Viðskipti innlent

Ársverðbólgan nær óbreytt í 10,8%

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2009 er 349,6 stig og hækkaði um 0,78% frá fyrra mánuði. Þetta samsvarar því að ársverðbólgan mælist nú 10,8% en hún mældist 10,9% í ágúst.

Í frétt um málið á vefsíðu Hagstofunnar segir að verð á fötum og skóm hækkaði um 6,2% (vísitöluáhrif 0,35%) og verð á dagvörum um 1,5% (0,26%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,8% (0,10%) og voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,14% en af lækkun raunvaxta -0,04%.

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,8% (-0,15%) og verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 12,7% (-0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,5% sem jafngildir 6,1% verðbólgu á ári (8,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).










Fleiri fréttir

Sjá meira


×