Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Landsbankinn kaupir meirihluta í Rose Invest hf. Landsbankinn hefur keypt 51% hlutafjár í Rose Invest hf. sem er rekstrarfélag verðbréfasjóða í eigu Sigurðar B. Stefánssonar og Svandísar Rúnar Ríkarðsdóttur. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki eftirlitsstofnana og niðurstöður áreiðanleikakönnunar. 22.12.2010 13:05
Þarf að ákveða framtíð Byggðarstofnunar Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin telur að samvinna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Byggðastofnunar og byggðaáætlunar, sé ónóg og verkaskipting milli þeirra óljós. Þá telur Ríkisendurskoðun þarft að ákveða framtíð Byggðarstofnunnar, jafnvel dreifa verkefnum hennar annað. 22.12.2010 12:55
Héraðsdómur hafnar 4,7 milljarða kröfu Ares banka Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Ares-banka um að Nýi Landsbankinn greiddi hinum spænska banka þrjátíu milljónir evra, eða fjóran og hálfan milljarð króna vegna tapaðrar inneignar í peningamarkaðssjóði. 22.12.2010 12:29
VÍS kaupir stóran hlut í Nýherja VÍS hefur keypt stóran hlut í Nýherja og á nú 6,6% í félaginu samkvæmt flöggun í Kauphöllinni. VÍS jók eign sína um 20 milljón hluti og á nú rúmlega 26 milljón hluti í Nýherja. 22.12.2010 12:14
Spáir að verðbólgan fari undir 2% í janúar Greining Arion banka hefur endurmetið verðbólguspá sína fyrir janúar þar sem Hagstofan hefur „dregið kanínu“ upp úr hatti sínum. Nú gerir greiningin ráð fyrir að verðbólgan í janúar verði undir 2%. 22.12.2010 11:44
Útvarpsgjald fellt úr vísitölunni enda orðið skattur Hagstofan hefur ákveðið að fella útvarpsgjaldið fyrir RUV út úr mælingum á vísitölu neysluverðs. Þetta gerir Hagstofan þar sem hún telur að búið sé að breyta gjaldinu úr afnotagjaldi og yfir í skatt. Breytingin tekur gildi í janúar n.k. og mun lækka vísitölunum um 0,4% í þeim mánuði. 22.12.2010 10:52
Héraðsdómur riftir greiðslu á skuld 365 hf. við Glitni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu þrotabús Íslenskrar afþreyingar hf. um að rift verði greiðslu á 305 milljóna kr. skuld 365 hf. við Glitni banka. 22.12.2010 10:10
Verðbólgan í takt við spár sérfræðinga Verðbólgumæling Hagstofunnar sem birt var í morgun er nokkuð í takt við spár sérfræðinga. 22.12.2010 09:15
Verðbólgan mælist 2,5%, verðbólgumarkmiðinu náð Ársverðbólgan mælist nú 2,5% sem er verðbólgumarkmið Seðlabankans. Hún lækkar um 0,1 prósentustig frá í nóvember. 22.12.2010 09:02
Sala skuldabréfa margfaldast milli mánaða Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í nóvember 2010 nam rúmum 43,6 milljörðum kr. á söluverði samanborið við tæpa 12,5 milljarða kr. mánuðinn áður. 22.12.2010 07:53
Færði gjalddaga um nokkur ár Straumborg, fjárfestingafélag Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu, tapaði sjö milljörðum króna í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Tap félagsins síðastliðin tvö ár nemur 14,7 milljörðum króna. 22.12.2010 06:00
Keypti lúxusbíla fyrir starfsmenn fyrir tugi milljóna Icelandair Group og dótturfélög þess keyptu lúxusbifreiðar fyrir stjórnendur sína og lykilstarfsmenn fyrir marga tugi milljóna króna á þessu ári, eftir að Framtakssjóður lífeyrissjóðanna lagði fyrirtækinu til nýtt hlutafé. 21.12.2010 18:45
Forsetinn: Við erum aðalfélagar Kína í jarðvarmaorku Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands fullyrðir í samtali við Bloomberg fréttaveituna að Ísland sé aðalfélagi (primary partner) Kína þegar kemur að þróun og vinnslu jarðvarmaorku. Forsetinn er nú staddur í Abu Dhabi vegna verðlaunaafhendingar. 21.12.2010 16:02
Nýr framkvæmdastjóri Nýherja félags í Danmörku Henrik R. Møller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Applicon A/S í Danmörku, að því er segir í tilkynningu frá Nýherja móðurfélagi Applicon. 21.12.2010 12:51
Nær öruggt að ESB setur löndunarbann á makríl Samkvæmt vefsíðunni FISHupdate er talið nær öruggt að ESB muni setja löndunarbann á íslenskan makríl í evrópskum höfnum. Þetta bann yrði þó fyrst og fremst táknrænt þar sem íslensk skip landa engum makríl í þessum höfnum. 21.12.2010 12:22
Samherjatogari skilar 3,3 milljörðum á árinu Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom í land með fullfermi af frystum síldarflökum í gær og lauk þar með síðustu veiðiferð þessa árs. Áhöfnin á Vilhelm Þorsteinssyni er búin að veiða um 50.000 tonn og skilar þjóðarbúinu um 3,3 milljörðum kr. á þessu ári, sem er met í aflaverðmæti. 21.12.2010 11:45
Skuldatryggingaálagið ekki lægra síðan fyrir hrun Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefur ekki verið lægra síðan nokkru fyrir hrunið eða frá því um sumarið 2008. Álagið stendur nú í 269 punktum. 21.12.2010 11:06
Íslandspóstur kaupir hlut í Fraktmiðlun Íslandspóstur hefur keypt hlut í fyrirtækinu Fraktmiðlun ehf, sem starfar undir heitinu Frakt.is. Fraktmiðlun er alhliða flutningsmiðlun sem sérhæfir sig í flutningum milli landa í flug og sjófrakt ásamt tengdri þjónustu. 21.12.2010 09:45
Líklegt að gengi krónunnar veikist áfram Líklegt þykir að gengi krónunnar muni halda áfram að veikjast sökum útflæðis á vaxtagreiðslum erlendra aðila úr landinu. 21.12.2010 09:05
Fiskafli erlendra ríkja við Ísland hrapar milli ára Fiskafli erlendra ríkja við Ísland var tæp 11 þúsund tonn árið 2009 miðað við tæp 59 þúsund tonn 2008. 21.12.2010 09:02
Íslenska krónan rýrnað um 99,99 prósent frá seinna stríði Íslenska krónan hefur rýrnað um 99,99 prósent frá seinna stríði vegna verðbólgu. Seðlabankinn segir sögu peningastefnu og gjaldmiðlamála á Íslandi vera þyrnum stráða. 20.12.2010 18:40
Búið að afskrifa 272 milljarða af skuldum fyrirtækja Stóru bankarnir og sparisjóðir hafa afskrifað 272 milljarða króna af skuldum fyrirtækja í landinu á tveimur árum. Enn eru þó þúsundir skuldamála fyrirtækja óleyst. Þetta er einn tólfti af því sem bankakerfið hefur afskrifað af skuldum heimilanna. 20.12.2010 18:30
The Economist: Ísland að koma inn úr kuldanum Hið virta hagfræðitímarit The Economist fjallar um muninn á Íslandi og Írlandi í nýjasta tölublaði sínu undir fyrirsögninni: Íslenskur lærdómur, að koma inn úr kuldanum. 20.12.2010 15:21
Þorsteinn dæmdur til að greiða víxil upp á 150 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Þorstein M. Jónsson, oft auknefndur Steini í kók, til að greiða Nýja Landsbankanum víxil að upphæð 150 milljónir kr. ásamt dráttarvöxtum. 20.12.2010 14:43
Stefndi í 40 milljarða tap vegna Eyjafjallajökuls Eldgosið í Eyjafjallajökli hafði gífurleg áhirf á ferðamannastrauminn til Íslands í apríl. Hann minnkaði um 22% í mánuðinum og ef sú fækkun hefði haldist óbreytt út árið stefndi í 40 milljarða kr. tap á gjaldeyristekjum þjóðarinnar. 20.12.2010 13:59
Forsetinn tekur ákvörðun um Icesave í febrúar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að hann muni taka ákvörðun um hvort vísa beri nýjum Icesavesamning til þjóðaratkvæðagreiðslu eða ekki fyrir lok febrúar. Þetta kemur fram í viðtali við forsetann á Bloomberg fréttaveitunni. 20.12.2010 12:00
Fastgengisstefna ekki útilokuð Seðlabanki Íslands viðurkennir í nýrri skýrslu að misbrestur hafi verið á framkvæmd peningamálastefnunnar hér á landi síðan verðbólgumarkmið var tekið upp. Bankinn útilokar ekki að fallið verði frá sjálfstæðri peningastefnu. 20.12.2010 11:57
T Plús nýtt verðbréfafyrirtæki fær starfsleyfi Fjármálaeftirlitið hefur veitt fyrirtækinu T Plús starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki. T Plús er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vörslu- og uppgjörsþjónustu verðbréfa. Fyrirtækið er í eigu Íslenskra verðbréfa, Saga Fjárfestingarbanka og Stapa lífeyrissjóðs. 20.12.2010 11:51
Markaðurinn gerir ráð fyrir 1-1,5% verðbólgu næstu 3 árin Skuldabréfamarkaðurinn gerir ráð fyrir að verðbólga næstu þrjú ár verði undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans eða í kringum 1-1,5% verðbólga á ári. 20.12.2010 11:31
Data Cell ætlar í dómsmál í Noregi vegna Wikileaks Greiðslumiðlunin Data Cell ætlar að höfða dómsmál gegn norsk/danska fjármálafyrirtækinu Teller vegna lokunar þess á greiðslum til aðstandenda Wikileaks. Visa er aðalviðskiptavinur Teller og var lokað fyrir greiðslurnar til Wikileaks þann 7. desember að ósk Visa. 20.12.2010 10:43
Seðlabankinn með slakan árangur í verðbólgubaráttu „Mikilvægt er að skoða þá valkosti sem standa til boða í ljósi þess að árangur þeirrar peningastefnu sem tekin var upp snemma á þessum áratug hefur ekki reynst nægur. 20.12.2010 10:00
Seðlabankinn telur evruna besta kostinn Innganga í EMU, Myntbandalag Evrópu, sem fylgir aðild að Evrópusambandinu, virðist því besti kosturinn, eigi á annað borð að festa gengi krónunnar við evru eða taka hana upp sem innlenda mynt. 20.12.2010 09:33
Byggingakostnaður minnkar Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan desember 2010 er 100,8 stig sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði. 20.12.2010 09:10
Kaupmáttur launa eykst lítillega milli mánaða Vísitala kaupmáttar launa í nóvember 2010 er 107,3 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,0%. 20.12.2010 09:08
Seðlabankinn birtir skýrslu um peningastefnuna Seðlabanki Íslands hefur birt skýrslu um peningastefnu hér á landi og afhent hana efnahags- og viðskiptaráðherra. Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu sjónarmiðum er varða framtíðarfyrirkomulag gengis- og peningamála. 20.12.2010 08:53
Nauðungarsölur fasteigna meir en tvöfaldast milli ára Í lok nóvember 2010 höfðu 425 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þetta er meir en tvöföldun á fjölda nauðungarsalna á fasteignum miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru þær 207 talsins í lok nóvember. 20.12.2010 08:36
Actavis vill kaupa pólskt lyfjafyrirtæki Actavis er meðal áhugasamra kaupenda að pólska lyfjafyrirtækinu Polfa. Samkvæmt frétt Bloomberg fréttaveitunnar mun Actavis berjast við fjögur önnur lyfjafyrirtæki um kaupin. 20.12.2010 08:01
Dráttarvextir komnir niður í 11,5% Seðlabankinn hefur lækkað dráttarvexti um eina prósentu og eru þeir því komnir niður í 11.5%. Þessir vextir fóru hæst í 26,5% í lok ársins 2008 eða skömmu eftir bankahrunið. 20.12.2010 07:45
Landsvirkjun hefur enn ekki fengið lán i Búðarháls Fjárfestingarbanki Evrópu frestar því enn að afgreiða lán til Búðarhálsvirkjunar. Forstjóri Landsvirkjunar segir ljóst að Icesave sé að tefja málið. Fyrir vikið fá bormenn Ístaks ekki jólagjöfina sem þeir höfðu óskað sér. 19.12.2010 19:31
Umfangsmiklar skattahækkanir ákveðnar Fjármagnstekjuskattur og tekjuskattur fyrirtækja hækkar í 20% og erfðafjárskattur tvöfaldast, en lög þessa efnis voru samþykkt á Alþingi í gær. Alls er talið að skattahækkanir skili ríkissjóði rúmum 10 milljörðum á næsta ári. 19.12.2010 18:30
Til áréttingar vegna Icesave fréttar Vegna fréttar okkar í gær um forgangsrétt á greiðslum úr þrotabúi Landsbankans skal árétta að Ragnar Hall, hæstaréttarlögmaður, benti á galla á eldra Icesave samkomulagi sem skrifað var undir í júní 2009. 19.12.2010 16:59
Réttur til atvinnuleysisbóta lengdur í fjögur ár Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar sem lengir rétt fólks til atvinnuleysisbóta tímabundið um eitt ár, úr þremur árum í fjögur. 19.12.2010 10:48
Íslenskir dómstólar skera úr um forgangsrétt á greiðslum Tekist verður á um það fyrir dómstólum hvort Íslendingar njóti forgangsréttar á greiðslum úr þrotabúi Landsbankans. Bretar og Hollendingar eiga um helming af kröfum í þrotabúið á móti íslenska ríkinu. 18.12.2010 18:27
Mikið af loðnu fyrir norðan Skip HB Granda hafa veitt 3.300 tonn það sem af er loðnuvertíðinni. Mikið er af loðnu fyrir norðan land að sögn skipstjóra. Aflanum hefur verið landað til vinnslu á Vopnafirði. Um 700 tonn hafa verið unnin til manneldis en um 2.600 tonn hafa farið til framleiðslu á fiskmjöli og -lýsi. 18.12.2010 06:30
Landsvirkjun fjárfestir fyrir 1,5 milljarð á Norðausturlandi Landsvirkjun áformar að fjárfesta fyrir 1,500 milljónir íslenskra króna í verkefnum á Norðausturlandi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun fyrirtækisins sem samþykkt var á fundi stjórnar Landsvirkjunar í dag. 17.12.2010 17:59