Viðskipti innlent

Fiskafli erlendra ríkja við Ísland hrapar milli ára

Fiskafli erlendra ríkja við Ísland var tæp 11 þúsund tonn árið 2009 miðað við tæp 59 þúsund tonn 2008.

Þetta kemur fram í ritinu Afli erlendra ríkja við Ísland 2009 og heimsafli 2009 sem Hagstofan hefur birt á vefsíðu sinni. Þar segir að Færeyingar stunduðu aðallega veiðar hér við land á síðasta ári og mest var veitt af síld.

Heimsaflinn var tæpar 90 milljónir tonna árið 2008 og dróst saman um 158 þúsund tonn frá árinu 2007. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2008 en Íslendingar voru í 18. sæti heimslistans.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×