Seðlabankinn segir vinnumarkaði að halda sig á mottunni 2. nóvember 2007 09:48
Greiningardeild Kaupþings banka segir að Seðlabankinn hafi sent aðilum vinnumarkaðarins skýr skilaboð um að halda sig á mottunni í komandi kjarasamningum. Vitnar deildin í Peningamál bankans sem gefin voru út samhliða tilkyningunni um óvænta stýrivaxtahækkun bankans. „Í Peningamálum kemur skýrt fram að nýir kjarasamningar valda Seðlabankanum nokkrum áhyggjum enda hefur launaskrið verið töluvert að undanförnu. Af þeim sökum birtir Seðlabankinn fráviksspá í Peningamálum þar sem annars vegar er gert ráð fyrir talsverðri gengislækkun krónunnar og hins vegar áframhaldandi launaskriði á vinnumarkaði," segir m.a. í umfjöllun greiningar Kaupþings um málið. „Að mati Greiningardeildar eru skilaboðin skýr: Ef næstu kjarasamningar munu hækka kauplag umfram það sem getur samræmst verðbólgumarkmiðinu, mun Seðlabankinn bregðast við með frekari vaxtahækkunum. Að öðrum kosti er ekki gert ráð fyrir frekari vaxtahækkunum nema gengi krónunnar gefi eftir."
Mest lesið Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Mörg þúsund nýta enn 2G og 3G sem heyra sögunni til um áramótin Neytendur Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Viðskipti innlent Þessi í vinnunni sem þykist vita allt og hefur alltaf rétt fyrir sér Atvinnulíf Vísar ásökunum um samráð á bug Neytendur Olíufélögin hafi átt í samráði án þess að tala saman Neytendur Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum Samstarf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur