Fjórar efnilegar til að fylgjast með á HM Það styttist óðfluga í HM kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Mótið hefst þann 20. júlí og líkur sléttum mánuði síðar, 20. ágúst. Fótbolti 12. júlí 2023 23:30
Barcelona kaupir efnilegasta framherja Brasilíu síðan Ronaldo skaust fram á sjónarsviðið Spánarmeistarar Barcelona tilkynntu í dag kaup félagsins á brasilíska framherjanum Vitor Hugo Roque Ferreira. Hann kemur frá Athletico Paranaense í heimalandinu. Fótbolti 12. júlí 2023 23:00
„Frammistaðan gefur okkur byr undir báða vængi hvað framhaldið varðar“ Fylkir tapaði naumlega gegn Val á Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu, lokatölur 2-1 í kvöld. Fylkismenn voru heilt yfir betra liðið og sköpuðu sér mörk marktækifæri sem þeim tókst ekki að nýta. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 22:31
Sjáðu þegar Björn Zoëga kom úr stúkunni og kippti Ólafi Kristófer aftur í lið Ólafur Kristófer Helgason varð fyrir því óláni að fara úr lið á fingri þegar Fylkir beið lægri hlut gegn Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld, lokatölur 2-1 Val í vil. Sem betur fyrir Ólaf Kristófer var Björn Zoëga, forstjóri Karólínska-sjúkrahússins í Svíþjóð, á staðnum. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 22:00
Afturelding áfram taplaust | Leiknir kom til baka Fimm leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Topplið Aftureldingar vann 1-0 sigur á Þrótti Reykjavík. Þá kom Leiknir Reykjavík til baka gegn Ægi frá Þorlákshöfn. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 21:40
Umfjöllun, viðtöl, myndir og myndbönd: Valur - Fylkir 2-1 | Valsmenn með nauman sigur á Hlíðarenda Valur hreppti naumlega sigur gegn Fylki í 14. umferð Bestu deildarinnar. Eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir tókst Fylki að minnka muninn á lokamínútunum og gera úr þessu ansi spennandi leik, lokatölur 2-1 á Hlíðarenda. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 21:10
Skotfóturinn verið í kælingu Damir Muminovic var hetja Breiðabliks í leik liðsins við Shamrock Rovers í Dyflinni í gær. Glæsimark hans eykur á tilkall hans til að taka fleiri aukspyrnur. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 20:30
Aston Villa fær landsliðsmann Spánar í vörnina Enska úrvalsdeildarfélagið hefur tilkynnt spænska miðvörðinn Pau Torres sem nýjasta leikmann liðsins. Sá kemur frá Villareal á Spáni. Enski boltinn 12. júlí 2023 19:46
Valgeir Lunddal og félagar í góðri stöðu fyrir seinni leikinn Sænsku meistararnir í BK Häcken eru í góðum málum eftir fyrri leik liðsins gegn The New Saints frá Wales í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Valgeir Lunddal Friðriksson byrjaði leikinn í hægri bakverðinum hjá Häcken og lagði sitt af mörkum í 3-1 sigri kvöldsins. Fótbolti 12. júlí 2023 19:01
Á leið í bann eftir brot á veðmála reglum Það stefnir allt í að Harry Toffolo, varnarmaður Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, feti í fótspor Ivan Toney og verði dæmdur í margra mánaða bann vegna brota á veðmála reglum enska knattspyrnusambandsins. Enski boltinn 12. júlí 2023 18:30
Man Utd lagði Leeds: Heiðruðu minningu McQueen fyrir leik Erkifjendurnir Manchester United og Leeds United mættust í fyrsta vináttuleik tímabilsins 2023/2024. Leiknum lauk með 2-0 sigri Man United sem leikur í Meistaradeild Evrópu á komandi leiktíð á meðan Leeds leikur í ensku B-deildinni eftir fall á síðustu leiktíð. Enski boltinn 12. júlí 2023 17:00
Ekki lengur í lífshættu eftir heilablæðingu Fyrrum markvörðurinn Edwin Van der Sar liggur enn á gjörgæsludeild eftir heilablæðingu á dögunum. Í yfirlýsingu konu hans segir að hann sé ekki lengur í lífshættu. Fótbolti 12. júlí 2023 16:31
Hafa skorað sex sinnum hjá Fylki í tveimur leikjum í röð Það eru meira en þrjú þúsund dagar síðan Fylkismenn unnu síðast Valsmenn í deild þeirra bestu en liðin mætast á Hlíðarenda í kvöld. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 16:00
Henderson heldur tryggð við Liverpool Þrátt fyrir tilboð um gull og græna skóga í Sádi Arabíu ætlar Jordan Henderson að halda tryggð sinni við Liverpool. Enski boltinn 12. júlí 2023 15:00
María verður áfram hjá Fortuna Íslenska knattspyrnukonan María Catharina Ólafsdóttir Gros hefur gert nýjan samning við hollenska félagið Fortuna Sittard. Fótbolti 12. júlí 2023 14:30
Haka dans eða ekki Haka dans Hollendinga vakti upp hörð viðbrögð Hollenska kvennalandsliðið í fótbolta kom sér í fréttirnar í gær þrátt fyrir að það séu enn ellefu dagar í fyrsta leik liðsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 12. júlí 2023 14:05
Viðræður standa yfir á milli Tottenham og Bayern Forráðamenn Tottenham og Bayern Munchen eiga í viðræðum um mögulegt kaupverð Harry Kane. Enski landsliðsframherjinn mætti til æfinga í dag og mun eiga fund með nýja knattspyrnustjóranum Ange Postecoglu. Enski boltinn 12. júlí 2023 13:30
Messi lentur í Miami Lionel Messi er loksins kominn til Bandaríkjanna en það eru margar vikur síðan fréttist af því að hann væri að semja við bandaríska félagið Inter Miami. Fótbolti 12. júlí 2023 13:01
Langmarkahæst í deildinni en ekki pláss fyrir hana í íslenska landsliðinu Valskonan Bryndís Arna Níelsdóttir er ekki í íslenska landsliðshópnum sem undirbýr sig nú fyrir tvo vináttulandsleiki á móti Finnlandi og Austurríki. Fótbolti 12. júlí 2023 12:01
„Verst bara að Gylfi sé ekki kominn“ Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, segir spennu á meðal leikmanna liðsins fyrir leik þess við Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Verst sé að Gylfi Þór Sigurðsson sé ekki á meðal andstæðinga kvöldsins. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 11:00
Negla Damirs kom Gísla ekki á óvart: Hef séð þetta nokkrum sinnum áður Kristinn Steindórsson og Gísla Eyjólfsson mættu í viðtal eftir 1-0 sigur Breiðabliks á írska félaginu Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í Undankeppni Meistaradeildar UEFA. Fótbolti 12. júlí 2023 10:31
Lið Cristiano Ronaldo dæmt í bann Alþjóða knattspyrnusambandið hefur dæmt sádi-arabíska félagið Al-Nassr í félagsskiptabann fyrir að standa ekki við sínar skuldbindingar. Fótbolti 12. júlí 2023 09:25
FCK staðfestir viðræður við annað félag vegna Hákons Arnars Danska félagið FCK hefur staðfest að það eigi í viðræðum við félag varðandi kaup á framherjanum Hákoni Arnari Haraldssyni. FCK hafnaði tilboði franska liðsins Lille á dögunum. Fótbolti 12. júlí 2023 08:59
United gæti keypt sex nýja leikmenn ef Al Thani kaupir liðið Ef Sjeik Jassim bin Hamad Al Thani nær að ganga frá kaupum á Manchester United fyrir lok félagaskiptagluggans gæti það þýtt að liðið kaupir sex nýja leikmenn í leikmannahópinn. Enski boltinn 12. júlí 2023 07:31
„Auðvitað er áhugi á mér“ „Ég býst við erfiðum leik. Þeir hafa gefið Víking og Breiðablik hörku leik. Fyrstu sextíu mínúturnar voru þeir mjög flottir og voru nálægt því að gera jafntefli. Þeir eru með gæði innan síns liðs og eru þéttir til baka. Rúnar kann alveg að búa til lið,“ segir Adam Pálsson, sóknarmaður Vals, um leik liðsins gegn Fylki í Bestu deild karla í kvöld. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 07:00
Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Bestu deild karla Valur tekur á móti nýliðum Fylkis í eina leik dagsins í Bestu deild karla. Umferðin klárast svo á fimmtudag og sunnudag. Valur er í öðru sæti á eftir Víkingum sem eru með níu stigum meira. Fylkir er í næst neðsta sæti. Leikurinn er því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 06:01
„Ég hef enga trú á því að þeir hafi verið að vanmeta okkur“ Breiðablik sigraði Shamrock Rovers með einu marki gegn engu í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og halda heim á Kópavogsvöll með forystuna fyrir seinni leikinn í einvíginu. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum ánægður með þennan sterka útisigur. Hann segir góða byrjun á leiknum hafa lagt grunninn að sigrinum í kvöld. Íslenski boltinn 11. júlí 2023 23:30
Segir mikla viðurkenningu að vera kallaða í íslenska landsliðið „Við eigum alveg skilið að vera hérna,“ segir Sunneva Hrönn, leikmaður FH. Arna Eiríksdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir voru kallaðar inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Finnlandi og Austuríki í tveimur vináttulandsleikjum á næstu dögum. Íslenski boltinn 11. júlí 2023 22:45
Andre Onana færist nær Manchester United Manchester United færist skrefi nær því að klófesta Andre Onana frá Inter Milan. Þetta herma heimildir Sky Sports. Enski boltinn 11. júlí 2023 21:30
Umfjöllun: Shamrock Rovers - Breiðablik | Blikar fara með forystu í seinni leikinn Breiðablik heimsótti írska félagið Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í Undankeppni Meistaradeildar UEFA. Seinni leikurinn fer á Íslandi í næstu viku en í boði eru leikir á móti FC Kaupmannahöfn í næstu umferð. Breiðablik vann sterkan útisigur, 0-1. Fótbolti 11. júlí 2023 20:41
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Körfubolti