Nær öruggt að ESB setur löndunarbann á makríl 21. desember 2010 12:22
Samkvæmt vefsíðunni FISHupdate er talið nær öruggt að ESB muni setja löndunarbann á íslenskan makríl í evrópskum höfnum. Þetta bann yrði þó fyrst og fremst táknrænt þar sem íslensk skip landa engum makríl í þessum höfnum. Á FISHupdate segir að dropinn sem fyllti mælinn hvað þetta löndunarbann varðar er að Íslendingar ákváðu nýlega að auka við þegar umdeildan kvóta sinn í makrílveiðum úr 130.000 tonnum á þessu ári og í 146.800 tonn á næsta ári. Skoskir ráðherrar og talsmenn útgerða fagna löndunarbanninu og segja það vera réttláta refsingingu fyrir „ábyrgðarlausa hegðun" Íslendinga. Fram kemur á vefsíðunni að Maria Damanaki sjávarútvegsstjóri ESB muni þrýsta í gegn banni á útflutning makrílafurða til ESB en greint var frá því á vísir.is í síðustu viku að starfsmenn Damanaki væru að vinna að löggjöf sem gerði slíkt mögulegt. Það hefði þó væntanlega sömu áhrif og löndunarbannið, það er lítil sem engin. FISHupdate segir að mikil eftirspurn eftir hágæða hvítum fiski geri það auðvelt fyrir Íslendinga að selja makrílafurðir sínar utan ESB. Nefnir vefsíðan sem dæmi að Færeyingar hafi auðveldlega komist frá löndunarbanni á makríl með því að semja við Rússa um að kaupa allan makríl sem þeir veiða. Hvað varðar löndunarbann á aðrar afurðir eins og þorsk eða ýsu segir FISHupdate að slíkt sé afar ólíklegt enda myndi það fyrst og fremst stórskaða fiskiðnaðinn á stöðum eins og Grimsby og Hull.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira