Joly gagnrýnir SAS-flugfélagið 20. júní 2009 08:30 Eva Joly ráðgjafi og Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra á blaðamannafundi í marslok. Mynd/Daníel
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna efnahagshrunsins og fyrrverandi rannsóknardómari í Frakklandi, er meðal þeirra sem harðlega hafa gagnrýnt norræna flugfélagið SAS fyrir tengsl við fyrirtæki í skattaparadís. Í norskum fjölmiðlum hefur verið frá því greint að SAS hafi leigt sextán flugvélar af óþekktu fyrirtæki sem skráð er á Cayman-eyjum. Eva segir viðskiptin algjörlega óviðunandi í viðtali við E24.no. Undir þau sjónarmið hefur meðal annars tekið Erik Solheim, ráðherra umhverfismála í Noregi. SAS flugfélagið hefur hins vegar áréttað að félagið sé innan ramma laga sem gilda um viðskipti af þessu tagi. Joly segir að heyra eigi fortíðinni til að óþekktir eigendur fái staðið á bak við rekstur norskra félaga og fyrirtækja. Hún segir að tekjur og skattgreiðslur þessara félaga eigi að vera uppi á borðum.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira