Fleiri fréttir

Sparisjóðirnir ná aftur fyrsta sætinu

Ánægja viðskiptavina íslenska bankakerfisins hefur aukist frá því í fyrra. Þetta sýna niðurstöður íslensku ánægjuvogarinnar á bankamarkaði sem birtar voru á mánudag. Þetta er í fyrsta sinn frá því mælingar á ánægjuvoginni hófust árið 1999 sem ánægjan eykst milli ára. Hún mælist nú 72,6 stig og er hærri en síðustu tvö ár.

Íslensk list aldrei meira metin

Velta á íslenskum uppboðum er þegar orðin töluvert meiri en allt árið í fyrra og nemur hún 146 milljónum. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að raun um að tvö uppboð eru eftir hjá íslenskum galleríum fyrir jól. Því mun enn bætast við veltu ársins.

Úrvalsvísitalan heldur áfram að falla

Hlutabréf í kauphöllinni héldu áfram að falla í verði í dag annan daginn í röð. Alls hefur úrvalsvísitalan fallið um 4,61 prósentustig frá því opnað var fyrir viðskipti í gær.

Ásdís Halla til liðs við Nova

Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi forstjóri BYKO, hefur tekið sæti í stjórn fjarskiptafyrirtækisins Nova sem er í eigu Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar.

Iceland Express fjölgar sumaráfangastöðum

Iceland Express hyggst fjölga sumaráfangastöðum sínum um tvo og fljúga til 15 áfangastaða í Evrópu næsta sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Glitnir fjármagnar virkjun í Nevada

NGP Blue Mountain, dótturfélag Nevada Geothermal Power Inc, hefur samið við Glitni um fjármögnun upp á 20 milljónir dollara eða 1,2 milljarða kr. vegna 35 MW jarðorkuvirkjunnar sem Blue Mountain ætlar að byggja í Nevada.

Alcoa og Eimskip semja um flutninga

Alcoa Fjarðaál og Eimskip hafa undirritað umfangsmikinn samning um að Eimskip sjái um flutning á rúmlega 220.000 tonnum, þar af innflutning á 180.000 tonnum og útflutning á 40.000 tonnum á ári, fyrir Alcoa Fjarðaál.

Spá 10% gengislækkun á næsta ári

Greining Glitnis gerir ráð fyrir að gengi krónunni lækki um 10% á miðju næsta ári. Gengið mun hinsvegar haldast sterkt á næstu mánuðum vegna stýrivaxtahækkunnar Seðlabankans.

Neikvæður markaður í morgun

Úrvalsvísitalan hefur lækkað lítilega eða um 0,22% við opnun kauphallarviðskiptana í morgun. Mesta lækkun er á FL Group eða rúmt prósent.

Decode tapar 1,4 milljarði króna

Decode tapaði 1,4 milljarði króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs samkvæmt uppgjöri fyrirtækisins. Tap fyrirtækisins á fyrstu níu mánuðum ársins nemur um 3,7 milljörðum króna.

Móðurfélag BM Vallá kaupir Smellinn hf.

Eignarhaldsfélag Víglundar Þorsteinssonar, sem einnig er móðurfélag BM Vallá, hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu Smellinn hf. á Akranesi. Kaupverð er ekki gefið upp.

Glitnir hækkar vexti

Glitnir banki hefur ákveðið að hækka óverðtryggða innláns- og útlánsvexti. Ákvörðun bankans kemur í kjölfar hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum um 0,45 prósent.

Rauður dagur í kauphöllinni

Úrvalsvísitalan féll um 2,56 prósent í dag. Mest lækkuðu hlutabréf í Kaupþingi eða um 3,64 prósent.

Veltan í Kauphöllinni orðin meiri en allt árið í fyrra

Heldarveltan fyrstu tíu mánuði ársins í Kauphöllinni er orðin 4.575 milljarðar króna og því nokkru meiri en allt árið í fyrra þegar hún var 4484 milljarðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Föroya banki með gott uppgjör

Uppgjör Föroya banki á 3ja ársfjórðungi er betra en búist hafði verið við. Hreinn hagnaður nam 22 milljónum dkr. eða sem svarar um 240 milljónum kr. Á fyrstu níu mánuðum ársins er hagnaðurinn 106 milljónir dkr. eða vel yfir milljarð kr. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn tæplega 80 milljónum dkr.

Eimskip opnar skrifstofu í Víetnam

Eimskip hefur opnað fyrstu skrifstofu sína í Víetnam sem er jafnframt sjötta skrifstofan sem Eimskip opnar í Asíu á síðustu misserum. Skrifstofan er staðsett í Ho Chi Minh, (áður Saigon), stærstu borg Víetnam, með yfir níu milljónir íbúa.

Markaðsfyrirtæki ársins valið

Markaðsfyrirtæki ársins verður valið á fimmtudag við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica hótel inu kl. 12.00. Það er ÍMARK sem veitir verðlaunin. Fyrirtækin þrjú sem keppa um heiðurinn að þessu sinni eru Glitnir, Iceland Express og Landsbankinn.

Orkuveitan styður fjárfestingar REI á Fillipseyjum

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að styðja áfram við þátttöku Reykjavik Energy Invest í einkavæðingu filippseyska orkufyrirtækisins PNOC-EDC, sem nú stendur yfir.

Fons með fjórðung í 365

„Ég er gapandi yfir félaginu. Það er á góðu verði og þetta voru frábær kaup,“ segir Pálmi Haraldsson, stjórnarmaður í 365 en eignarhaldsfélagið Fons, sem er í meirihlutaeigu hans, jók við hlut sinn í félaginu fyrir rúmar 600 milljónir króna og fer nú með 23,5 prósent í því.

Tap í takt við spár

Bókfært tap FL Group á þriðja ársfjórðungi nemur 27,1 milljarði króna, á pari við meðalspá greiningardeilda bankanna.

Vinnslustöðin hagnast um milljarð kr.

Hagnaður Vinnslustöðvarinnar á fyrstu níu mánuðum ársins nam 1.080 milljónir króna. Er það mikil breyting frá í fyrra þegar hagnaður fyrstu níu mánuði ársins nam 63 milljónum króna.

Leigir Fokker 50 vél til Skyways

Flugfélag Íslands og sænska flugfélagið Skyways skrifuðu í dag undir samning um leigu á einni Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands til Skyways.

Milestone kaupir 5% í Teymi

Milestone, fjárfestingarfélag í eigu Karls og Steingríms Wernerssonar, hefur keypt 5,02% hlut í Teymi á genginu 6,75. Samkvæmt tilkynningu frá kauphöllinni eykst hlutur Milestone úr tæpum 12% og í tæp 17% við kaupin.

Pálmi kaupir 7,5% í 365

Fons ehf. í eigu Pálma Haraldssonar, hefur fest kaup á 7,5% af hlutafé 365. Um er að ræða rúmlega 257 milljón hluti og kaupverðið var 2,35 kr. á hlut eða samtals í kringum 600 milljónir kr.

Samherji með yfirtökutilboði í Rem Offshore

Kaldbakur ehf., í eigu Samherja, og Barentz AS hafa sent norsku kauphöllinni tilkynningu um að þeir hafi sett fram bindandi tilboð um kaup á öllum hlutum í Rem Offshore ASA. Fyrr í dag tilkynnti Samherji um kaup á 6,24% hlut í Rem og saman eiga þessir aðilar nú 51.51% af hlutafé Rem.

FL Group selur 5% hlut í Teymi

FL Group hefur selt 5% hlut sinn í Teymi. Um var að ræða tæplega 180 milljón hluti og miðað við gengi Teymis í kauphöllinni er kaupverðið rúmlega einn miljarður kr.

Hefur mikla trú á undirliggjandi eignum í Commerzbank og AMR

Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir félagið hafa mikla trú á undirliggjandi eignum félagsins í stóru erlendu fyrirtækjunum Commerzbank og AMR. Hannes var gestur í hádegisviðtalinu á Stöð 2 þar sem hann ræddi meðal annars nýjar afkomutölur F L Group.

Elín ráðin framkvæmdastjóri hjá Símanum

Elín Þórunn Eiríksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans. Elín Þórunn tók við starfinu af Sævari Frey Þráinssyni 1. nóvember síðastliðinn.

FL Group vill kaupa Inspired Gaming Group

FL Group hefur gert óskuldbindandi tilboð til hluthafa Inspired Gaming Group (INGG) en fyrir á FL Group 18,9% í fyrirtækinu. INGG framleiðir leikja- og spilavélar þar á meðal itbox og er verðmæti fyrirtækisins í kringum 30 milljarðar kr.

Nærri 1,9 milljarða króna hagnaður hjá TM

Tryggingamiðstöðvarinnar tapaði 555 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi. Hins vegar var hagnaður af rekstri félagsins á fyrstu níu mánuðum og nam hann 1873 milljónum króna samanborið við 464 milljóna króna hagnað á sama tímabili á síðasta ári.

Samherji kaupir í Rem Offshore í Noregi

Dótturfélag Samherja, Kaldbakur hf, hefur keypt tæplega 2,5 milljón hluti í Rem Offshore í Noregi á genginu 53,50 eða fyrir um tæplega 120 milljónir kr. Eftir kaupin á Samherji 6,24% hlut í félaginu. Jafnframt hefur verið gert samkomulag við fimm aðra hluthafa sem eiga 50,51% um að koma fram sameiginlega á aðal- og hluthafafundum Rem.

Úrvalsvísitalan komin undir 8.000 stigin

Gengi skráðra fyrirtækja í Kauphöll Íslands hefur almennt lækkað eftir upphaf viðskipta í dag. Kaupþing og Landsbankinn reka lækkanalestina en gengi bréfa í bönkunum lækkaði um 1,84 prósent í fyrstu viðskiptum. Fast á hæla bankanna fylgja bankar og fjármálastofnanir að báðum færeysku bönkunum, Existu og SPRON undanskildum.

Seðlabankinn segir vinnumarkaði að halda sig á mottunni

Greiningardeild Kaupþings banka segir að Seðlabankinn hafi sent aðilum vinnumarkaðarins skýr skilaboð um að halda sig á mottunni í komandi kjarasamningum. Vitnar deildin í Peningamál bankans sem gefin voru út samhliða tilkyningunni um óvænta stýrivaxtahækkun bankans.

FL Group tapaði 27 milljörðum

FL Group tapaði 27,1 milljarði króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við 5,3 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Þetta er á pari við væntingar greinenda, sem reiknaðist til að tapið myndi hlaupa á 26 til 29 milljörðum króna. Í uppgjörinu segir að miklar sveiflur á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum hafi haft áhrif á afkomuna.

Krónan styrkist mikið á einum mánuði

Gengi krónunnar hefur hækkað töluvert gagnvart öðrum gjaldmiðlum undanfarinn mánuð. Gengi krónunnar gagnvart evru, Bandaríkjadal og sterlingspundi hefur til að mynda hækkað í kringum þrjár krónur.

Opinber útgjöld nálgast helming landsframleiðslu

Seðlabankinn gerir ráð fyrir því að á næsta ári nemi útgjöld hins opinbera 47 prósentum af landsframleiðslu. Í ár nemi útgjöldin 44,5 prósent landsframleiðslunnar. Þannig aukist opinber útgjöld um 5,5 prósent á þessu ári og um 3,5 prósent á því næsta.

Atvinnuleysi fjögur prósent eftir tvö ár

Seðlabankinn gerir ráð fyrir því að atvinnuleysi hér á landi verði um fjögur prósent ár árinum 2009-10. Stýrivextir bankans hafi sömuleiðis lækkað umtalsvert frá því sem nú er og einnig hafi töluvert dregið úr verðbólgu og hún verði komin nær 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði bankans.

Kaupþing hækkar vexti

Kaupþing banki hefur ákveðið að hækka vexti verðtryggðra inn- og útlána, þar á meðal vexti íbúðalána, um 0,45 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Hörð gagnrýni Samtaka iðnaðarins á Seðlabankann

Samtök iðnaðarins gagnrýna bankastjórn Seðlabanka Íslands harðlega fyrir verulega vaxtahækkun í dag. Að mati Samtakanna er hækkunin misráðin. Ákvörðun bankans mun til skamms tíma stuðla að óraunhæfri styrkingu á gengi krónunnar.

Úrvalsvísitalan við 8.000 stigin

Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Kauphöllinni í dag, gengi SPRON mest, eða um 3,82 prósent. Þá lækkaði gengi allra fjármálastofnana sömuleiðis. Markaðsverðmæti einungis þriggja fyrirtækja hækkaði. Það eru Össur, Teymi og færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum en gengi félagsins hefur verið á hraðferð upp og stendur nú í hæstu hæðum.

Sjá næstu 50 fréttir