Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Beat bjartsýnn á að gengi krónunnar styrkist Beat Siegenthaler sérfræðingur TD Securities í nýmarkaðsríkjum er bjartsýnn á að gengi krónunnar muni styrkjast á næsta ári. Þetta kemur fram í fréttabréfi Siegenthaler til viðskiptavina sinna. 29.9.2009 14:31
Keyptu af sjálfum sér fyrir sjálfa sig með kröfu á sjálfa sig Wernersbræður létu eigin kröfu á hendur Milestone, ganga upp í kaup á Lyfjum og heilsu út úr fyrirtækinu. Þetta staðfestir Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone. 29.9.2009 12:54
Ár er liðið frá upphafi bankahrunsins á Íslandi Í dag er ár frá því ljóst varð að Glitnir stóð á brauðfótum. Hann varð fyrstur hinna íslensku banka til að verða þjóðnýttur en fall hans markar endalok íslensku útrásarinnar og upphaf þeirra efnhagsþrenginga sem þjóðin finnur á eigin skinni. 29.9.2009 12:32
Íbúða- og bílakaup verða áfram í lágmarki Aðeins 2,8% Íslendinga telja það mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir munu kaupa hús eða íbúða á næstu 6 mánuðum. Hefur þetta hlutfall ekki áður mælst jafn lágt í núverandi kreppu. Um 7,5% telja það líklegt eða frekar líklegt að þeir muni kaupa bíl á sama tímabili. 29.9.2009 12:13
Bresk hönnunarstofa velur Nordic eMarketing Íslenska ráðgjafafyrirtækið Nordic eMarketing í Bretlandi hefur verið ráðið til að markaðssetja bresku hönnunarstofuna Williams Murray Hamm (WMH) á Internetinu. 29.9.2009 12:04
SA og VÍ hrauna yfir skattastefnu ríkisstjórnarinnar „Samtök aðila í atvinnurekstri vara við skattastefnu stjórnvalda, enda vinnur hún gegn markmiðum um endurreisn hagkerfisins, hærra atvinnustigi og uppbyggingu sterks og sjálfbærs velferðarkerfis." 29.9.2009 11:51
Sókn í leiguhúsnæði hefur aukist um 25% milli ára Talsvert aukin sókn hefur verið í leiguhúsnæði á undanförnum mánuðum en á fyrstu átta mánuðum ársins höfðu alls 7.406 leigusamningum með íbúðarhúsnæði verið þinglýst samanborið við 5.916 á sama tímabili fyrir ári. Þetta er aukning upp á 25%. 29.9.2009 10:32
Hugmyndir verða að tækifærum í Iðnó - verðlaun fyrir þær bestu Jeff Taylor, stofnandi Monster.com, kemur í annað sinn til Íslands á nokkrum mánuðum 5. okt næstkomandi. Hann hyggst hjálpa íslenskum frumkvöðlum að breyta hugmyndum í tækifæri, fyrirtæki og blómleg viðskipti. Fólk er hvatt til að skila inn hugmyndum fyrir miðnætti á morgun. 29.9.2009 10:10
Ríkissjóður eykur útgáfu ríkisbréfa um 60 milljarða Ríkissjóður hefur í hyggju að auka útgáfu ríkisbréfa á árinu um 60 milljarða kr. Yrði útgáfan í heild því 205 milljarðar kr. ef áformin ganga eftir. 29.9.2009 09:19
Vísitala framleiðsluverðs hækkar um 3,3% Vísitala framleiðsluverðs í ágúst 2009 var 181,6 stig og hækkaði um 3,3% frá júlí 2009. 29.9.2009 09:08
Aflaverðmætið jókst um 8,4 milljarða milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 54 milljörðum króna á fyrri helming ársins 2009, samanborið við rúmlega 45 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 8,4 milljarða eða 18,6 % á milli ára. 29.9.2009 09:05
Gjaldþrot fyrirtækja orðin 555 talsins á árinu Í ágúst 2009 voru 12 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 20 fyrirtæki í ágúst 2008. Fyrstu 8 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 555 talsins. 29.9.2009 09:02
Eignir ýmissa lánafyrirtækja lækkuðu um 5,8 milljarða Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.304 milljarðar kr. í lok ágúst og lækkuðu um 5,8 milljarða kr. í mánuðinum. 29.9.2009 08:47
Staða markaðsskuldabréfa lækkar enn Staða markaðsskuldabréfa í lok ágúst 2009 nam 1.527,7 milljörðum kr. og hækkaði um 11,3 milljarða kr. í mánuðinum, samanborið við lækkun upp á 29,4 milljarða kr. í mánuðinum á undan. 29.9.2009 08:40
Forsætisráðherra: Getum ekki beðið lengur eftir AGS Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að Ísland hafi ekki efni á því að bíða lengur eftir endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og annarri útborgun sjóðsins í framhaldinu. 29.9.2009 08:32
Byggðastofnun tapaði tæpum 1,7 milljörðum, eigið fé horfið Byggðastofnun skilaði 1.663 milljón kr. tapi á fyrri helming ársins. Fjárhagsstaða stofnunarinnar er mjög slæm því samkvæmt árshlutauppgjörinu er eigið fé stofnunarinnar orðið neikvætt um 118,7 milljónir kr. 29.9.2009 08:17
Byr segist víst hafa skilað ársreikningi Forsvarsmenn Byr vilja meina að þeir eigi ekki að vera á svörtum lista ríkisskattstjóra vegna vanskila á ársreikningum. Þeir halda því fram að þeir hafi fyrir löngu afgreitt ársreikning fyrir árið 2008. Reikninginn má finna á vefsíðu bankans. 28.9.2009 20:06
Mismunandi kjör banka vegna húsnæðislána Viðskiptavinir Kaupþings og Landsbankans geta ekki treyst því að fá sömu kjör og fólk í viðskiptum við Íslandsbanka - sem geta eftir rúman mánuð fengið milljónir - og jafnvel tugmilljónir af húsnæðislánum sínum afskrifaðar. 28.9.2009 18:50
Marel hækkaði um 5,2% í dag Marel var á mikilli siglingu í kauphöllinni og hækkaði um 5,2% í viðskiptum dagsins. Úrvalsvísitalan OMX16 hækkaði um 0,9% og stendur í tæpum 809 stigum. 28.9.2009 15:45
Spáir 9% ársverðbólgu í október Greining Nýja Kaupþings gerir ráð fyrir að neysluverð hækki um 0,5% í október næstkomandi og að ársverðbólgan mælist þá 9%. 28.9.2009 14:00
Um 22.000 fyrirtæki hafa ekki skilað ársreikningum Straumur Burðarás og Fáfnir eru meðal þeirra 22.000 fyrirtækja sem ekki hafa skilað ársreikningum til ársreikningaskrár. Listi yfir fyrirtækin hefur verið birtur á vef ríkisskattstjóra. 28.9.2009 12:02
Verðbólguþrýstingur fer ört minnkandi Þrátt fyrir talsverða hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) nú vegna útsöluloka og fjörkipps í húsnæðisliðnum er ljóst að verðbólguþrýstingur fer ört minnkandi. Innlendur kostnaðarþrýstingur er lítill, gengi krónu hefur verið tiltölulega stöðugt undanfarna mánuði og sömu sögu má segja um hrávöruverð erlendis. 28.9.2009 11:55
Icelandair eykur áætlunarflug sitt um allt að 10% Icelandair hefur ákveðið að auka áætlunarflug sitt á næsta ári um allt að 10% og gera stórátak í því að fjölga ferðamönnum til landsins. Icelandair flýgur til Íslands frá 26 borgum í Evrópu og Norður-Ameríku og mun á næsta sumri fjölga vikulegum ferðum úr 140 í alls 155 flug á viku eða 23 flug daglega á háannatímanum. 28.9.2009 10:47
Glitnir var með svipaða lánastefnu og Kaupþing Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir í samtali við Bloomberg fréttaveituna að Glitnir hafi haft svipaða lánastefnu og Kaupþing, það er lán til skyldra aðila og eigenda bankans. 28.9.2009 10:31
Deutsche Bank: Ísland í betri stöðu en Írland Sérfræðingar Deusche Bank telja að Ísland sé í betri stöðu en Írland til að ná sér út úr kreppunni. Þetta kemur fram í minnisblaði frá bankanum sem ber yfirskriftina: "Írland v Ísland: Er munurinn í rauninni aðeins eitt orð?" 28.9.2009 10:16
Ársverðbólgan nær óbreytt í 10,8% Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2009 er 349,6 stig og hækkaði um 0,78% frá fyrra mánuði. Þetta samsvarar því að ársverðbólgan mælist nú 10,8% en hún mældist 10,9% í ágúst. 28.9.2009 09:03
Segir tilboð Íslandsbanka til skuldara vera hlægilegt Marínó G. Njálsson stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna segir að tilboð Íslandsbanka til skuldara í vanda sé hlægilegt. Þetta kemur fram á bloggsíðu Marínós. 28.9.2009 08:57
Lognið heldur áfram á fasteignamarkaðinum 45 kaupsamningum var þinglýst vikuna 18 til 24. september á höfuðborgarsvæðinu sem er litlu meira en meðaltal undangenginna tólf vikna. Þá var velta tæpir 1,2 milljarðar kr. sem er svipað og meðaltal síðustu tólf vikna þar á undan. 28.9.2009 07:56
Danir loka bensíndælunum Sífellt fleiri ökumenn í Danmörku stinga af án þess að greiða reikninginn þegar þeir taka bensín. Nú finnst stjórnendum olíufélaganna nóg komið, eftir því sem fram kemur á JyskeVestkysten. 27.9.2009 19:43
Hlutafjáraukning Existu er kolólögleg að mati lögfræðinga Hlutafjáraukning Existu þar sem bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir tryggðu sér meirihluta í félaginu er kolólögleg að mati sérfræðinga sem fréttastofa leitaði álits hjá. Engar aðgerðir eru útilokaðar af hálfu stærstu lífeyrissjóða landsins vegna málefna Existu. 26.9.2009 18:43
Þolinmæði kröfuhafa Exista þrotin „Þegar Exista seldi Bakkavör tók steininn úr. Þá þvarr allt traust og við hjá bankanum misstum endanlega þolinmæðina,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings. 26.9.2009 06:00
Eignastýringafélag kaupir rúm fimm prósent í Marel Sjóðir á vegum Columbia Wanger Asset Management hafa fest kaup á samtals tæplega 32,2 milljónum hluta í Marel Food Systems hf. sem jafngildir 5,2% eignarhlut. Viðskiptin fara fram á genginu 59,0. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel. 25.9.2009 21:28
Nýja Kaupþing kærir forsvarsmenn Exista til sérstaks saksóknara Nýi Kaupþing banki hefur kært forsvarsmenn Exista til sérstaks saksóknara vegna sölu á hlut Exista í Bakkavör Group þann 11. september 2009 samkvæmt tilkynningu frá bankanum. 25.9.2009 17:27
HB Grandi hækkaði um 2,2% HB Grandi hækkaði um 2,2% í kauphöllinni í dag í viðskiptum upp á 4,6 milljónir kr. Marel hækkaði einnig eða um 0,5%. 25.9.2009 16:04
Landsbankamenn hanna leiki fyrir Apple iPhone og iPod Fyrrum starfsmenn Landsbankans, sem unnu á vefhönnunardeild bankans, vinna nú við að hanna tölvuleiki fyrir Apple iPhone og iPod. Þeir hafa stofnað sitt eigið fyrirtæki utan um þessa starfsemi, Dexoris, og eru þegar með einn leik á markaðinum sem ber nafnið Peter und Vlad. 25.9.2009 15:34
Hæstiréttur felldi niður heimild stjórnar Soffaníasar Cecilssonar Hæstiréttur felldi í gær úr gildi heimild stjórnar Soffaníasar Cecilssonar á Grundarfirði, til að veita framkvæmdastjóra félagsins umboð til fjárfestinga. 25.9.2009 12:58
Evrubréf ríkissjóðs hafa hækkað um helming í verði Stærsti skuldabréfaflokkur ríkissjóðs sem útgefinn er í evrum hefur hækkað í verði á erlendum mörkuðum um helming (50%) frá byrjun marsmánaðar. Fyrir sjö mánuðum síðan fengust rúmlega 60 cent fyrir hverja evru nafnverðs þessara bréfa en í gær voru verðtilboð í þau nálægt 90 centum á evru nafnverðs. 25.9.2009 12:20
Líkir innistæðubréfum SÍ við urðun kjötfjallsins fyrr á tíð Greining Kaupþings segir að markmið Seðlabankans (SÍ) með endurvakningu á útgáfu innistæðubréfa sé að hækka verð á peningum, þ.e. að hækka innlánsvexti í bankakerfinu, rétt eins og urðun kjötfjallsins á sínum tíma var ætluð til að halda uppi verði á kjöti með því að draga úr umfram framboði á þeirri vöru. 25.9.2009 12:08
Hræðsla bankamanna lamar bankakerfið Ákvörðunarfælni bankastarfsmanna og minnkandi lánsfjáreftirspurn skýrir að mestu leyti af hverju peningar safnast nú fyrir inni í viðskiptabönkunum. Þetta er mat seðlabankastjóra. Hann segir að hræðsla bankamanna við að taka ranga ákvörðun hafi lamandi áhrif á bankakerfið. 25.9.2009 12:04
FME ætlar að koma á fót eigin víkingasveit Fjármálaeftirlitið (FME) ætlar að koma á fót eigin víkingasveit til að koma í veg fyrir annað bankahrun ef marka má orð Gunnars Andersen forstjóra FME í samtali við endurskoðendavefinn Complinet. 25.9.2009 11:32
Áfangastaðir Iceland Express aldrei verið fleiri Iceland Express ætlar að hefja flug til Lúxemborgar næsta sumar. Flogið verður tvisvar í viku frá og með 1. júni, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þar með fjölgar áfangastöðum félagsins í 22 og hafa aldrei verið fleiri. Nýverið hefur félagið tilkynnt um áætlunarflug til Mílanó á Ítalíu og Birmingham í Bretlandi. 25.9.2009 10:13
Fyrstu hópuppsagnir í sögu Jarðborana Þar sem ljóst er að mannaflaþörf Jarðborana hf. minnkar til muna á næstunni eru uppsagnir um 30 starfsmanna óhjákvæmilegar. Þetta er í fyrsta sinn í sögu félagsins sem gripið er til hópuppsagna. 25.9.2009 10:02
Forstjóri Atorku lætur af störfum Magnús Jónsson hefur í dag látið af störfum sem forstjóri Atorku Group hf. í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. 25.9.2009 09:54
Ísland með fjórðu hæstu vexti í heimi Hagfræðideild Landsbankans hefur tekið saman uplýsingar yfir stýrivexti í fjölmörgum löndum heims og sést þar að þótt vextir séu vissulega háir á Íslandi eru til lönd þar sem vextir eru enn hærri. Ísland er raunar með fjórðu hæstu stýrivexti í heiminum. 25.9.2009 09:28
Byr tekur yfir viðbótalífeyrissparnað Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is. Færist sparnaðurinn sjálfkrafa til Byrs, þeim að kostnaðarlausu, hálfum mánuði eftir að þeim berst kynningarbréf þess efnis. 24.9.2009 17:01