Bakkavör ræðir um framlengingu á skuldabréfum til 2012 18. júní 2009 08:04
Bakkavör á nú í viðræðum við hóp innlendra fagfjárfesta og banka sem eru með um 70% af skuldum móðurfélagsins en stærstur hluti þeirra eru eigendur að skuldabréfum sem félagið hefur gefið út og skráð eru í Kauphöllinni. Í tilkynningu segir að viðræðurnar gangi út á framlengingu á gjalddaga skuldabréfanna til 2012. Markmiðið er að allir hagsmunaaðilar njóti ávinnings væntanlegs rekstrarbata hjá Bakkavör í kjölfar viðamikilla hagræðingaraðgerða sem félagið hefur nýlokið og sem hafa gert félaginu kleift að snúa rekstrinum til betri vegar frá og með þessu ári. Viðræðurnar ganga meðal annars út á að eigendur skuldabréfanna njóti talsvert bættra kjara. Fyrirheit Bakkavarar gagnvart eigendum skuldabréfanna er að allir aðilar fái greitt að fullu. Ósk félagsins um framlengingu skuldabréfanna kemur í kjölfar samninga við lánveitendur rekstrarfélaga samstæðunnar nú í vor sem munu sjá félaginu fyrir nægjanlegri rekstrarfjármögnun til ársins 2012. Þeir samningar sýna jafnframt tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar. Horfur í rekstri Bakkavarar eru góðar þrátt fyrir ríkjandi efnahagsaðstæður. Eins og fram kom í síðasta árshlutauppgjöri félagsins er gert ráð fyrir 15% aukningu framlegðar nú í ár og að EBITDA verði u.þ.b. 125 milljónir punda. „Viðræður við fagfjárfesta ganga vel og stjórn félagsins er vongóð um að niðurstöður liggi fyrir fljótlega," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira