Skuldir veikja gengi krónunnar 20. júní 2009 05:00 Landsbankinn skuldar Evrópska seðlabankanum 180 milljarða króna. Mynd/Vilhelm
Viðræður eiga sér nú stað á milli Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Evrópu í Lúxemborg vegna skuldar Landsbankans upp á einn milljarð evra, jafnvirði tæpra 180 milljarða íslenskra króna. Skuldin, sem kallast Avens, er tilkomin vegna endurhverfra viðskipta Landsbankans í Lúxemborg við Evrópska seðlabankann um mitt síðasta ár. Veð á bak við skuldina eru íslensk íbúðabréf og flokkast því til krónueigna erlendra aðila hér. Ekki liggur fyrir upphæð vaxtagreiðslna vegna skuldarinnar við Evrópska seðlabankann. En vaxtagreiðslur vegna krónueigna erlendra aðila hér eru meðal helstu ástæðna fyrir veikingu krónunnar upp á síðkastið. Þetta er ekki eina skuld Landsbankans við Evrópska seðlabankann. Hin skuldin hljóðar upp á 830 milljónir evra, jafnvirði 140 milljarða króna. Skuldin, sem nefnist Betula, er frá byrjun síðasta árs. Hún er sömuleiðis tilkomin vegna endurhverfra viðskipta Landsbankans við þann evrópska þegar harðna fór á dalnum á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum. Veð á bak við skuldina eru safn úrvalseigna Landsbankans í Bretlandi og hlutabréf í evrópskum fjármálafyrirtækjum. Lánapakkinn fékk hæstu einkunn hjá alþjóðlega matsfyrirtækinu Fitch Ratings á sínum tíma en var færður niður um tólf flokka eftir að skilanefnd Landsbankans tók lyklavöldin í bankanum í október í fyrra. Viðmælendur Fréttablaðsins segja erfitt að geta sér til um hvað sé orðið eign Evrópska seðlabankans í Lúxemborg og hvað tilheyri enn eignasafni Landsbankans vegna óvissunnar um afdrif veðanna. Glitnir í Lúxemborg skuldaði Evrópska seðlabankanum á annan milljarð evra vegna endurhverfra viðskipta eftir bankahrunið í haust. Samningar náðust um greiðslu skuldarinnar í mars og fengu lánardrottnar Glitnis sitt að fullu, að sögn Árna Tómassonar. Samningarnir munu hafa tekist vel og munu aðrar skilanefndir stefna á að ná svipuðum samningum við Evrópska seðlabankann, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira