Ólafur: Þetta þriðja mark slátraði leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2011 22:07 Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, þurfti enn á ný að öskra á sína menn í hálfleik eftir slakan fyrri hálfleik þegar Fylkisliðið tapaði 1-3 á móti Val á Hlíðarenda í kvöld. Fylkismenn voru komnir 0-3 undir í hálfleik og leikurinn var í raun tapaður. „Þó svo að Valur hafi komist í 3-0 í fyrri hálfleik þá fannst mér leikurinn vera í járnum þegar þeir skora fyrstu tvö mörkin. Við vorum að fá fínar sóknir og vorum við það að skapa okkur góð færi en náðum ekki að vinna úr því. Þetta þriðja mark slátraði leiknum. Við tókum okkur aðeins taki í seinni hálfleik en það var bara of seint," sagði Ólafur. „Við höfum verið í basli. Við erum búnir að missa tvo gæða leikmenn í burtu og verið í basli með meiðslin hjá Baldri Bett og Gylfa Einarssyni. Breiddin er ekki meira en það að það eru ungir strákar sem eru næstir inn. Það tekur lengri tíma að búa til gæða leikmenn úr þessum ungum drengjum. Það er bara tímavinna, annaðhvort hafa menn þolinmæði fyrir það eða ekki. Það vantar bara aðeins meiri gæði og reynslu hjá okkur. Það er bara svoleiðis," sagði Ólafur. „Við erum í miðri deild eins og er og virðumst ekki vera að stíga upp úr því miðað við það sem við sýndum í kvöld. Við getum vonandi nýtt þennan tíma sem eftir er af deildinni til þess að bæta okkar leik. Það er framtíðarsýnin," sagði Ólafur. „Auðvitað er ég drullusvekktur með að tapa. Ég sagði samt við þá í hálfleik að þeir hefðu 45 mínútur til að rétta úr kútnum. Mér fannst við gera það ágætlega. Við fórum að láta þá hafa aðeins fyrir hlutunum í seinni hálfleik og við náum að skora eitt mark. Það var allavega mun betri bragur á liðinu í seinni hálfleik," sagði Ólafur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira