Fréttir

Fréttamynd

Rán á sendiherra veikir samskipti

Ránið á sendiherra Egyptalands í Írak um helgina mun hafa veruleg áhrif á samskipti Íraka við aðrar Arabaþjóðir að mati írakskra stjórnmálamanna.

Erlent
Fréttamynd

Langt í þingfestingu í Baugsmálinu

Einn og hálfur mánuður líður frá því að sakborningum í Baugsmálinu eru birtar ákærur og málið er þingfest.  Ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar eru báðir komnir í frí og er það líkleg skýring á þessum langa tíma. Þegar Sindri Sindrason spurði dómsmálaráðherra hvort þetta teldust ásættanleg vinnubrögð lauk símtalinu skyndilega.

Innlent
Fréttamynd

Mikil spenna í Edinborg

Mikil spenna ríkir í Edinborg þar sem þúsundir mótmælenda hafa komið saman til að mótmæla fundi leiðtoga G-8 ríkjanna, átta helstu iðnríkja heims.

Erlent
Fréttamynd

Veikri fjölskyldu vísað úr landi

Flóttamálaráðherra Danmerkur, Rikke Hvilshöj, ætlar sjálf að hlutast til um að geðsjúkri fjölskyldu verði vísað úr landi og send til síns heims, í Kosovo. Danskir fjölmiðlar greina frá þessu og vekja athygli á því að Danmörk sé samkvæmt reglum Sameinuðu þjóðanna skuldbundin til að vísa ekki geðsjúkum úr landi geti þeir ekki hlotið viðeigandi meðferð í heimalandi sínu.

Erlent
Fréttamynd

Bush varar Blair við væntingum

Tony Blair ætti ekki að búast við neinum greiðum á fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims. Þetta segir George Bush og segir stuðning Blairs við Íraksstríðið alls ekki þýða að hann fái eitthvað í staðinn.

Erlent
Fréttamynd

Orka jarðar

Landsmót skáta 2005 fer fram á Úlfljótsvatni 19. til 26. júlí næstkomandi en það er haldið þriðja hvert ár. Landsmótið er ein stærsta útisamkoma sem haldin er á Íslandi og búast skipuleggjendur mótsins við um 4-5000 manns alla vikuna.

Innlent
Fréttamynd

Brúðkaupi bjargað með farsímum

Indverskir elskendur sem ætluðu að halda brúðkaup sitt í Bombei um helgina, létu það ekki aftra sér að brúðguminn komst ekki til athafnarinnar í tæka tíð vegna mikilla flóða og vegaskemmda á leiðinni til Bombei.

Erlent
Fréttamynd

Segir fjárfesta ekki hafa áhyggjur

Stjórnarformaður Baugs segir fjárfesta og samstarfsmenn fyrirtækisins erlendir hafa traust á fyrirtækinu og stjórnendum þess, þrátt fyrir útgáfu ákæra í Baugsmálinu hér heima. Forsvarsmenn Baugs funduðu með viðskiptafélögum í London í gær.

Innlent
Fréttamynd

Bush vill ekki nýjan Kyoto samning

Bandaríkjamenn munu ekki semja um að draga úr gróðurhúsa lofttegundum á fundi leiðtoga G átta iðnríkjanna, sem hefst í Skotlandi á miðvikudaginn. Þetta sagði George Bush Bandaríkjaforseti í viðtali við breska sjónvarpsstöð í gær.

Erlent
Fréttamynd

Mótmæli í Gleneagle

Það eru ekki einungis þjóðarleiðtogar sem mættir eru í Gleneagles í Skotlandi: Þar eru þúsundir mótmælenda einnig á ferð. Lögreglu lenti saman við fylgifiska þeirra, stjórnleysingja og andstæðinga hnattvæðingar.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast skattalækkunar á bensín

Félag íslenskra bifreiðaeigenda ætlar að fara fram á við íslensk stjórnvöld að dregið verði úr skattlagningu á eldsneyti í ljósi síhækkandi heimsmarkaðsverðs.

Innlent
Fréttamynd

Mikill munur á matarverði

Mikill munur var á hæsta og lægsta verði margra vörutegunda í verðkönnun sem Alþýðusamband Íslands framkvæmdi í byrjun mánaðarins.

Innlent
Fréttamynd

Sótt um lóðir í Þingahverfi

Á milli tvö og þrjú þúsund manns sóttu um lóðir fyrir rúmlega 200 íbúðir í landi Kópavogs, svokölluðu Þingahverfi á Vatnsenda. Byrjað var að úthluta gögnum vegna lóðanna fyrir þremur vikum, en frestur til að skila inn gögnum rann út klukkan þrjú í dag. Að sögn fulltrúa á skrifstofu bæjarskipulags Kópavogs er gert ráð fyrir að niðurstða liggi fyrir í ágúst.

Innlent
Fréttamynd

KPMG ver endurskoðanda Baugs

Það er mat KPMG endurskoðunar, að endurskoðandi félagsins, sem áritaði ársreikninga Baugs fyrir árin 2000 og 2001 hafi sinnt starfsskyldum í samræmi við lög, en hann hefur verið ákærður fyrir lögbrot. 

Innlent
Fréttamynd

Gassprenging í tjaldvagni

Roskin hjón brenndust á höndum og andliti þegar gaskútur sprakk inni í tjaldvagna, sem þau voru í skammt frá Bjarkarlundi í Reykhólasveit í gærkvöldi. Svo vel vildi til að hjúkrunafræðingur var í grenndinni og gat komið þeim strax til hjálpar og kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja fólkið til Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Dísilolía dýrari en bensín

Dísilolía er nú orðin dýrari en bensín eftir síðustu hækkanir olíufélaganna Olís, Esso, og Skeljungs í gær en þá hækkuðu öll verð á dísilolíu um eina krónu á hvern lítra.

Innlent
Fréttamynd

Barði niður bílstjóra

22 ára gamall maður var í gær dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir líkamsárás sem átti sér stað snemma á laugardagsmorgni í febrúar í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Framboð til nýrrar stjórnar í FL

Framboð til nýrrar stjórnar FL group hafa borist Kauphöll Íslands og verður stjórnarkjörið haldið á hluthafafundi félagsins næstkomandi laugardag.

Innlent
Fréttamynd

Læknar í Bretlandi lélegir í ensku

Lífi sjúklinga í Bretlandi er stefnt í hættu, vegna slakrar enskukunnáttu mörg þúsund lækna í landinu, að mati forsvarsmanna bresku læknasamtakanna. Læknar sem koma úr löndum utan Evrópusambandsins þurfa að sýna fram á góða enskukunnáttu til þess að fá að starfa í löndum Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Fundu eiturlyf, umbúðir og búnað

Lögregla fann þrjú kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni við húsleit á lögheimili manns í Reykjavík síðasta þriðjudag. Þá fundust fyrr um morguninn ætluð íblöndunarefni, umbúðir og búnaður sem lögregla ætlar að notaður hafi verið til að pakka fíkniefnum á dvalarstað mannsins.

Innlent
Fréttamynd

Íslenska vinsæl hjá útlendingum

Í dag, mánudaginn 4. júlí hefst fjögurra vikna alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku í Háskóla Íslands. Námskeiðið er einkum ætlað erlendum háskólastúdentum. Stofnun Sigurðar Nordals gengst fyrir námskeiðinu í samvinnu við hugvísindadeild Háskóla Íslands og annast skipulagningu þess.

Innlent
Fréttamynd

Veiða má 39 hrefnur

Veiða má allt að 39 hrefnur í ár samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Náist það verður búið að veiða hundrað af tvö hundruð hrefnum sem veiða á samkvæmt hvalarannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunar.

Innlent
Fréttamynd

Ariel Sharon í hættu

Hætta er á að öfgamenn úr röðum þjóðernissinna reyni að ráða Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, af dögum, að mati Moshe Katsavs, forseta Ísraels. Hann telur að hörð andstaða rabbína í landnemabyggðum gyðinga á svæðum Palestínumanna geti aukið hörkuna í þjóðernissinnum enn frekar.

Erlent
Fréttamynd

Maður lést í umferðarslysi

Eldri maður lést í árekstri pallbíls og rútu við Minni-Borg í Grímsnesi laust eftir klukkan hálf tvö í gærdag. Þrír farþegar rútunnar meiddust og voru fluttir á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykavík til skoðunar. Maðurinn sem lést ók pallbílnum og var einn á ferð. Talið er að hann hafi látist samstundis.

Innlent
Fréttamynd

Hlutabréf greidd í dag

Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og aðrir lykilstjórnendur sem keyptu nýverið hlutabréf í bankanum fyrir þrjá komma tvo milljarða króna eiga að greiða fyrir kaupin í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Viðgerðum ekki nærri lokið

Viðgerðir eru í fullum gangi á vegum sem skemmdust í vatnsviðrinu á Austurlandi um helgina. Vegurinn um Fagradal milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða fór í sundur eftir skriðu og að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar á Reyðarfirði gengur viðgerðin sæmilega.

Innlent
Fréttamynd

Lyf og heilsa styrkir PSÍ

Parkinsonssamtök Íslands, PSÍ, hafa gert tveggja ára samstarfssamning við Lyf og heilsu um að fyrirtækið verði aðalstyrktaraðili samtakanna.

Innlent
Fréttamynd

Tvíkjálkabrotinn fær bætur

Ungir bræður voru fyrir helgi dæmdir í hálfsársfangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að berja mann og sparka ítrekað í höfuð hans þar sem hann lá þannig að hann tvíkjálkabrotnaði og hlaut önnur meiðsl. Árásin átti sér stað á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri, aðfararnótt 17. júní í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Fólk veit lítið um ráðherra

Um það bil helmingur landsmanna hefur ekki hugmynd um hvaða ráðherra gegnir hvaða ráðherraembætti, samkvæmt könnun, sem Morgunblaðið greinir frá. Vitneskja fólks er greinilega mismunandi eftir aldri og menntun. Þannig veit fleira roskið fólk og menntað fólk hvaða ráðherra gegnir hvaða embætti og fleiri karlar hafa það á hreinu en konur.

Innlent