Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Landsbankinn: Eignasafnið rýrnar um 95 milljarða Eignasafn Landsbanks hefur rýrnað um 95 milljarða frá fyrra mati sem gert var í febrúar. Talið er að um 115 milljarðar muni lenda á Íslenska ríkinu vegna Icesave samkomulagsins þegar það verður gert upp. 22.6.2009 12:11
Segir verðbólguna aukast í endurskoðaðri spá Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,9% frá fyrri mánuði og að verðbólgan fari upp í 11,7% og hækkar lítillega en nú er hún 11,6%. Hagstofan birtir vísitöluna fyrir júnímánuð á miðvikudaginn kemur. 22.6.2009 11:16
Fyrsta sjálfvirka heimilisbókhaldið á Íslandi Landsbankinn hefur opnað aðgang að sjálfvirku Heimilisbókhaldi í Einkabankanum sem veitir viðskiptavinum bankans mjög góða yfirsýn yfir fjármál heimilisins. Þessi sjálfvirka lausn er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. 22.6.2009 11:08
Skuldabréf Frjálsa sett á Athugunarlista Skuldabréf útgefið af Frjáls Fjárfestingarbankanum hf. hefur verið fært á Athugunarlista kauphallarinnar. 22.6.2009 10:54
Ástandið á fasteignamarkaðinum viðvarandi næstu misserin Greining Íslandsbanka segir að útlit sé fyrir að ástandið á fasteignamarkaðinum verði viðvarandi næstu misserin þar sem byggingarkostnaður mun hækka, verð íbúðarhúsnæðis lækka og draga mun úr nýfjárfestingum. 22.6.2009 10:42
Rólegur mánudagsmorgun á hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa Eimskipafélagsins hækkaði um 42,86 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins á hlutabréfamarkaðinu. Ein viðskipti upp á rúmar 32 þúsund krónur standa á bak við viðskiptin. 22.6.2009 10:14
Greiðslur berast til Edge innstæðueigenda í Þýskalandi Skilanefnd Kaupþings hefur hafið endurgreiðslur til innstæðueigenda Bankans í Þýskalandi og þegar sent fyrirmæli um endurgreiðslu innstæðna til um 20.000 viðskiptavina. 22.6.2009 10:09
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar aðeins Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan júní 2009, er 477,9 stig sem er hækkun um 0,6% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í júlí 2009. 22.6.2009 09:03
Skattahækkanir kosta hverja fjölskyldu 130 þúsund í ár Skattahækkanir á þessu ári verða um 130 þúsund krónur að meðaltali á hverja fjölskyldu, en 270 þúsund á næsta ári en þó ber að geta þess að um 20% af skatttekjunum eru vegna aukinna skatta á háar tekjur sem hefur því ekki áhrif á ráðstöfunartekjur þeirra sem eru með lægri laun. 21.6.2009 08:42
Kíkja í skattaskjól Hollendingar og Bretar munu aðstoða Íslendinga við að komast yfir bankaupplýsingar íslenskra viðskiptamanna í skattaparadísum, samkvæmt samkomulag sem gert var samhliða Icesave-samkomulaginu. 20.6.2009 18:39
Góðgerðasamtök fá tap sitt ekki greitt Breska ríkið mun ekki koma góðgerðasamtökum sem misstu fé í íslenska bankahruninu til hjálpar. Þetta kom fram í svari fjármálaráðuneytis landsins við skýrslu þingmannanefndar um viðbrögð við hruni Landsbankans, Glitnis og Kaupþings. Nefndin hafði lagt til að góðgerðasamtökum yrði bætt tap sitt upp. 20.6.2009 11:12
Milljarðamæringur kærður fyrir risasvikamyllu Bandaríski milljarðamæringurinn Allen Stanford á yfir höfði sér 375 ára dóm, en hann er sakaður um að hafa rekið svikamyllu sem velti alls sjö milljörðum Bandaríkjadala, eða tæplega 900 milljörðum króna. 20.6.2009 10:27
Joly gagnrýnir SAS-flugfélagið Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna efnahagshrunsins og fyrrverandi rannsóknardómari í Frakklandi, er meðal þeirra sem harðlega hafa gagnrýnt norræna flugfélagið SAS fyrir tengsl við fyrirtæki í skattaparadís. 20.6.2009 08:30
SPRON og Frjálsi sækja um slitameðferð Bráðabirgðastjórn SPRON og stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hafa sótt um slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur með vísan til laga um fjármálafyrirtæki. 20.6.2009 08:21
Sátt að nást um eignarhaldsfélagið Allgóð sátt hefur náðst um frumvarp um eignaumsýslufélag ríkisins í efnahags- og skattanefnd. Helst er deilt um hvernig stjórn félagsins skuli skipuð. Annarri umræðu um frumvarpið lauk á þingi í gær. 20.6.2009 08:00
Leita nýrra tækifæra í samdrætti Air Atlanta Icelandic og norska einkaþotuleigan Sundt Air hafa hafið samstarf undir heitinu „Sundt Atlanta Skybridge“. 20.6.2009 07:00
Nova fær GSM 1800-leyfi PFS Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur úthlutað símafyrirtækinu Nova tíðniheimild á GSM 1800 MHz-tíðnisviðinu, án útboðs. 20.6.2009 06:00
Seðlabankinn boðar útflytjendur til viðtals Seðlabanki Íslands hyggst boða tíu til tuttugu stærstu útflutningsfyrirtæki landsins á fund til að fara yfir gjaldeyrisviðskipti þeirra. „Við munum setjast niður með þeim og fara yfir þeirra viðskipti,“ segir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Seðlabanka Íslands. 20.6.2009 06:00
Skuldir veikja gengi krónunnar Viðræður eiga sér nú stað á milli Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Evrópu í Lúxemborg vegna skuldar Landsbankans upp á einn milljarð evra, jafnvirði tæpra 180 milljarða íslenskra króna. 20.6.2009 05:00
Yfir 90% þorskkvótans er staðsettur á landsbyggðinni Yfirgnæfandi hlutfall aflaheimilda er á landsbyggðinni, þ.e. utan Reykjavíkur- og Suðvesturkjördæma. Til dæmis er yfir 90% þorskkvótans bundinn við landsbyggðina og svipað gildir um ýsuna. 19.6.2009 18:23
Össur lækkaði í töluverðum viðskiptum Gengi bréfa í Össuri lækkuðu um 1,3% í töluverðum viðskiptum í dag, sem námu samtals nær 84 milljónum kr. Úrvalsvísitalan hækkaði hinsvegar um 0,25% og stendur í 266 stigum. 19.6.2009 15:24
Verðbólga hækkar í júní en fer síðan lækkandi Greining Kaupþings spáir 1,1% hækkun vísitölu neysluverðs í júní og hækkar þá tólf mánaða verðbólga upp í 11,9%, úr 11,7% mánuðinn á undan. Tólf mánaða verðbólga mun hinsvegar lækka á ný í júlí og halda áfram að lækka það sem eftir lifir árs, jafnvel þótt krónan haldi áfram að veikjast. Verðlag án húsnæðis hækkar um 1,2%. 19.6.2009 13:58
Gerir ekki ráð fyrir lækkun stýrivaxta í júlí „Nokkuð ljóst er því hvert stefnir með næstu vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar sem verður mjög hófleg ef einver," segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem m.a. er rætt um fundargerð peningastefnunefndar sem birt var á heimasíðu Seðlabankans í gær. 19.6.2009 13:24
Tal með 15% markaðshlutdeild í netþjónustu Samkvæmt nýútkominni skýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar kemur fram að Tal mælist með 14,8% markaðshlutdeild á internetmarkaði. Þar kemur og fram að Tal hefur vaxið hratt í heimasímaþjónustu og bætt við sig markaðshlutdeild milli áranna 2007 og 2008. 19.6.2009 12:49
Landsbankinn semur við Citibank um gjaldeyrisreikninga Landsbankinn segir að nú liggi fyrir samstarfssamningur við Citibank um opnun reikninga í öllum helstu viðskiptamyntum bankans, bandaríkjadal, evru, pundi svissneskum franka og japönsku jeni. 19.6.2009 12:08
Icelandair flytur starfsemi til Boston og Íslands Icelandair hefur ákveðið að flytja svæðisskrifstofu félagsins í Bandaríkjunum frá Columbia í Maryland til Boston. Jafnframt verða gerðar umtalsverðar breytingar á starfseminni ytra, sem m.a. felur í sér að hluti verkefna hennar, og störf, flytjast til Íslands. 19.6.2009 11:50
Steindauður föstudagsmorgun í kauphöllinni Opnun markaðarins í kauphöllinni í dag er vart í frásögur færandi. Aðeins eitt félag hefur hreyfst í viðskiptum upp á rúmlega 360 þúsund kr. Þetta er Bakkavör sem hefur hækkað um 1,7%. 19.6.2009 11:07
Fitch Rating telur litlar líkur á að Alþingi hafni Icesave Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Rating, telur mjög litlar líkur á að Alþingi Íslendinga neiti Icesave lánssamningnum þar sem mikill pólitískur vilji er í landinu í að koma hagkerfinu á réttan kjöl. Þetta er haft eftir Paul Rawkins, framkvæmdastjóra hjá Fitch Rating í London. Lánshæfismat ríkisins jaðrar við rusl einkunn. 19.6.2009 10:29
Íbúðaverð lækkað um tíund Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 10,5 prósent síðustu 12 mánuði, samkvæmt nýbirtum tölum Fasteignaskrár. 19.6.2009 06:00
Vilja endurheimta traust Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöllin hafa gefið út endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Viðskiptaráðherra segir þær góðar og mikilvægar, en vekja blendnar tilfinningar. 19.6.2009 00:01
Tveir í peningastefnunefnd vildu óbreytta stýrivexti Tveir af fimm nefndarmönnum peningastefnunefndar Seðlabankans vildu halda stýrivöxtum óbreyttum í 13% við stýrivaxtaákvörðun bankans í byrjun júní mánaðar. Þrír nefndarmenn töldu ráðlegt að lækka stýrivexti um eitt prósent eins og raunin varð. 18.6.2009 16:48
Stykjum úr sjóðnum AlheimsAuður úthlutað á morgun Á morgun, 19. júní, verður í fyrsta sinn úthlutað styrkjum úr sjóðnum AlheimsAuður sem er góðgerðarsjóður á vegum Auðar Capital. Auður Capital veitir ráðgjöf á sviði fjárfestinga en fyrirtækið hefur starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti FME. 18.6.2009 16:15
Meir en einn farsími á hvern íbúa landsins Farsímaáskrift hefur aukist hröðum skrefum hérlendis undanfarin ár og um áramótin voru áskrifendur að farsímum orðnir rúmlega 330.00 talsins sem er meir en einn farsími á hvern íbúa landsins. 18.6.2009 16:14
Mesta hækkunin hjá Bakkavör og Icelandair Bakkavör og Icelandair hækkuðu mest í kauphöllinni í dag í fremur líflegum viðskiptum sem alls námu hátt í 50 milljónum kr. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,3% og stendur í 265 stigum. 18.6.2009 16:01
Miklar endurbætur á leiðbeiningum um stjórnarhætti Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöllin gáfu út í dag endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á þessu sviði. 18.6.2009 15:04
Dregur úr hlutfallslegri aukningu atvinnuleysis Dregið hefur úr hlutfallslegri aukningu fjölda atvinnulausra á landinu öllu en í maí mánuði minnkaði fjöldi þeirra sem skráðir eru atvinnulausir um 0,4 prósentustig. 18.6.2009 14:53
Goodwin gefur eftir Fred Goodwin, hinn umdeildi fyrrverandi forstjóri Royal Bank of Scotland, hefur ákveðið að afsala sér meira en helmingi umsaminna eftirlauna sinna. Þau nema jafnvirði nærri 150 milljónum króna á ári. Mjög hefur verið þrýst á um að hann gerði það í ljósi þess að breska ríkið bjargaði bankanum frá hruni. 18.6.2009 12:45
Fjöldi heimila með neikvæða eiginfjárstöðu fjórfaldast Í árslok 2007 voru um 7.500 heimili með um 3,1 milljónir kr. að meðaltali í neikvæðu eigin fé. Nú er áætlað að þau verði orðin um 28.500 talsins með um 6,4 milljónir kr. að meðaltali í neikvæðu eigin fé í árslok 2009. Þetta er fjórfjöldun á fjölda heimila og tvöföldun á upphæðinni. 18.6.2009 12:40
Búist við enn frekari lækkun fasteignaverðs Búast má við langvinnri niðursveiflu á íbúðamarkaði í kjölfar kreppunnar. Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að íbúðaverð muni lækka um 20% að nafnvirði á þessu ári og um 10% til viðbótar á næsta ári. 18.6.2009 12:02
Gjaldeyrisforðinn rýrnar verulega við afnám haftanna Gjaldeyrisforði Seðlabankans mun rýrna verulega eftir að hafist verður handa um að afnema gjaldeyrishöftin sem gilda í landinu. Reiknað er með að höftin verði afnumin í áföngum og að sú þróun hefjist í haust. 18.6.2009 11:24
Tapa 1,3 milljörðum vegna Icesave Sérstök hagsmunasamtök Icesave innstæðueigenda á eyjunni Guernsey, sem heyrir undir bresku krúnuna, eru æfareið þar sem bresk yfirvöld ætla ekki að ábyrgjast innstæður sparifjáreigendanna að fullu. Sparifjáreigendurnir munu tapa rúmum 1,3 milljörðum króna. 18.6.2009 11:16
Lífleg viðskipti með bréf í Össuri Töluvert líf hefur verið með viðskipti í Össuri í kauphöllinni í morgun eða fyrir rúmlega 21 milljón kr. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,07% og stendur í tæpum 265 stigum. 18.6.2009 11:02
Vextir ÍLS halda áfram að lækka Vextir Íbúðalánasjóðs (ÍLS) halda áfram að lækka en sjóðurinn hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti. 18.6.2009 10:11
Bakkavör ræðir um framlengingu á skuldabréfum til 2012 Bakkavör á nú í viðræðum við hóp innlendra fagfjárfesta og banka sem eru með um 70% af skuldum móðurfélagsins en stærstur hluti þeirra eru eigendur að skuldabréfum sem félagið hefur gefið út og skráð eru í Kauphöllinni. 18.6.2009 08:04
Egilsson í greiðslustöðvun Stjórn Egilsson hf., sem rekur meðal annars Office 1 búðirnar, hefur ákveðið að óska eftir greiðslustöðvun meðan unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að greiðslustöðvunin sé framkvæmd í samráði við stærsta kröfuhafa Egilsson hf., Nýja Landsbanka Íslands. Liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins er að fá ráðgjafa til að leggja heildstætt mat á virði félagsins, útfæra leiðir til að tryggja framtíðar rekstur félagsins og tryggja jafna hagsmuni allra lánardrottna. 18.6.2009 07:22