Viðskipti innlent

Upp­bygging umdeilds hótels í upp­námi

Agnar Már Másson skrifar
Framkvæmdir hafa staðið lengi yfir og átti turninni fyrst að vera tilbúinn 2020 en þá skall á kórónuveirufaraldur.
Framkvæmdir hafa staðið lengi yfir og átti turninni fyrst að vera tilbúinn 2020 en þá skall á kórónuveirufaraldur. Vísir/Sigurjón

Uppbygging sautján hæða hótelturns Radisson Red við Skúlagötu er sögð í uppnámi eftir að verktakar voru óvænt sendir heim í gær og byggingarsvæðinu lokað. Banki er sagður hafa lokað fyrir greiðslur til framkvæmdafyrirtækisins.

Rúv greinir frá og hefur eftir heimildum að verktökum hafi í gær verið gert að yfirgefa byggingarsvæðið skömmu eftir að þeir mættu til vinnu. Forsvarsmaður Rauðsvíkur, sem sér um framkvæmdirnar, hefði tjáð starfsmönnum að framkvæmdir hefðu verið stöðvaðar. 

Þetta á, að sögn heimilda ríkismiðilsins, að hafa gerst eftir að verktakar hafi fengið þau svör í gær að viðskiptabanki Rauðsvíkur hefði lokað fyrir frekari fjárveitingar til verkefnisins. 

Arion banki er aðalkröfuhafi í málinu, að sögn Rúv. Talsmaður bankans sagðist ekki getað ekki tjá sig um málið þegar Vísir hafði samband enda mætti bankinn ekki tjá sig um einstaka viðskiptavini.

Turninn hefur verið umdeildur. Í sumar ræddi fréttastofa við doktor í umhverfissálfræði sem taldi hótelturninn falla illa inn í umhverfið og að hann væri enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík.

Turninn er nokkuð langt kominn á leið. Í upphafi átti hann að opna 2021 en kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn. 

Rúv greinir einnig frá því að skemmdir hafi fundist á byggingareiningum sem fluttar voru inn frá Póllandi. 

Ekki hefur náðst í fulltrúa Rauðsvíkur við gerð fréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×