Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Múlaþingi skrifuðu í dag undir málefnasamning og staðfestu myndun nýs meirihluta þar. Samningurinn er sagður byggja á sameiginlegri sýn um öflugt samfélaga, ábyrga fjármálastjórn, eflingu atvinnulífs og áframhaldandi uppbyggingar. Innlent 27.5.2026 12:53
Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. Innlent 27.5.2026 12:14
„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. Innlent 27.5.2026 12:03
Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði kynntu fyrir stundu málefnasamning sinn undir kjörorðunum: „Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði.“ Innlent 26. maí 2026 20:55
Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Þórður Þórarinsson er nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þórður er ráðinn af nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Innlent 26. maí 2026 17:58
Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking hafa boðað til kynningarfundar klukkan 18:10, þar sem málefnasamningur nýs meirihluta verður kynntur auk nýs bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Innlent 26. maí 2026 17:42
Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekkert heyrt í Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, síðan á föstudag. Ekki er von á tíðindum af meirihlutaviðræðum í borginni í dag en dregið gæti til tíðinda á morgun. Hildur var fjarverandi á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar í dag. Innlent 26. maí 2026 17:20
Kveðjustund í ráðhúsinu Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu fór fram í dag. Gríðarleg endurnýjun er í borgarstjórn en sextán borgarfulltrúar hverfa á braut og sextán nýir koma inn í þeirra stað. Lífið 26. maí 2026 15:34
Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Úrskurðarnefnd kosningamála barst kæra vegna sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík daginn eftir þær þar sem þess var krafist að kosningarnar í heild yrðu úrskurðaðar ógildar, vegna þess að Ríkisútvarpið sýndi kjörseðil í beinni útsendingu á kosninganótt. Nefndin féllst ekki á þá kröfu. Innlent 26. maí 2026 14:55
Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylkingin í Hafnarfirði náðu samkomulagi um meirihlutasamstarf í gær og nú stendur til að kynna málefnasamning á blaðamannafundi í Hamranesi klukkan fimm í dag. Valdimar Víðisson oddviti Framsóknarflokksins er sáttur við störf sín sem bæjarstjóri en finnst miður að vera ekki á leið í meirihluta. Innlent 26. maí 2026 13:52
Heiða greinir frá morðhótunum Heiða Björg Hilmisdóttir fráfarandi borgarstjóri hefur verið hótað lífláti og fengið herta öryggisgæslu síðan hún tók við embættinu. Hún segir gengið hafa á ýmsu og segist hugsi yfir því hvernig talað sé um kjörna fulltrúa hér á landi. Innlent 26. maí 2026 13:17
Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu hefst klukkan 12. Kveðjuræður borgarfulltrúar eru á dagskrá en nokkuð margir borgarfulltrúa kveðja í dag þar sem 16 ef 23 kjörnum borgarfulltrúum hafa aldrei áður setið í borgarstjórn. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 26. maí 2026 11:32
„Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Þessa spurningu fékk undirritaður nokkrum sinnum yfir helgina frá fólki forvitnu um gang mála við myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Tíu dagar eru liðnir frá kjördegi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn náði inn níunda manni og Hildur Björnsdóttir settist óumdeilt í bílstjórasætið í borgarstjórnarrútunni. Óvíst er hverjir komast um borð og virðist Hildur ekki tilbúin að útiloka draumalausn með fjögurra flokka meirihluta. Innlent 26. maí 2026 10:59
Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Um þúsund hafa mótmælt nýjum meirihluta og að Framsókn sé ekki með í honum. Nýr meirihluti kynnir sáttmála sinn í dag. Innlent 26. maí 2026 07:55
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra á morgun. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi. Innlent 25. maí 2026 18:17
„Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, óttast að Sjálfstæðismenn í Reykjavík sniðgangi Miðflokkinn og stökkvi frekar í sæng með Viðreisn og Framsókn. Hann kveðst heyra að „hamast“ sé innan Sjálfstæðisflokksins til að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að, þrátt fyrir að hann telji megni sjálfstæðismanna vilja samstarf við Miðflokkinn í höfuðborginni. Innlent 24. maí 2026 13:36
Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. Innlent 23. maí 2026 17:26
D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa undirritað nýjan málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Flokkarnir hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2024. Innlent 23. maí 2026 16:53
Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu. Innlent 22. maí 2026 20:32
Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Viðræður eru hafnar í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði er einnig rætt við Samfylkinguna. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti oddvita Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokks á Kjarvalsstöðum í dag. Innlent 22. maí 2026 19:08
„Þetta parísarhjól sökkar“ Fréttir af því að parísarhjól á Miðbakka muni líklega rísa á ný hafa fallið í grýttan jarðveg. Margir undra sig á ákvörðun borgarinnar um að ganga til viðræðna við rekstraraðila hjólsins og syrgja körfuboltavöllinn og hjólabrettasvæðið sem var þar áður. Formaður borgarráðs segir að ekki hafi fundist tími til að finna eitthvað annað fyrir svæðið og að tilvonandi meirihluti hafi ekki sett sig upp á móti framlengingunni. Menning 22. maí 2026 16:31
Nýr meirihluti í Hörgársveit G-listi Grósku og H-listi Hörgársveitar hafa myndað meirihluta í Hörgársveit. Snorri Finnlaugsson heldur áfram sem bæjarstjóri. Innlent 22. maí 2026 14:18
Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur boðið Viðreisn til formlegra meirihlutaviðræðna í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna um liðna helgi. Innlent 22. maí 2026 13:25
Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hittust á óformlegum fundi í morgun til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Fundurinn gekk vel og munu þeir hittast aftur til þess að ákveða næstu skref. Innlent 22. maí 2026 13:20