Fréttir
Mótmælendur reknir úr tjaldbúðum Mótmælendum við Kárahnjúka hefur verið gert að yfirgefa tjaldbúðir sínar fyrir hádegi í kjölfar harðra átaka við lögreglu í fyrrinótt. Mótmælendur eru mjög ósáttir við framgöngu lögreglu í átökunum þegar þrír Bretar voru handteknir. Ekki eru lagaheimildir fyrir því að vísa mönnunum þremur úr landi. Innlent 13.10.2005 19:35
Ný flugstöð á Bakka Ný flugstöð var í gær vígð við flugvöllinn á Bakka að viðstöddum samgönguráðherra og flugmálastjóra. Nýja flugstöðin er 250 fermetrar og leysir af hólmi fimm sinnum minni flugstöð sem byggð var árið 1997. Innlent 13.10.2005 19:35
Leyndi því að stjórnin væri fallin Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, virðist hafa ætlað að leyna því að meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarmanna í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn, samkvæmt skoðanakönnum Gallups fyrir Akureyrarbæ í vor. Innlent 13.10.2005 19:35
Blair segir Breta hvergi hvika Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að bresk stjórnvöld myndu ekki "hvika svo mikið sem þumlung" fyrir hryðjuverkamönnum. Lögregla upplýstu að tveir mannanna sem eftirlýstir eru fyrir misheppnuðu tilræðin í síðustu viku séu löglegir innflytjendur sem fluttu á barnsaldri til Bretlands frá Sómalíu og Erítreu. Erlent 13.10.2005 19:35
Meirihlutinn tapar fylgi Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn á Akureyri tapa umtalsverðu fylgi samkvæmt könnun IMG Gallup en halda þó meirihlutanum í bæjarstjórn. Listi fólksins á Akureyri missir báða bæjarfulltrúa sína en Samfylkingin og Vinstri grænir sækja verulega á. Innlent 13.10.2005 19:35
Morðingi Gogh í lífstíðarfangelsi Lífstíðardómur var í morgun kveðinn upp yfir Mohammed Bouyeri sem játaði að hafa drepið hollenska kvikmyndagerðarmanninn Theo van Gogh. Hann kvaðst myndu gera slíkt hið sama á ný, hefði hann til þess tækifæri Erlent 13.10.2005 19:34
Mótmælendur verða kærðir Þrír Bretar voru handteknir við Kárahnjúka eftir að átök brutust út milli mótmælenda og lögregluþjóna í fyrrinótt. Mótmælendurnir hlekkjuðu sig við vinnuvélar, unnu spjöll á bifreiðum og veittust að lögreglu að sögn sýslufulltrúa á Egilsstöðum. Innlent 13.10.2005 19:35
Álagningarseðlar sendir út Skattstjórar landsins leggja fram álagningarskrár á föstudag og sama dag verða 230 þúsund álagningarseðlar vegna síðasta árs sendir út. Mikill meirihluti framteljenda töldu fram rafrænt og geta þeir frá og með morgundeginum leitað upplýsinga um sína álagningu með rafrænum hætti. Innlent 13.10.2005 19:34
Hæfustu lifa af í Surtsey Fjölmargar lífverur hafa numið land eða skotið upp kolli í Surtsey frá því eyjan reis úr hafi fyrir fjörutíu og einu ári. Sumar dafna vel meðan aðrar verða að hörfa og enn aðrar deyja drottni sínum.</font /> Innlent 17.10.2005 23:42
Hinir raunverulegu hryðjuverkamenn Hundruð ættingja og vina mannsins sem lögreglan í Lundúnum skaut gengu um götur heimabæjar hans í Brasilíu í gær og mótmæltu afsökunarbeiðni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, sem þeir sögðu ekki vera nógu góða. Á spjöldum sem fólkið hélt á lofti stóð að breska lögreglan væru hinir raunverulegu hryðjuverkamenn. Erlent 13.10.2005 19:34
Klikkaður í rúminu eða nauðgari? Ertu klikkaður í rúminu eða bara ósköp venjulegur nauðgari? Farin er af stað herferð gegn nauðgunum vegna verslunarmannahelgarinnar sem óðum nálgast en aldrei er of varlega farið. Innlent 13.10.2005 19:35
Tekinn á 208 km hraða Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut í nótt eftir að bíll hans hafði mælst á tvö hundruð og átta kílómetra hraða og próflausir guttar stútuðu meðal annars brunahana í Þorlákshöfn svo upp kom gosbrunnur. Innlent 13.10.2005 19:34
Samningur undirritaður við Breta Forstjóri Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, skrifaði nýlega undir endurnýjun á tvíhliða samningi við Bresku sjómælingarnar (UKHO). Þar var m.a. bætt við samþykkt um að Ísland gangi til liðs við IC-ENC (International Centre for ENCs) og að IC-ENC sjái um dreifingu á rafrænum sjókortum fyrir Sjómælingar Íslands sem eru deild innan Landhelgisgæslunnar. Innlent 13.10.2005 19:35
Sharm el-Sheik: Ekki Pakistanar Pakistanar voru ekki viðriðnir hryðjuverkin í Sharm el-Sheik. Þetta sögðu talsmenn egypskra yfirvalda í morgun og vísuðu þar með á bug fregnum um að hópur pakistanstra hryðjuverkamanna tengdist árásunum sem kostuðu nærri því níutíu manns lífið um helgina. Erlent 13.10.2005 19:34
Skorinn á háls í skemmtiferðaskipi TF-LIF þyrla Landhelgisgæslunnar var í fyrrinótt kölluð að skemmtiferðaskipinu Sea Rose sem var á siglingu norður af landinu. Þyrlan var kölluð út til að sækja mann sem misst hafði mikið blóð eftir að hafa verið skorinn á háls í ryskingum um borð. Innlent 13.10.2005 19:35
Einn árásarmanna var Egypti Rannsóknarlögregla í Egyptalandi hefur borið kennsl á einn sjálfsmorðssprengjumannanna sem frömdu hryðjuverkaárásina í ferðamannabænum Sharm-el-Sheik við Rauðahaf í lok síðustu viku. Kvað hann vera Egypti að nafni Youssef Badran sem hafi verið í slagtogi við íslamskan öfgahóp. Egypska lögreglan tók í gær tugi manna til viðbótar til yfirheyrslu. Erlent 13.10.2005 19:35
Fólksfjölgun í Reykjanesbæ Íbúum í Reykjanesbæ hefur fjölgað um meira en 2,3 prósent frá áramótum og er íbúafjöldi bæjarins kominn yfir 11.200 manns. Þetta er þrátt fyrir að nýtt Tjarnarhverfi sé enn í byggingu og þangað séu fáir fluttir inn. Innlent 13.10.2005 19:35
17 ný tilfelli af sjúkdóminum Alls hafa nú 19 látist og 17 ný tilfelli greinst af dularfulla sjúkdóminum sem herjað hefur á bændur í suðurhluta Kína að undanförnu. Alls hafa 80 verið greindir með sjúkdóminn, sem hefur þó ekki fengið nafn, en allir virðast bændurnir hafa slátrað veikum svínum á undanförnum vikum. Erlent 13.10.2005 19:34
Leyfi mótmælenda afturkallað Prestseturssjóður hefur afturkallað leyfi mótmælenda við Kárahnjúka til að hafa lengur tjaldbúðir en sjóðurinn hefur yfirráð með landinu á þeim slóðum. Er þetta gert að beiðni Sýslumanns á Seyðisfirði í ljósi þess að mótmælendurnir hafi ekki farið fram með friðsamlegum hætti. Innlent 13.10.2005 19:35
Yngsta eyja í heimi Fjölmargir fræðingar telja lífríki á Surtsey einstakt rannsóknarefni vegna sérstöðu eyjarinnar og nú fyrir skemmstu lauk leiðangri lífræðinga á vegum Náttúrufræðistofnunar í eyjunni. En hvað er svona sérstakt við þessa eyju?</font /> Innlent 13.10.2005 19:35
Átök við Kárahnjúka í nótt Til átaka kom á milli lögreglumanna og mótmælenda við Kárahnjúka í nótt og voru tveir útlendingar handteknir og færðir í fangageymslur á Egilsstöðum. Mótmælendur reyndu að tefja fyrir farartækjum verktaka og eftir því sem fréttastofan kemst næst unnu þeir skemmdarverk á farartæki. Innlent 13.10.2005 19:34
Felldu nýgerðan kjarasamning Flugumferðarstjórar felldu nýgerðan kjarasamning við ríkið í atkvæðagreiðslu. Fjörutíu og níu voru honum andvígir en fjörutíu og tveir fylgjandi. Ekki liggur fyrir hvort flugumferðarstjórar ætli að undirbúa verkfallsaðgerðir í ljósi þessara úrslita. Innlent 13.10.2005 19:34
Brjálaðar ömmur vilja í herinn Brjáluðu ömmurnar í Tucson létu til sín taka í rétti í dag. Þær heimta að fá að ganga í herinn. Erlent 13.10.2005 19:35
Verður að efna ólöglega samninga? Verður að efna ólöglega samninga og sleppa þeir sem þá gera við öll viðurlög ef þeim tekst að fela brotið nógu lengi? Að því spyr Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður og vísar í niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Sá fær tugi milljóna í vasann, þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi úrskurðað samning þess efnis ólögmætan. Innlent 13.10.2005 19:35
Discovery skal í loftið Geimferjunni Discovery verður skotið á loft um hálfþrjú leytið í dag þó ekki hafi enn tekist að greina hvers vegna vandamál kom upp varðandi eldsneytistank þegar skjóta átti ferjunni á loft þann 13. júlí. Skynjari í eldsneytistanki bilaði þegar geimfararnir voru að ganga um borð og var þá hætt við geimskotið. Erlent 13.10.2005 19:34
60% óttast þriðju heimsstyrjöldina Sex af hverjum tíu Bandaríkjamönnum óttast þriðju heimsstyrjöldina. Þetta kemur fram í nýrri könnun. Erlent 13.10.2005 19:34
Landamæradeila Kanada og Danmerkur Kanadamenn og Danir eru að lenda í landamæradeilu um Hans-eyju, norðaustur af Grænlandi. Deilan tók nýja stefnu í síðustu viku eftir að Bill Graham, varnarmálaráðherra Kanada, steig þar á land og hermenn reistu kanadíska fánann, en danski fáninn var þar fyrir. Erlent 13.10.2005 19:34
Íhuga skuldbreytingu Vatnsveita Hafnarfjarðar og Fráveita Hafnarfjarðar gætu hagnast um 18 milljónir króna árlega ef langtímalán stofnananna yrðu endurfjármögnuð. Að þessari niðurstöðu kemst Áhættunefnd erlendra lána Hafnarfjarðarbæjar og var bókun þessa efnis samþykkt á bæjarráðsfundi í síðustu viku. Innlent 13.10.2005 19:34
Bygging sumarbústaða heldur áfram Ekkert hefur dregið úr byggingu nýrra sumarbústaða þrátt fyrir stóraukna fjárfestingu í íbúðarhúsnæði og að vextir af lánum til sumarbústaða séu talsvert hærri en af lánum til íbúðarhúsnæðis. Innlent 13.10.2005 19:34
Ólétt af syni djöfulsins Ítalskt par stal 50 þúsund evrum af 47 ára gamalli konu í borginni Palermo á Sikiley eftir að hafa fullvissað hana um að þau væru vampírur sem myndu gera hana ólétta af syni djöfulsins ef hún borgaði þeim ekki. Parið stal peningunum af konunni á fjögurra ára tímabili með því að selja henni pillur á 3000 evrur sem áttu að koma í veg fyrir óléttuna. Erlent 13.10.2005 19:34