Viðskipti innlent

Héraðsdómur hafnar 4,7 milljarða kröfu Ares banka

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Ares-banka um að Nýi Landsbankinn greiddi hinum spænska banka þrjátíu milljónir evra, eða fjóran og hálfan milljarð króna vegna tapaðrar inneignar í peningamarkaðssjóði.

RUV greinir frá þessu á vefsíðu sinni en þar er rætt við Borgar Þór Einarsson, lögmann Nýja Landsbankans sem segir að dómurinn hafi fordæmisgildi. Borgar Þór segir að kröfur á íslensku bankanna vegna peningamarkaðsinnlána nemi jafnvel hátt í tvö hundruð milljörðum króna.

Aresbanki krafðist þess að inneign sín í peningamarkaðssjóði gamla Landsbankans yrði færð yfir í nýja bankann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×