Búið að afskrifa 272 milljarða af skuldum fyrirtækja Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 20. desember 2010 18:30
Stóru bankarnir og sparisjóðir hafa afskrifað 272 milljarða króna af skuldum fyrirtækja í landinu á tveimur árum. Enn eru þó þúsundir skuldamála fyrirtækja óleyst. Þetta er einn tólfti af því sem bankakerfið hefur afskrifað af skuldum heimilanna. Fréttastofa óskaði eftir því fyrir nokkrum vikum að fá upplýsingar hjá bönkunum, hversu mikið þeir hefðu afskrifað af skuldum fyrirtækja í landinu eftir hrun. Tölurnar bárust í dag - og eru fyrstu heildartölur sem birtast um hvað raunverulega er búið að afskrifa af skuldum fyrirtækja. Og tölurnar sýna að 272 milljarðar króna hafa verið afskrifaðir af skuldum fyrirtækja og eignarhaldsfélaga frá ársbyrjun 2009. Þar af hefur 71 milljarður tapast vegna fyrirtækja sem bankar hafa neyðst til að taka yfir. Fyrirtæki sem enn eru undir stjórn sömu eigenda hafa hins vegar fengið 41 milljarð króna afskrifaðan. Langmest hefur þó verið afskrifað af skuldum fyrirtækja sem nú eru gjaldþrota eða 160 milljarða króna. Til að setja þessar tölur í samhengi má benda á að í ársbyrjun 2009 skulduðu fyrirtæki og eignarhaldsfélög 1344 milljarða króna. Á sama tíma skulduðu heimilin bönkunum 512 milljarða. Nú er þá búið að afskrifa um 20% af skuldum fyrirtækja og félaga - en um 4% af skuldum heimilanna. Auk þeirra afskrifta sem búast má við hjá heimilum og fyrirtækjum samkvæmt samkomulagi milli stjórnvalda og banka - herma heimildir fréttastofu að í pípunum séu jafnvel hundruð milljarða afskriftir hjá ónýtum eignarhaldsfélögum sem bankarnir hafi enn ekki gengið frá. Ríkið þarf á næsta ári að skera niður um 30 milljarða króna - við lítinn fögnuð - sú tala virkar þó harla lítil í samanburðinum - enda er búið að afskrifa níu sinnum þá tölu í bankakerfinu af skuldum fyrirtækja.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira