Arsenal FC

Arsenal FC

Fréttir af enska fótvoltaliðinu Arsenal FC frá London.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal

Stuðningsmenn annarra liða en Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hallast að því að styðja þá bláklæddu í titilbaráttunni. Liðin mætast í úrslitaleik enska deildabikarsins í dag.

Enski boltinn
Fréttamynd

Verður Kepa aftur skúrkurinn?

„Ég hefði tekið hann út af með handafli,“ sagði John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, í setti Sky Sports eftir tap Chelsea fyrir Manchester City í úrslitum deildabikarsins árið 2019. Þar er rætt um Kepa Arrizabalaga, þáverandi markvörð Chelsea, sem var skúrkurinn í þeim leik . Hann mætir City aftur í dag í úrslitaleik keppninnar.

Enski boltinn
Fréttamynd

Sex­tán ára gull­tryggði Arsenal mikil­vægan sigur

Topplið Arsenal vann dramatískan sigur á Everton er liðin mættust á Emirates leikvanginum í Lundúnum í kvöld. Lokatölur 2-0 sigur Arsenal, bæði mörk leiksins komu á lokamínútum hans. Hinn sextán ára gamli Max Dowman gulltryggði sigurinn og varð þar með yngsti markaskorarinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Enski boltinn
Fréttamynd

„Að­eins eitt lið sem reyndi að spila fót­bolta í dag“

Þetta var gott gærkvöld fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni því liðið vann sinn leik á meðan Manchester City tapaði tveimur stigum á heimavelli. Arsenal er því komið með sjö stiga forskot á toppnum en gagnrýni á spilmennsku liðsins minnkar ekkert eftir frammistöðuna í 1-0 sigri á Brighton.

Enski boltinn
Fréttamynd

Topp­baráttan: Ár­legi City-skriðþunginn og brúðar­mærin sem vill verða brúður

Baráttan um Englandsmeistaratitilinn nær brátt hámarki. Þegar aðeins tíu umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni berjast Arsenal og Manchester City um titilinn. Skytturnar hafa verið á toppi ensku úrvalsdeildarinnar nær allt tímabilið og eru í leit að sínum fyrsta Englandsmeistaratitli í rúmlega tuttugu ár á meðan City-menn freista þess að verða meistarar í sjöunda sinn á síðustu tíu árum.

Enski boltinn
Fréttamynd

„Hjartað mitt hætti næstum því að slá“

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósaði frammistöðu David Raya í 2-1 sigri Arsenal á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær en markvörðurinn hans varði mikilvægt skot í uppbótartíma til að halda Arsenal í fimm stiga forystu í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.

Enski boltinn
Fréttamynd

Arsenal vann hornspyrnukonsert

Arsenal bætti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Chelsea á Emirates-vellinum síðdegis. Öll þrjú mörk dagsins komu eftir hornspyrnur.

Enski boltinn