Greiðslur berast til Edge innstæðueigenda í Þýskalandi 22. júní 2009 10:09
Skilanefnd Kaupþings hefur hafið endurgreiðslur til innstæðueigenda Bankans í Þýskalandi og þegar sent fyrirmæli um endurgreiðslu innstæðna til um 20.000 viðskiptavina. Í tilkynningu segir að endurgreiðslur innstæðna munu halda áfram á næstu dögum og er vonast til að þær berist til ríflega 34.000 viðskiptavina Edge á næstu vikum. Skilanefndin tilkynnti um miðjan apríl að nægt fjármagn væri fyrir hendi til að greiða út allar innstæður Edge í Þýskalandi. Um miðjan maí var ljóst að endurgreiðsluferlið gæti hafist en það fólst m.a. í því að öllum innstæðueigendum Bankans í Þýskalandi var sent bréf frá Íslandi og þeir gátu í framhaldinu staðfest reikningsupplýsingar til að taka við endurgreiðslunni. Alls sendi bankinn bréf til rúmlega 34 þúsund innstæðueigenda og hefur nú þegar fengið staðfestingu til baka frá stærstum hluta þeirra. Þegar hafa um 20 þúsund staðfestingar verið skráðar og greiðslufyrirmæli vegna þeirra verið send til Þýskalands. Af tæknilegum ástæðum er endurgreiðsluferlið tekið í skrefum sem þýðir að fyrstu innstæðueigendur munu fá endurgreitt á næstu dögum og aðrir í framhaldinu. Heildargreiðsla til innstæðueigenda Kaupþing Edge í Þýsklandi mun nema rúmlega 320 milljónum evra sem samsvarar um 58 milljörðum króna. „Við höfum unnið sleitulaust að málinu undanfarið hálft ár og erum ánægð með að fyrstu greiðslurnar séu farnar að berast til Þýskalands. „Það hefur margt tafið þetta ferli og það hefur verið flóknara en nokkurn óraði fyrir að klára þetta mál. Þegar endurgreiðslum til innstæðueigenda í Þýskalandi lýkur hafa allar forgangskröfur innstæðueigenda í útbúum Kaupþings verið greiddar án þess að króna falli á íslenska skattgreiðendur," segir Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings banka.
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Viðskipti innlent Breyttur opnunartími hjá Sorpu Neytendur Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Neytendur Fleiri fréttir Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Sjá meira