Skuldatryggingaálagið ekki lægra síðan fyrir hrun 21. desember 2010 11:06
Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefur ekki verið lægra síðan nokkru fyrir hrunið eða frá því um sumarið 2008. Álagið stendur nú í 269 punktum. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur verið nokkuð stöðugt upp á síðkastið. Í lok dags í gær stóð álagið til fimm ára í 269 punktum (2,69%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni sem er á svipuðu róli og það hefur verið upp á síðkastið. Þannig hefur áhættuálagið á ríkissjóð verið að meðaltali 270 punktar það sem af er desembermánuði sem er 6 punktum lægra en það var að meðaltali mánuðinn á undan en 143 punktum lægra en það var að meðaltali í desember í fyrra. Í raun hefur áhættuálagið ekki verið svona lágt, ef tekið er mið af meðaltali mánaðar, frá því í júní árið 2008, þ.e. áður en bankahrunið skall á. Ekki er hægt að segja hið sama um þróunina á skuldatryggingaálagi almennt á meðal annarra ríkja í Vestur Evrópu. Hefur álagið á flest þessi ríki verið að hækka og á mörgum hverjum hefur það aldrei verið jafn hátt og þennan mánuðinn. Þetta á við skuldatryggingaálagið á Grikkland sem hefur að meðaltali verið 929 punktar það sem af er þessum mánuði og er sömu sögu að segja um álagið á Spán (319 punktar), Ítalíu (208 punktar), Belgíu (195 punktar) og svo Frakkland (98 punktar). Þetta hefur gert það að verkum að meðaláhættuálagið á ríki Vestur Evrópu hefur ekki verið jafn hátt að jafnaði og einmitt þennan mánuðinn, en það hefur að meðaltali verið 204 punktar og því ekki langt frá álaginu á skuldir íslenska ríkisins, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira