Fréttir
Sýning og tilsögn í fluguköstum Fimm erlendir kastkennarar verða með kastsýningu og tilsögn í fluguköstum á Miklatúni í dag. Þar fer fremstur í flokki Henrik Mortensen sem er einhver besti flugukastari heims um þessar mundir. Innlent 13.10.2005 19:27
Spurning um hæfi Halldórs Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja Halldór Ásgrímsson hafa verið vanhæfan þegar gengið var frá sölu ríkisbankanna og vísa til lögfræðilegrar álitsgerðar sem meðlimir ríkisstjórnarinnar gera lítið með. Spurningum um vanhæfi Halldórs er ennþá ósvarað. Innlent 13.10.2005 19:27
Höfn: Hafast við í íþróttahúsinu Tæplega hundrað manns hafast nú við í íþróttahúsinu á Höfn í Hornafirði eftir að fólkið neyddist til að yfirgefa tjöld sín vegna vonskuveðurs. Lögregla, björgunarsveitir og starfsmenn Rauða krossins brugðust skjótt við og hjálpuðu fólki að taka niður tjöld sín og búnað og komast í skjól. Innlent 13.10.2005 19:27
Grunuðum nauðgara sleppt Lögreglan á Höfn í Hornafirði hefur sleppt manninum sem handtekinn var í gær vegna gruns um að hafa nauðgað konu í bænum í fyrrinótt. Konan kærði nauðgun til lögreglunnar og var maðurinn handtekinn í kjölfarið. Sökum ölvunar var ekki hægt að yfirheyra hann strax en það er búið nú og hefur honum verið sleppt. Rannsókn málsins heldur áfram. Innlent 13.10.2005 19:27
Óvíst með kaup á Somerfield Í breskum fjölmiðlum í gær var sagt frá því að Baugur hafi boðist til að draga sig út úr viðræðum um kaup á bresku verslanakeðjunni Somerfield í kjölfarið á kæru Ríkislögreglustjóra. Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs segir þetta rangt. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:27
Mikið neðansjávargos virðist hafið Mikið neðansjávargos virðist hafið skammt frá japönsku eyjunni Iwo Jima. Starfsmenn japönsku landhelgisgæslunnar sáu gufustrók rísa upp úr sjónum í gær og í könnunarflugi kom í ljós að hann náði kílómetra upp í loftið og vatnið virtist rauðleitt þar sem strókurinn kom upp. Erlent 13.10.2005 19:27
Ók á konu og flúði Ekið var á konu við Vaglaskóg í nótt og ökumaðurinn stakk síðan af. Þegar hann var kominn nokkuð frá vettvangi beið lögreglan á Akureyri eftir honum og gómaði hann. Þá var einnig ekið á mann á Flúðum seint í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:27
Vegurinn opnaður um níuleytið Vegurinn um Fagradal milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða mun verða opnaður um klukkan níu í kvöld að sögn Vegagerðarinnar. Unnið hefur verið að því frá því upp úr hádegi að ryðja veginn eftir að aurskriður féllu á hann. Ökumönnum er þó bent á að fara varlega því fleiri aurskriður gætu fallið. Innlent 13.10.2005 19:27
Skessuhorn kaupir vefinn 847.is Fyrirtækið Skessuhorn ehf, sem gefur út héraðsfréttablaðið Skessuhorn á Vesturlandi og vefmiðilinn skessuhorn.is, hefur fest kaup á hestavefnum 847.is. Innlent 13.10.2005 19:27
GSM-sendir Og Vodafone úti GSM-sendir hjá Og Vodafone er úti á Egilsstöðum vegna bilunar í ljósleiðara á Austurlandi. Þá hefur bilunin einnig áhrif á ADSL-notendur á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og á Djúpavogi. Innlent 17.10.2005 23:41
Sigur Rós syngur á íslensku Upptökum á nýrri geislaplötu hljómsveitarinnar Sigur Rósar er lokið en þær hafa staðið með hléum síðasta eina og hálfa árið. Innlent 13.10.2005 19:27
Ljósleiðari rofnaði fyrir austan Ljósleiðari Símans rofnaði um hádegið í dag, að því er talið er vegna aurskriðunnar sem féll á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Bilunin hefur engin áhrif á talsímasamband Símans á þessu svæði. Aftur á móti liggur útsending Ríkisjónvarpsins niðri en útsending Ríkisútvarpsins er inni. Innlent 13.10.2005 19:27
Bandarískur njósnari slapp Bandarískum njósnara tókst að komast undan óvinum sínum í austurhluta Afganistan. Maðurinn er hluti sérsveitarhóps sem hefur verið týndur síðan á þriðjudaginn, samkvæmt fréttastofu CNN. Erlent 13.10.2005 19:27
Páfi vongóður um fund G8 Benedikt páfi segist vona að fundur leiðtoga G8-ríkjanna, stærstu iðnríkja heims, í næstu viku muni verða til þess að gripið verði til árangursríkra aðgerða til að sporna við fátækt og hungri í heiminum, sérstaklega í Afríku. Þetta kom fram í vikulegri predikun hans á St. Péturstorgi í dag. Erlent 13.10.2005 19:27
Mannránið hefndaraðgerð? Talið er að ránið á sendiherra Egyptalands í Írak í gærkvöldi hafi verið hefndaraðgerð. Hann hafði aðeins verið nokkrar vikur í starfi. Erlent 13.10.2005 19:27
Gæði vodkans versnuðu með frelsinu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill að ríkið taki aukna ábyrgð á vodkaframleiðslu þar í landi. Hann segir að eftir að áfengisframleiðsla var gefin frjáls séu gæði vörunnar hreint ekki eins mikil. Erlent 13.10.2005 19:27
Samfylkingin tilnefnir síðust Samfylkingin hefur tilnefnt fulltrúa í nefnd um endurskipulagningu lagalegrar umgjarðar um stjórnmálastarfsemi á Íslandi, síðust flokka á Alþingi. Dregist hefur í meira en mánuð að halda fyrsta fund í nefndinni, þar sem beðið var tilnefningar frá Samfylkingunni, en nú er undirbúningur að starfsemi nefndarinnar hafinn. Innlent 13.10.2005 19:27
Varað við veðurofsa á Kjalarnesi Ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjóli sínu og endaði utan vegar þegar skyndileg vindhviða reið yfir í Kollafirði fyrir stundu. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík er talið að meiðsl mannsins séu minniháttar. Veðurofsi er þessa stundina á Kjalarnesi og beinir lögregla þeim tilmælum til ökumanna að fara mjög varlega. Bílar með tjaldvagna og fellihýsi í eftirdragi gætu jafnvel þurft að bíða á meðan veðrið gengur yfir.</font /> Innlent 13.10.2005 19:27
Gestir Humarhátíðar leituðu skjóls All margir gestir humarhátíðar á Höfn þurftu aðstoð frá björgunarsveitum við að taka saman föggur sínar þegar veðrið tók að versna í gær morgunn. Þar sem ekki var ráðlagt að vera á ferðinni vegna veðurs leituðu um 80 manns skjóls í íþróttahúsinu og biðu þar eftir að veðrinu slotaði. Innlent 13.10.2005 19:27
Mótmælin merkilegri en tónleikar Helgin var undirlögð viðburðum sem hafa áttu áhrif á leiðtoga átta helstu iðnríkja heims sem funda á miðvikudaginn. Í Edinborg í Skotlandi gengu yfir tvö hundruð þúsund manns hring í borginni til að hvetja leiðtogana til að grípa til aðgerða gegn hungri og fátækt í Afríku. Erlent 13.10.2005 19:27
Lokaður vegna aurskriðu Vegurinn um Fagradal milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar er lokaður vegna aurskriðu við Mýrarbotna. Slæmt veður er á þessum slóðum, rigning og rok, og óljóst hvenær hægt verður að opna veginn aftur. Innlent 13.10.2005 19:27
Þrjár sprengjur sprungu í Pristina Þrjár sprengjur sprungu í miðborg Pristina í Kosovo í nótt. Sprengjurnar sprungu nær samtímis við húsnæði Sameinuðu þjóðanna, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og héraðsstjórnarinnar. Erlent 13.10.2005 19:27
Sprengju plantað á teinunum Fimm létust og átta særðust þegar sprengja sprakk á lestarteinum í þann mund sem lest átti leið þar hjá í austurhluta Tyrklands í morgun. Hinir látnu eru allir hermenn sem og þrír hinna særðu. Að sögn Reuters-fréttastofunnar voru það skæruliðar á vegum aðskilnaðarsinna Kúrda sem komu sprengjunni fyrir. Erlent 13.10.2005 19:27
Helmingur starfseminnar úr landi? Svo getur farið að danska flugfélagið Sterling, sem er í eigu Íslendinga, flytji um helming starfsemi sinnar frá Danmörku. Þá er ljóst að dregið verður úr sætaframboði á leiðum sem Sterling og Maersk, sem er í eigu sömu aðila, fljúga bæði á. Innlent 13.10.2005 19:27
Sturla ekki í forstjórastólinn Sturla Böðvarsson samgönguráðherra mun ekki setjast í forstjórastól Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins en starfið hefur verið auglýst laust til umsóknar. Fram hefur komið í <em>Viðskiptablaðinu</em> að Sturla muni að öllum líkindum taka við starfinu en aðstoðarmaður ráðherra neitar því alfarið. Innlent 13.10.2005 19:27
Þriðja hákarlaárásin í vikunni Hákarlar við Flórídastrendur hafa þrisvar ráðist á fólk á innan við viku. Í gær beit hákarl nítján ára gamlan austurrískan ferðamann sem var á sundi skammt undan ströndinni. Hann slapp þó vel miðað við aðstæður þar sem hákarlinn náði aðeins að bíta hann í ökklann. Erlent 13.10.2005 19:27
Skipverja í háska bjargað Skipverja af Ísborgu SH var bjargað í gærkvöldi eftir að báturinn hálfsökk. Skipverjanum tókst ekki að kalla á hjálp en Bárður SH sem var nærstaddur lét vita af því sem var að gerast, sigldi síðan að Ísborginni og bjargaði skipverjanum um borð. Ísborgin var síðan tekin í tog og dregin í hálfu kafi inn á Arnarstapa. Innlent 13.10.2005 19:27
Menningarmálaráðherra í heimsókn Valgerd Svarstad Haugland, menningarmálaráðherra Noregs, verður í opinberri heimsókn á Íslandi í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra dagana 3.-5. júlí. Í heimsókninni mun norski menningarmálaráðherrann heimsækja fjölmargar íslenskar menningarstofnanir, m.a. Þjóðminjasafnið, Vesturfarasetrið á Hofsósi og Hóla í Hjaltadal. Innlent 13.10.2005 19:27
Umtalsverðar kjarabætur Sjúkraliðafélag Íslands hafa skrifað undir kjarasamning við ríkið, og felur hann í sér umtalsverðar kjarabætur fyrir sjúkraliða. Innlent 13.10.2005 19:27
Tuttugu og sex létust 26 létust og 50 slösuðust í sjálfsmorðsárásum í Bagdad og Hillah í Írak í gær. Einn sprengjumannanna sprengdi sig í loft upp í hópi áhorfenda og lögreglu sem hafði safnast saman þar sem annar hafði sprengt sig nokkru áður. Erlent 13.10.2005 19:27