Misvísandi skilaboð frá Íran Forsvarsmenn herafla Íran segjast geta skotið hundruðum eldflauga til viðbótar við þær þrettán sem skotið var frá Íran á herstöðvar í Írak á aðfaranótt miðvikudags. Erlent 9. janúar 2020 15:15
Flugvélin var á leið aftur til flugvallarins þegar hún hrapaði Úkraínska farþegaþotan sem hrapaði skömmu eftir flugtak frá alþjóðaflugvellinum í Teheran aðfararnótt miðvikudags hafði verið að reyna að snúa aftur til flugvallarins þegar hún hrapaði að sögn íranskra flugmálayfirvalda. Erlent 9. janúar 2020 12:13
Íranir segjast ekki ætla að afhenda flugritann Íranir segjast ekki ætla að afhenda flugrita úkraínsku farþegaþotunnar sem fórst í Teheran með 176 innanborðs í gær til bandarískra yfirvalda eða flugvélaframleiðandans Boeing. Erlent 9. janúar 2020 07:04
Trump tilkynnti um nýjar þvinganir gegn Íran en ekki frekari árásir Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að nýjar viðskiptaþvinganir yrðu lagðar á Írana vegna eldflaugaárása þeirra á bandarískar herstöðvar í Írak í nótt. Enginn fórst í árásunum. Erlent 8. janúar 2020 18:30
Telur Írani draga sig í hlé og boðar auknar þvinganir Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að svo virðist sem Íranir hafi dregið sig í hlé eftir eldflaugaárásir liðinnar nætur. Hann hefur þá einnig lýst því yfir að viðskiptaþvingunum verði beitt í auknum mæli gegn Íran. Erlent 8. janúar 2020 17:45
Úkraínumenn ætla að senda rannsakendur til Írans Forseti Úkraínu heitir því að komast til botns í því hvað grandaði úkraínskri farþegaþotu í Íran í morgun. Erlent 8. janúar 2020 16:45
Segir að hefnd Íraka verði ekki minni en Írana Morðið á Abu Mahdi al-Muhandis, leiðtoga vopnaðrar sveitar sjíamúslima í Írak, hefur valdið mikilli reiði. Hann féll í drónaárás Bandaríkjahers á föstudag ásamt yfirmanni sérsveitar íranska byltingarvarðarins. Erlent 8. janúar 2020 14:00
Telja árásunum ekki ætlað að valda manntjóni Margir forsvarsmanna herafla Bandaríkjanna telja að Íranir hafi passað sig að valda ekki manntjóni í árásum þeirra á tvær herstöðvar í Írak í nótt. Erlent 8. janúar 2020 13:45
Gilda lög í vopnuðum átökum? Þónokkuð hefur verið fjallað um orð Trump Bandaríkjaforseta um að hann hafi áætlanir um 52 írönsk skotmörk í hernaðarlegum aðgerðum, mörg þeirra mikilvæg í íranskri menningu. Skoðun 8. janúar 2020 13:00
Netanyahu segir að Ísrael muni svara fyrir sig Ráðist Íranir á Ísrael, eins og þeir hafa hótað, munu Ísraelar svara fyrir sig og veita Íran þungt högg. Erlent 8. janúar 2020 12:15
Erdogan og Pútín ræða spennu í Miðausturlöndum Forsetarnir tveir eru einnig sagðir ætla að ræða frið í Líbíu þangað sem Tyrkir sendu herlið á dögunum. Erlent 8. janúar 2020 11:15
Íranir segja aðgerðum lokið og vilja ekki stríð Ayatollah Ali Khamenei segir Íran hafa veitt Bandaríkjunum löðrung í nótt. Erlent 8. janúar 2020 09:09
63 Kanadamenn og tíu Svíar í hópi þeirra sem fórust Farþegaflugvél Ukraine International Airlines fórst skömmu eftir flugtak í Teheran í morgun. 176 voru um borð. Erlent 8. janúar 2020 08:52
Skjálfti 4,5 að stærð nærri írönsku kjarnorkuveri Erlendir fjölmiðlar segja skjálftann hafa orðið nærri Bushehr-kjarnorkuverinu en haft er eftir írönskum ríkisfjölmiðlum að engar skemmdir hafi orðið á verinu. Erlent 8. janúar 2020 07:33
Trump um árás Írana: Segir að enn sem komið er sé „allt í lagi“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir "allt vera í góðu“ eftir að Íranir skutu eldflaugum á bandarískar herstöðvar í nótt. Forsetinn segir að verið sé að meta hvort að manntjón hafi orðið og eyðilegging, en að enn sem komið er væri ástandið í lagi. Erlent 8. janúar 2020 07:03
Allir um borð í úkraínskri farþegaþotu fórust Allir um borð fórust þegar úkraínsk farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 hrapaði rétt eftir flugtak frá flugvellinum í Teheran í Íran í nótt. Erlent 8. janúar 2020 06:36
Íranir skjóta eldflaugum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak Íranir hafa skotið eldflaugum á herstöð Bandaríkjanna, Al-Asad, í vesturhluta Írak. Erlent 8. janúar 2020 00:30
Pútín heimsótti Sýrland og hitti Assad Þetta er í annað skiptið sem forseti Rússlands heimsækir Sýrland þar sem rússneskir hermenn hafa tekið þátt í borgarastríðinu til að styðja Assad forseta frá árinu 2015. Erlent 7. janúar 2020 15:49
Khamenei sagður vilja beinar aðgerðir gegn Bandaríkjunum Burtséð frá öllum áróðri er óljóst hvernig, hvar og hvort mögulegar hefndaraðgerðir Íran fara fram. Erlent 7. janúar 2020 11:45
Krefja yfirvöld svara um meðferð á fólki af írönskum ættum Bandarískir ríkisborgarar af írönskum ættum voru stöðvaðir og yfirheyrðir tímunum saman á landamærum Bandaríkjanna og Kanada um helgina. Erlent 7. janúar 2020 10:53
Tugir sagðir hafa troðist undir í jarðarför Soleimani Minnst 35 eru sagðir látnir og tugir slasaðir eftir gífurlegan troðning við jarðarför Qassem Soleimani, íransks hershöfðingja Bandaríkin réðu af dögum í síðustu viku. Erlent 7. janúar 2020 10:03
Skilgreinir bandaríska hermenn sem hryðjuverkamenn Íranska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp þar sem bandaríska varnarmálaráðuneytið og hermenn eru skilgreind sem "hryðjuverkamenn“. Erlent 7. janúar 2020 07:43
Flykkjast til heimabæjar Soleimani Gríðarlegur mannfjöldi kom saman í heimabæ Qasems Soleimani, íranska herforingjans sem ráðinn var af dögum í Bagdad í síðustu viku. Erlent 7. janúar 2020 07:15
Segir Bandaríkjaher ekki á förum frá Írak Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir það ekki rétt að Bandaríkjaher sé á förum frá Írak. Erlent 6. janúar 2020 20:33
Eftirmaður Soleimani heitir því að reka Bandaríkin frá Miðausturlöndum Talið er að hundruð þúsunda Írana hafi fylgt Soleimani herforingja til grafar í Teheran í dag. Erlent 6. janúar 2020 16:23
Stendur við orð sín um árásir á menningarmannvirki Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, stendur við hótanir sínar um að ráðast á staði og byggingar sem hafa mikið menningarlegt gildi í Íran, geri Íranir árásir á Bandaríkin. Erlent 6. janúar 2020 09:20
Þúsundir komu saman vegna útfarar Soleimani Gríðarlegur fjöldi kom saman í írönsku höfuðborginni í morgun þar sem útför herforingjans Qasem Soleimani fór fram en hann var ráðinn af dögum af Bandaríkjamönnum í Bagdad í síðustu viku. Erlent 6. janúar 2020 08:02
Vonar að alþjóðasamfélagið hvetji til stillingar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir stöðuna í Íran alvarlega. Innlent 5. janúar 2020 19:35
Íranir ætla ekki að fylgja kjarnorkusamkomulaginu Írönsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau muni ekki lengur framfylgja kjarnorkusamkomulaginu sem þau gerðu við vesturveldin, Rússar og Kínverjar árið 2015. Erlent 5. janúar 2020 19:04
Beðið eftir hvað Íranar geri Leiðtogi líbönsku Hezbollah-samtakanna, segir að bandarískar herstöðvar, herskip og hermenn séu réttlætanleg skotmörk eftir árásina á Soleimani og segir það nú forgangsmál að reka bandarískan herafla burtu úr heimshlutanum. Erlent 5. janúar 2020 18:45