Erlent

Minnst 64 sagðir látnir í á­rekstri hraðlesta á Spáni

Kjartan Kjartansson skrifar
Lestarvagnar þeyttust út af sporinu og niður kant þegar hraðlest ók aftan á aðra í Toledo á Spáni í morgun. Óttast er að margir hafi farist.
Lestarvagnar þeyttust út af sporinu og niður kant þegar hraðlest ók aftan á aðra í Toledo á Spáni í morgun. Óttast er að margir hafi farist. Vísir/EPA

Tvær hraðlestir rákust á í Toledo á Mið-Spáni í morgun. Að minnsta kosti 64 eru sagðir látnir en talið er að tala látinna muni hækka. Hundruð farþega voru í lestunum tveimur.

Áreksturinn átti sér stað nærri bænum Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu. 

Talskona sjálfsstjórnarhéraðsins Castilla-La Mancha segir að 397 manns hafi verið í lest ríkislestarfélagsins RENFE en 147 í hinni sem var á vegum IRYO, einkarekins fyrirtækis.

Staðfest er að þrjátíu manns hafi farist en nær öruggt er að sú tala muni hækka samkvæmt upplýsingum yfirvalda í Castilla-La Mancha. Spænska blaðið ABC fullyrðir að á fimmta tug sé látinn. 

Mónica García, heilbrigðisráðherra Spánar, segir viðbragðsaðila einbeita sér að því að finna fólk í braki vegnanna sem urðu fyrir mestum skemmdum. Áreksturinn hafi orðið á miklum hraða og því megi reikna með „harmleik“.

Spænska ríkisútvarpið segir að báðar lestir hafi verið á sömu leið en RENFE-lestinni hafi verið ekið aftan á lest Iryo þar sem hún var kyrrstæð við lestarstöðina í Urda. Við þetta hafi tveir öfustu vagnar Iryo-lestarinnar oltið út af sporinu. Ekki hafi náðst samband við stjórnanda RENFE-lestarinnar.

Mynd spænska þjóðvarðarins frá slysstað. Þyrlur, sjúkrabílar og færanlegar bráðamóttökur voru sendar á staðinn til þess að hlúa að slösuðum.Vísir/EPA

ABC hefur eftir heimildum sínum innan samgönguráðuneytisins að orsök slyssins hafi verið mannleg mistök starfsmanns ríkislestarsfélagsins RENFE að láta ekki stjórnanda lest þess vita af því að hin lestin væri nærri.

Lestarsamgöngur liggja nú niðri á milli Madridar, Ciudad Real og Andalúsíu vegna slyssins. Spænska ríkisútvarpið segir að allir stjórnmálaflokkar utan fjarhægriflokksins Vox hafi stöðvað kosningabaráttu sína fyrir þingkosningar næsta mánaðar vegna slyssins.

Fjörutíu og fimm manns létust þegar lest fór út af sporinu og í veg fyrir lest sem kom úr gagnstæðri átt við Adamuz í Córdoba-héraði í Suður-Spáni í janúar. Þær lestir voru í eigu sömu tveggja félaga og í slysinu í dag.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×