Nottingham Forest í úrslit umspilsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni Nottingham Forest er á leið í hreinan úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 4-2 sigur gegn Sheffield United í vítaspyrnukeppni. Enski boltinn 17. maí 2022 21:35
Fernudraumurinn lifir eftir endurkomusigur Liverpool Liverpool heldur enn í vonina um Englandsmeistaratitilinn eftir 1-2 útisigur gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Enski boltinn 17. maí 2022 20:38
Þrír úrskurðaðir í bann í Bestu-deildinni Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, hefur úrskurðað þrjá leikmenn Bestu-deildar karla í eins leiks bann. Íslenski boltinn 17. maí 2022 20:01
William Cole æfir með Blikum þar til hann heldur til Dortmund Hinn 16 ára gamli William Cole Campbell mun æfa með Breiðablik þangað til hann gengur í raðir Borussia Dortmund í júlí. Íslenski boltinn 17. maí 2022 19:30
Segir að stressaðir eigi að vera heima og að liðið eigi Meistaradeildina ekki skilið Granit Xhaka, leikmaður Arsenal, gagnrýndi liðsfélaga sína eftir 2-0 tap liðsins gegn Newcastle í gærkvöldi. Hann segir að stressaðir leikmenn eigi að vera heima hjá sér og að liðið eigi ekki skilið að fara í Meistaradeildina miðað við frammistöðuna í leiknum. Enski boltinn 17. maí 2022 18:46
Lyon búið að finna nýja Söru Franska knattspyrnufélagið Lyon missir Söru Björk Gunnarsdóttur úr sínum röðum í sumar en hefur fundið aðra Söru sem kemur til með að efla liðið á næstu leiktíð. Fótbolti 17. maí 2022 17:00
Segir umgjörðina og aðstöðuna hjá Breiðabliki betri en hjá Frankfurt Breiðabliksþema var í upphitunarþætti Bestu markanna fyrir 5. umferð Bestu deildar kvenna sem hefst á morgun. Blikarnir Ásta Eir Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir voru gestir Helenu Ólafsdóttur. Íslenski boltinn 17. maí 2022 15:31
KR ekki með vallarþul og virka klukku: „Ekki boðlegt í Bestu deildinni“ Umgjörðin hjá KR í síðasta leik liðsins í Bestu deild kvenna í fótbolta þótti hreint ekki til fyrirmyndar og var gagnrýnd í nýjasta þætti Bestu markanna. Íslenski boltinn 17. maí 2022 14:31
De Bruyne um Sterling: Gæti ekki verið ólíkari en ímynd hans í slúðurblöðunum Raheem Sterling fær mjög ósanngjarna meðferð hjá breskum fjölmiðlum ef marka má liðsfélaga hans og stórstjörnu hjá Manchester City. Enski boltinn 17. maí 2022 13:30
Sokknum verður ekki skilað og það hlakkar ekki í Helenu Keflavíkurkonur voru á toppi Bestu deildar kvenna eftir tvær umferðir og sendu í framhaldinu Bestu mörkunum sokk. Síðan hefur liðið tapað tveimur leikjum í röð þar af á móti nýliðum Aftureldingar á heimavelli í síðasta leik. Íslenski boltinn 17. maí 2022 13:01
Bikarmeistararnir austur og Valskonur á Sauðárkrók Bikarmeistarar Breiðabliks eiga fyrir höndum ferðalag austur á land í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 17. maí 2022 12:49
„Skrýtnasta dómgæsla sem ég hef séð“ Forráðamenn knattspyrnuliðsins FC Árbæjar ætla að leita réttar síns hjá KSÍ eftir að hafa komist að því að dómari í fyrsta leik þeirra í 4. deildinni í sumar, gegn Skallagrími í Borgarnesi í gærkvöld, hefur leikið með Skallagrími síðustu ár. Íslenski boltinn 17. maí 2022 11:59
„Ég er bara svo ánægð að hún komi heim“ Bestu mörkin ræddu endurkomu Alexöndru Jóhannsdóttur í íslensku deildina en hún kom til Breiðabliks á láni á dögunum og skoraði í sigri á KR í fyrsta leik. Fyrst var spilað viðtal Vals Páls Eiríkssonar við landsliðskonuna. Íslenski boltinn 17. maí 2022 11:01
Besta byrjunin síðan að ofurlið KR-inga vann alla leiki sína fyrir 63 árum Blikar urðu í gær aðeins sjöunda liðið í sögu efstu deildar til að vinna sex fyrstu leiki sína á Íslandsmótinu en það þarf að fara allt aftur til ársins 1959 til að finna lið með betri markatölu. Íslenski boltinn 17. maí 2022 10:30
Lineker hefur ekki áhyggjur af Jake og segir að margir komi nú út úr skápnum Enski knattspyrnumaðurinn Jake Daniels varð í gær fyrsti fótboltamaðurinn í meira en þrjá áratugi sem segir frá því opinberlega að hann sé samkynhneigður. Enski boltinn 17. maí 2022 10:01
Heimildarmynd um Söru Björk komin út: Fótboltakonur þurfa ekki að velja á milli Heimildarmynd um meðgöngu landsliðskonunnar Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og endurkomu hennar inn á fótboltavöllinn er nú komin í loftið. Fótbolti 17. maí 2022 09:32
Sjáðu Blika fara illa með meistarana og hvernig nýi gamli maðurinn bjargaði KR Sjöttu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum og eftir leikinn munar orðið átta stigum á toppliði Breiðabliks og Íslandsmeisturum Víkings. Íslenski boltinn 17. maí 2022 08:31
Kristall Máni sendi Blikum tóninn: Ég er ennþá með jafn marga titla og þið Víkingurinn Kristall Máni Ingason átti ekki góðan dag í gær frekar en margir félagar hans í Víkingsliðinu. Hann kórónaði vonbrigðin með að fá rautt spjald nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Íslenski boltinn 17. maí 2022 08:00
Skoraði í Bestu deildinni 2021 og stefnir á að dæma í henni árið 2023 Skagamaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson er að fara öðruvísi leið innan fótboltans en við höfum séð áður. Hann er hættur að spila þremur árum fyrir þrítugsafmælið en hefur þess í stað snúið sér að dómgæslu. Íslenski boltinn 17. maí 2022 07:46
Ráðherrar hræddir um að salan á Chelsea fari ekki í gegn Breska ríkisútvarpið greinir frá því að ráðherrar ríkistjórnar Bretlands telji að mögulega muni salan á enska fótboltafélaginu Chelsea ekki ganga í gegn. Enski boltinn 17. maí 2022 07:00
Mbappé samið um kaup og kjör við Real Madríd Franski framherjinn Kylian Mbappé hefur náð samkomulagi við Real Madríd um að leika með liðinu á næstu leiktíð. París Saint-Germain heldur þó enn í vonina að stjörnuframherjanum snúist hugur og verði áfram í París. Fótbolti 16. maí 2022 23:31
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Breiðablik 0-3 | Blikar kláruðu Íslandsmeistarana í síðari hálfleik Breiðablik vann 3-0 útisigur á Íslandsmeisturum Víkings þegar liðin mættust í Víkinni í kvöld. Blikar eru með fullt hús stiga í Bestu Deildinni eftir sex umferðir. Íslenski boltinn 16. maí 2022 22:20
Sara Björk mun yfirgefa Lyon í sumar Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, mun yfirgefa franska stórliðið Lyon í sumar er samningur hennar rennur út. Hún segir margt koma til greina. Fótbolti 16. maí 2022 22:10
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. - Fram 1-2 | Gestirnir með sinn fyrsta sigur og skilja Breiðhyltinga eftir á botninum Fram heimsótti Breiðholtið og mætti Leikni Reykjavík í uppgjöri liða sem ekki höfðu unnið leik í Bestu deild karla fyrir kvöldið. Fram vann 2-1 sigur og er komið á blað. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. Íslenski boltinn 16. maí 2022 22:05
Rúnar Kristinsson: Úrslitin glöddu en getum gert margt betur Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var sáttari við stigin þrjú en spilamennsku lærisveina sinna þegar lið hans vann 1-0 sigur gegn Keflavík á Meistaravöllum í kvöld. Íslenski boltinn 16. maí 2022 22:00
Arnar: „Þú mátt ekki vorkenna sjálfum þér of mikið“ „Þetta eru vonbrigði, þetta var ekki 3-0 leikur til að byrja með. Þetta er saga okkar í sumar, tvö fyrstu mörkin. Slappur varnarleikur þar,“ sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga eftir 3-0 tap á heimavelli gegn Blikum í Bestu deild karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 16. maí 2022 21:45
Jón Sveinsson: Góður sigur á erfiðum velli Fram vann Leikni 2-1 í Reykjavíkurslag. Þetta var fyrsti sigur Fram á tímabilinu og var Jón Sveinsson, þjálfari Fram, afar kátur eftir leik. Íslenski boltinn 16. maí 2022 21:35
William Cole frá FH til Borussia Dortmund FH hefur selt hinn 16 ára gamla William Cole Campbell til þýska stórliðsins Borussia Dortmund. Íslenski boltinn 16. maí 2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: KR - Keflavík 1-0 | Þorsteinn Már tryggði KR langþráðan heimasigur KR lagði Keflavík að velli með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í sjöttu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í kvöld. Íslenski boltinn 16. maí 2022 21:10
Meistaradeildavonir Arsenal hanga á bláþræði eftir tap gegn Newcastle Newcastle United gerði sér lítið fyrir og vann Arsenal 2-0 í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildarinnar. Skytturnar eru tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum í Tottenham Hotspur þegar ein umferð er eftir af ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 16. maí 2022 20:55