Gréta María óvænt hætt hjá Prís Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2025 13:30 Gréta María Grétarsdóttir er hætt sem framkvæmdastjóri Prís. Vísir/vilhelm Gréta María Grétarsdóttir er hætt störfum sem framkvæmdastjóri Prís. Þetta staðfestir hún við Vísi. Hún hefur verið framkvæmdastjóri lágvöruverslunarinnar síðan hún opnaði dyr sínar í ágúst í fyrra en var þar á undan forstjóri Heimkaupa.
Gréta María vildi ekki tjá sig nánar um tímamótin sem hún segir að hafi borið upp á mánudaginn. Í nýrri mælingu verðlagseftirlits ASÍ mældist verðlag í Prís lægst á átta algengum jólavörum. Gréta María hefur verið áberandi í viðskiptalífinu undanfarin ár. Hún er menntaður véla- og iðnaðarverkfræðingur, var í bankageiranum til 2016 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra Krónunnar. Hún gegndi starfinu í fjögur ár en sagði óvænt upp starfi sínu þar árið 2020 vegna framgöngu Festismanna í hlutabótaumræðunni. Festi þáði bætur frá ríkinu þrátt fyrir að sjá fram á milljarða króna hagnað það árið. Gréta réð sig í framhaldinu til sjávarútvegsfyrirtækisins Brims og fór svo í ferðaþjónustuna með Arctic Adventures. Hún réð sig svo til Heimkaupa áður en hún settist í brúna hjá Prís. Ekki náðist í Auði Daníelsdóttur forstjóra Dranga. Þá náðist heldur ekki í Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformann Skeljar, stærsta eiganda Dranga sem á Prís. Uppfært klukkan 16:10 „Prís mun færast undir það svið sem Svanur Valgeirsson framkvæmdastjóri hjá Samkaupum stýrir í dag. Gréta María hefur leitt uppbyggingu Prís frá upphafi og skilar af sér sterku vörumerki, við þökkum henni fyrir vel unnin störf og óskum henni velfarnaðar,“ segir Auður Daníelsdóttir forstjóri Drangs í skriflegu svari til Vísis. Rætt var við Grétu Maríu í Íslandi í dag þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra Prís í fyrra.
Matvöruverslun Vistaskipti Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira