Kári: Það vantar þéttleika í liðið „Það er gríðarlega svekkjandi að tapa þessum leik,“ sagði Kári Ársælsson, fyrirliði Blika, eftir ósigurinn gegn Eyjamönnum í kvöld. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 22:18
Tryggvi: Setjum pressu á KR "Þetta var erfiður leikur í kvöld enda eru Blikar með flott lið þó taflan sýni annað,“ sagði Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, eftir sigurinn á Breiðablik í kvöld. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 22:15
Ólafur: Þetta þriðja mark slátraði leiknum Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, þurfti enn á ný að öskra á sína menn í hálfleik eftir slakan fyrri hálfleik þegar Fylkisliðið tapaði 1-3 á móti Val á Hlíðarenda í kvöld. Fylkismenn voru komnir 0-3 undir í hálfleik og leikurinn var í raun tapaður. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 22:07
Kristján: Við erum búnir að vinna vel í hans málum Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, fór nýjar leiðir í kvöld þegar hann stillti upp byrjunarliðinu sínu í 3-1 sigri á Fylki. Kristján henti nýliðanum Kolbeini Kárasyni í fremstu víglínu og var með Andra Fannar Stefánsson fremstan á miðjunni. Þetta heppnaðist frábærlega og Valsmenn unnu sinn fyrsta sigur síðan í byrjun júlí. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 22:01
Miðstöð Boltavaktarinnar - allt á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 18:30
Umfjöllun: Eyjamenn setja pressu á KR-inga Eyjamenn unnu nokkuð sannfærandi sigur á Blikum, 2-1, á Kópavogsvelli í kvöld, en það virðist lítið ganga hjá Íslandsmeisturunum þessa daganna. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 15:06
Umfjöllun: Grindvík fjarlægist fallsætið Grindavík vann dramatískan sigur á nágrönum sínum í Keflavík í kvöld, 2-1, með marki mínútu fyrir leikslok. Keflavík situr eftir með sárt ennið þrátt fyrir töluverða yfirburði úti á vellinum í seinni hálfleik en Grindavík skoraði úr eina skoti sínu í hálfleiknum. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 14:57
Umfjöllun: Sanngjarn sigur FH gegn Víkingi FH-ingar sýndu frábæra takta í 3-1 sigri á Víkingum í Fossvoginum í kvöld. Annan leikinn í röð léku Víkingar manni fleiri stóran hluta leiksins en áttu fá svör við góðri spilamennsku Hafnfirðinga. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 14:51
Umfjöllun: Kolbeinn með tvö mörk í fyrsta leiknum með Val Nýliðinn Kolbeinn Kárason sýndi félögum sínum hvernig á að skora mörkin í 3-1 sigri Valsmanna á Fylki í Pepsi-deild karla í kvöld. Kolbeinn skoraði tvö mörk í sínum fyrsta hálfleik og var maðurinn á bak við það að Valsmenn voru 3-0 yfir í hálfleik. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 14:42
Umfjöllun: Halldór Orri sendi Fram nánast niður um deild Þegar 89 mínútur voru komnar á klukkuna í Garðabænum var staðan 2-1 fyrir Fram og allt í blóma. En Halldór Orri Björnsson tók sig þá til og komst einhvern veginn með boltann inn í teiginn þar sem hann stóð allt í einu gapandi frír og skoraði jöfnunarmarkið. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 14:39
Halldór Orri fann upp á laxafagninu - gerð auglýsingar Stjörnumanna Stjörnumenn urðu heimsfrægir með fögnum sínum í fyrra og á dögunum komu hingað Spánverjar til þess að taka upp auglýsingu með strákunum. Nú má sjá stutta heimildarmynd inn á Youtube-vefnum um gerð þessarar auglýsingar. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 09:45
Þversláin klæddist svörtu og hvítu KR vann 2-0 sigur á Þór í úrslitaleik Valitor-bikars karla á laugardag. KR-ingar tóku út allan kvótann af bikarmeistaraheppni gegn baráttuglöðum Þórsurum sem skutu fimm sinnum í þverslána. Norðanmenn voru sjálfum sér verstir og KR-ingar lönduðu sínum tólfta titli í sögu félagsins. Íslenski boltinn 15. ágúst 2011 08:00
Jesper Holdt Jensen frá út leiktíðina Jesper Holdt Jensen, danski miðjumaður Stjörnunnar, leikur ekki meira með liðinu á þessari leiktíð. Óttast er að Jesper sé með slitið krossband en hann var borinn af velli í 5-1 sigri Stjörnunnar á Þór síðastliðinn sunnudag. Íslenski boltinn 14. ágúst 2011 10:00
Umfjöllun: KR-ingar bikarmeistarar - Þórsarar skutu fimm sinnum í slá KR er bikarmeistari karla í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Þórsurum í Laugardalnum. Þórsarar voru töluvert sterkari aðilinn í leiknum en nýttu færi sín afar illa. Sjálfsmark undir lok fyrri hálfleiks og mark Baldurs Sigurðssonar tíu mínútum fyrir leikslok tryggðu sigur Vesturbæinga. Íslenski boltinn 13. ágúst 2011 12:16
Þorsteinn Ingason: Gunnar Már róar þá stressuðu niður Þorsteinn Ingason fyrirliði Þórs segir sína menn ekki hræðast neitt. Verði vart við stress hjá einhverjum leikmanni Þórsara rói Gunnar Már Guðmundsson þá niður. Gunnar leikur í úrslitum í fjórða skipti á fimm árum. Íslenski boltinn 13. ágúst 2011 10:30
Bjarni Guðjónsson: Man ekki eftir leiknum í fyrra Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR segist ekki muna eftir 4-0 tapinu gegn FH í bikarúrslitaleiknum í fyrra. Hann man aðeins góðu minningarnar úr boltanum og ætlar að bæta einni í safnið með sigri á Þór í dag Íslenski boltinn 13. ágúst 2011 10:00
Tekst Þór að spilla gleðisumri KR? Nýliðar Þórs og Íslandsmeistaraefnin í KR mætast í úrslitum Valitor-bikars karla á Laugardalsvelli í dag. Þórsarar geta skráð nafn sitt á bikarinn í fyrsta sinn en KR-ingar eru öllu vanir þegar kemur að bikarnum. Íslenski boltinn 13. ágúst 2011 09:00
Fimm af sex markahæstu starfa hjá 365 Fimm af sex markahæstu leikmönnum efstu deildar í knattspyrnu frá upphafi starfa innan vébanda 365 miðla. Íslenski boltinn 13. ágúst 2011 08:30
Fólk elskar að hata mig Eyjapeyinn Tryggvi Guðmundsson er aðeins fjórum mörkum frá því afreki að jafna met Inga Björns Albertssonar yfir flest skoruð mörk í efstu deild íslenska fótboltans frá upphafi. Kjartan Guðmundsson ræddi við hann um metið, ferilinn og framtíðina. Íslenski boltinn 13. ágúst 2011 08:00
Ameobi: ÍA kemst upp í næsta leik Tomi Ameobi var hetja BÍ/Bolungarvíkur í kvöld er hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri liðsins á toppliði ÍA í 1. deildinni. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 22:58
Guðjón: ÍA má fagna síðar fyrir mér Guðjón Þórðarson, þjálfari BÍ/Bolungarvíkur, segir að það hafi verið gaman að hans lið hafi verið það fyrsta til að vinna ÍA í 1. deildinni í sumar. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 22:49
Þórður: Ekki okkar dagur Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, segir að sínir leikmenn hafi verið taugaóstyrkir þegar þeir töpuðu fyrir BÍ/Bolungarvík, 2-1, í 1. deildinni í kvöld. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 22:40
ÍA tapaði fyrir lærisveinum Guðjóns - fögnuðinum frestað Einhver bið verður á því að ÍA tryggir sér sæti í Pepsi-deildinni því að Skagamenn töpuðu óvænt fyrir BÍ/Bolungarvík á heimavelli, 2-1, í kvöld. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 18:15
Upphitunarmyndbönd stuðningsmanna KR og Þórs Mikil spenna er fyrir úrslitaleik KR og Þórs í Valitor-bikar karla í knattspyrnu á morgun. Stuðningsmenn beggja félaga hafa búið til skemmtileg upphitunarmyndbönd sem er vel þess virði að kíkja á. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 17:30
Atli Sigurjónsson: Við erum vanir þessu Atli Sigurjónsson leikmaður Þórs gefur lítið fyrir að Akureyringar verði á nálum þegar þeir mæta KR í úrslitum Valitor-bikars karla í knattspyrnu á morgun. Hann segir leikinn hljóta að vera stóra stund fyrir Akureyrarbæ. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 14:15
Skúli Jón: Ætla ekki að koma við leikmenn Þórs inni í teig Skúli Jón Friðgeirsson leikmaður KR segir bikarúrslitaleikinn í fyrra hafa verið matröð. Skúli, sem fékk dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum, ætlar ekki að koma við leikmenn Þórs inni í vítateig KR. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 13:30
Guðmundur leggur flest upp í Pepsi-deildinni Guðmundur Steinarsson hefur ekki skoraði í 805 mínútur í Pepsi-deildinni en hefur á sama tíma tekið forystuna á listanum yfir þá sem hafa átt flestar stoðsendingar. Guðmundur ætlar að bæta tvö félagsmet í næsta leik Keflavíkur. Íslenski boltinn 12. ágúst 2011 07:00
Hannes Þ. Sigurðsson semur við Rússana FH-ingurinn Hannes Þ. Sigurðsson hefur samið við Spartak Nalchik í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hannes heldur utan á laugardaginn. Þetta kemur fram á fotbolti.net. Íslenski boltinn 11. ágúst 2011 18:15
Heimir Hallgrímson fær UEFA Pro þjálfaragráðu Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV í Pepsi-deild karla, hefur útskrifast með UEFA Pro þjálfaragráðu. Heimir, sem starfar dagsdaglega sem tannlæknir, er áttundi Íslendingurinn til þess að útskrifast með gráðuna. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 11. ágúst 2011 15:30
Þorvaldur og Gunnar Helgi hættir hjá Víkingum í sumar Þorvaldur Sveinn Sveinsson leikmaður Víkings hefur leikið sinn síðasta leik með liðinu í sumar. Þorvaldur er á leiðinni í nám til San Francisco í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram á Vikingur.net. Íslenski boltinn 10. ágúst 2011 09:55