Viðskipti innlent

Egilsson í greiðslustöðvun

Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Egilsson.
Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Egilsson.

Stjórn Egilsson hf., sem rekur meðal annars Office 1 búðirnar, hefur ákveðið að óska eftir greiðslustöðvun meðan unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að greiðslustöðvunin sé framkvæmd í samráði við stærsta kröfuhafa Egilsson hf., Nýja Landsbanka Íslands. Liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins er að fá ráðgjafa til að leggja heildstætt mat á virði félagsins, útfæra leiðir til að tryggja framtíðar rekstur félagsins og tryggja jafna hagsmuni allra lánardrottna.

„Ætlunin er að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagins fyrir lok ágúst, en það er full ætlun eigenda og kröfuhafa að tryggja framtíð rekstrarins. Stjórn og stjórnendur Egilsson stefna að því að leggja fram endanlegar tillögur og samninga við lánardrottna á næstu vikum," segir í tilkynningunni. Þá segir að Egilsson hafi verið fjármagnað að mestu í erlendri mynt eins og flest íslensk fyrirtæki. „Eiginfjárstaða félagsins þróaðist yfir í neikvæða stöðu eftir hrun íslensku krónunnar um rúmlega 50% enda hefði þurft óeðlilega háa eiginfjárstöðu til að standa undir slíkum hamförum."

„Neikvæð þróun íslensku krónunnar, bankahrunið og gjaldþrot Pennans og A4 hefur kallað á viðbrögð af hálfu félagsins til að mæta breyttum aðstæðum. Eftir fall bankanna og tímabundna lokun gjaldeyrisborða dró verulega úr trausti og greiðslukjörum erlendra birgja, sem margir kröfðust uppgreiðslu útistandandi skulda og fyrirframgreiðslu vegna nýrra innkaupa. Eftir fall Pennans og A4 brugðust innlendir birgjar við með hertum útlánakröfum m.a. lækkuðum úttektarheimildum og styttri greiðslufresti," segir einnig í tilkynningunni og því bætt við að þessi þróun hafi valdið sjóðstreymisvanda á sama tíma og viðskiptabanki Egilsson hefur ekki getað veitt frekari fyrirgreiðslu m.a. vegna stöðunnar sem íslenskir bankar eru enn að glíma við.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×