Fréttamynd

Jón Gerald stefnir Jóni Ásgeiri

Jón Gerald Sullenberger ætlar að stefna Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, fyrir að opinbera bréf sem hann sendi Ríkislögreglustjóra á fimmtudaginn. Þetta kom fram í Kastljósinu í gær þar sem Jón Gerald vísaði til samkomulags sem hann og Jón Ásgeir hefðu gert um að tjá sig ekki opinberlega um málið.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkur stærstur

Samkvæmt skoðanakönnun Gallup sem gerð var í júní breytist fylgi flokkanna lítið frá því í maí. Fylgi er mest við Sjálfstæðisflokkinn tæplega 38 prósent, sem er það sama og í síðasta mánuði.

Innlent
Fréttamynd

G8 kosti afrískan her

Leiðtogar afrísku þróunarsamtakanna ætla að leggja það til við leiðtoga G8-ríkjanna á fundi þeirra í næstu viku að þeir kosti afrískan her. Wiseman Nkuhlu, forseti Nepap, afrísku þróunarsamtakanna, segir nauðsynlegt fyrir Afríku að ákveða sjálf markmið og leiðir til að berjast við fátækt, vanþróun og stríð.

Erlent
Fréttamynd

Önnur Dornier í flota Landsflugs

Önnur Dornier 328 flugvél hefur bæst í flota Landsflugs en vélin verður notuð í innanlandsflugi. Forsvarsmenn félagsins segja mikla spurn eftir leiguflugi innanlands eina helstu ástæðuna fyrir kaupunum á vélinni.

Innlent
Fréttamynd

Aukið samstarf gæslunnar við BNA

Bandarískur aðmíráll boðar aukið samstarf bandarísku strandgæslunnar og Landhelgisgæslunnar hér á landi. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að nú þegar sé allnokkurt samstarf á milli gæslnanna, sérstaklega á sviði þjálfunar og menntunar, auk þess sem skipst sé á upplýsingum um skipaferðir. 

Innlent
Fréttamynd

Sprengju plantað á teinunum

Fimm létust og átta særðust þegar sprengja sprakk á lestarteinum í þann mund sem lest átti leið þar hjá í austurhluta Tyrklands í morgun. Hinir látnu eru allir hermenn sem og þrír hinna særðu. Að sögn Reuters-fréttastofunnar voru það skæruliðar á vegum aðskilnaðarsinna Kúrda sem komu sprengjunni fyrir.

Erlent
Fréttamynd

Helmingur starfseminnar úr landi?

Svo getur farið að danska flugfélagið Sterling, sem er í eigu Íslendinga, flytji um helming starfsemi sinnar frá Danmörku. Þá er ljóst að dregið verður úr sætaframboði á leiðum sem Sterling og Maersk, sem er í eigu sömu aðila, fljúga bæði á.  

Innlent
Fréttamynd

Sturla ekki í forstjórastólinn

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra mun ekki setjast í forstjórastól Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins en starfið hefur verið auglýst laust til umsóknar. Fram hefur komið í <em>Viðskiptablaðinu</em> að Sturla muni að öllum líkindum taka við starfinu en aðstoðarmaður ráðherra neitar því alfarið.

Innlent
Fréttamynd

Þriðja hákarlaárásin í vikunni

Hákarlar við Flórídastrendur hafa þrisvar ráðist á fólk á innan við viku. Í gær beit hákarl nítján ára gamlan austurrískan ferðamann sem var á sundi skammt undan ströndinni. Hann slapp þó vel miðað við aðstæður þar sem hákarlinn náði aðeins að bíta hann í ökklann.

Erlent
Fréttamynd

Skipverja í háska bjargað

Skipverja af Ísborgu SH var bjargað í gærkvöldi eftir að báturinn hálfsökk. Skipverjanum tókst ekki að kalla á hjálp en Bárður SH sem var nærstaddur lét vita af því sem var að gerast, sigldi síðan að Ísborginni og bjargaði skipverjanum um borð. Ísborgin var síðan tekin í tog og dregin í hálfu kafi inn á Arnarstapa.

Innlent
Fréttamynd

Menningarmálaráðherra í heimsókn

Valgerd Svarstad Haugland, menningarmálaráðherra Noregs, verður í opinberri heimsókn á Íslandi í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra dagana 3.-5. júlí. Í heimsókninni mun norski menningarmálaráðherrann heimsækja fjölmargar íslenskar menningarstofnanir, m.a. Þjóðminjasafnið, Vesturfarasetrið á Hofsósi og Hóla í Hjaltadal.

Innlent
Fréttamynd

Umtalsverðar kjarabætur

Sjúkraliðafélag Íslands hafa skrifað undir kjarasamning við ríkið, og felur hann í sér umtalsverðar kjarabætur fyrir sjúkraliða.

Innlent
Fréttamynd

Tuttugu og sex létust

26 létust og 50 slösuðust í sjálfsmorðsárásum í Bagdad og Hillah í Írak í gær. Einn sprengjumannanna sprengdi sig í loft upp í hópi áhorfenda og lögreglu sem hafði safnast saman þar sem annar hafði sprengt sig nokkru áður.

Erlent
Fréttamynd

Vilja ræða olíuverð á fundi G8

Þjóðverjar munu leggja áherslu á að heimsmarkaðsverð á olíu verði lækkað á fundi G8, leiðtoga átta stærstu iðnríkja heims, í næstu viku. Í tilkynningu sem þýska ríkistjórninn sendi frá sér í dag segir að fyrir utan málefni Afríku, sem rædd verða ítarlega á fundinum, sé afar mikilvægt að ræða olíverðið sem fari síhækkandi því það snerti efnahag allrar heimsbyggðarinnar.

Innlent