Fleiri fréttir

Efnahagsleg "rússíbanareið“

Sé horft yfir áratuginn frá 2001 til og með 2010 er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið mikil "rússíbanareið“. Þetta segir Björn Þór Sigbjörnsson, sem er höfundur bókarinnar Ísland í aldanna rás 2001 til 2010 ásamt Bergsteini Sigurðssyni, blaðamanni Fréttablaðsins. Björn Þór er gestur nýjasta þáttar Klinksins, spjallþáttar um efnahagsmál- og viðskipti hér á Vísi. Fjallað er ítarlega um gang mála í viðskiptum og efnahagsmálum.

Himinháar tekjur Hobbitans

Það stefnir allt í það að myndin Hobbitinn: Óvænt ferðalag setji nýtt tekjumet. Tekjur vegna myndarinnar á föstudaginn, fyrsta sýningardegi í Bandaríkjunum, námu 37,5 milljónum dala. Spár gera ráð fyrir því að tekjur yfir helgina verði að minnsta kosti 85 milljónir dala. Sumir telja að tekjurnar geti farið allt upp í 100 milljónir, eða um 12,7 milljarða íslenskra króna. Aldrei hafa tekjur af nokkurri mynd, sem sýnd er í desember, verið jafn háar. Utan Bandaríkjanna hafa tekjur myndarinnar numið um 27 milljónum bandaríkjadala, eða um 3,4 milljörðum króna.

Lán ÍLS hafa dregist saman um 8,5 milljarða á árinu

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu 1,4 milljörðum króna í nóvember en þar af voru 1,3 milljarðar króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í nóvember í fyrra einnig 1,3 milljörðum króna.

Jólamaturinn hækkar um allt að 70 prósent milli ára

Verð á jólamat hefur hækkað umtalsvert síðan í fyrra, að því er kemur í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í verslunum á dögunum. Þannig hefur verðlag hækkað um allt að 70%, en algengast er að sjá um 5-10% hækkun á vöruverði.

38 prósent aukning á sölu stafrænnar tónlistar

Mikil aukning hefur orðið á þessu ári í sölu stafrænnar tónlistar á netinu á Íslandi. Fjöldi seldra laga á Tónlist.is hefur aukist um 38% milli ára og þar er Ásgeir Trausti fremstur meðal jafningja.

Töluverður aflasamdráttur milli ára í nóvember

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 17,4% minni en í nóvember í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 12,1% miðað við sama tímabil í fyrra, sé hann metinn á föstu verði.

Laun hækkuðu um 0,5% milli ársfjórðunga

Regluleg laun voru að meðaltali 0,5% hærri á þriðja ársfjórðungi 2012 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,6% að meðaltali, hækkunin var 5,8% á almennum vinnumarkaði og 5,1% hjá opinberum starfsmönnum.

Lárus og Magnús Arnar ákærðir sem aðalmenn

Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fjórum mönnum í Aurum-málinu svokallaða, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding, Magnúsi Arnari Arngrímssyni og Bjarna Jóhannessyni. Þeir eru ákærðir fyrir umboðssvik í tengslum við sex milljarða lánveitingu Glitnis í maí 2008.

Jón Ásgeir um Aurum málið: Nýbúið að selja félagið á 36 milljarða

Jón Ásgeir Jóhannesson hefur ekki svararð ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Fréttablaðið fullyrðir í dag að hann og Lárus Welding hafi verið ákærðir í svokölluðu Aurum máli, en eftir því sem Vísir kemst sem ákærður hefur verið í svokölluðu Aurum máli, hefur ekki svarað ítrekaðri beiðni Vísis um viðtal. Vísir hefur aftur á móti undir höndum bréf sem hann sendi sérstökum saksóknara vegna rannsóknar málsins þann 10. desember

Erlendir fjárfestar eiga yfir þriðjung ríkisbréfa

Erlendir fjárfestar eiga nú um 35% af öllum ríkisverðbréfum á Íslandi. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að fjárhæð útistandandi verðbréfa, að verðbréfalánum meðtöldum, nam 617,8 milljörðum kr. í lok nóvember.

Ekkert lát á verðhækkunum á áli

Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á áli. Verðið er komið í 2.132 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London.

Launakostnaður dregst saman

Heildarlaunakostnaður á greidda stund dróst saman á þriðja ársfjórðungi frá fyrri ársfjórðungi um 1,1% í byggingarstarfsemi, 2,0% í iðnaði, 4,3% í samgöngum og um 4,6% í verslun.

Porsche slær eigið sölumet

Þýski lúxusbílaframleiðandinn Porsche hefur þegar slegið met sitt um fjölda seldra bíla á einu ári.

Sömdu um bankaeftirlitsstofnunina í nótt

Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna sömdu í nótt um að stofna eina bankaeftirlitsstofnun fyrir evruríkin 17 og á hún að taka til starfa í mars árið 2014.

Kortaveltan eykst enn milli ára

Heildarvelta debetkorta í nóvember s.l. var 32,4 milljarðar kr. sem er 2,6% aukning miðað við sama mánuð árið áður en 4,5% minnkun frá fyrri mánuði.

Sérstakur saksóknari tjáir sig ekki um rannsóknina á Aurum

Fram hefur komið í fréttum að grunur leikur á að Glitnir hafi veitt félaginu FS38 sex milljarða lán árið 2008 til kaupa á eignarhlut Fons í breska félaginu Aurum Holdings, sem er umsvifamikið fyrirtæki í rekstri skartgripaverslana. Bæði Fons og FS38 voru í eigu Pálma Haraldssonar. Grunsemdir eru um að kaupverðið hafi verið margfalt hærra en raunvirði hlutarins og að lánveitingin hafi meðal annars verið framkvæmd til að losa um tvo milljarða króna í reiðufé, annan fyrir Pálma og hinn fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson.Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, vill ekkert tjá sig um stöðu Aurum málsins. Fréttavefur DV fullyrti í kvöld að búið væri að gefa út ákæru í málinu. Ekki væri vitað hverjir eru ákærðir.

Google tekur saman árið

Tæknirisinn Google hefur birt árlega samantekt sína yfir helstu vangaveltur mannkyns. Alls voru 1.2 trilljón leitir framkvæmdar árið 2012.

Starbucks kannar Ísland

Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks gæti verið á leiðinni til landsins og hefur þegar stigið fyrstu skrefin til undirbúnings.

Hægt verði að standa við ákvæði kjarasamninga

Vilhjámur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins reiknar með að hægt verði að standa við ákvæði kjarasamninga um almennar launahækkanir hinn 1. febrúar næst komandi. Hann segir forsendur kjarasamninga hins vegar hafa veikst af ýmsum ástæðum. Í hádegisfréttum okkar sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri að ekki væru miklar forsendur til launahækkana á næsta ári umfram kjarasamninga.

Býst við milljarða tapi af Vaðlaheiðargöngum

Tap á framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng gætu numið um 4,3 milljörðum króna. Þetta sýna niðurstöður Vilhjálms Hilmarssonar hagfræðings sem vann meistaraverkefni í hagfræði við Háskóla Íslands þar sem hann kannaði málið. Vilhjálmur hlaut Verðlaun Skúla fógeta, sem verðbréfafyrirtækið Gamma, veitir fyrir verkefnið sitt. Það var Ásgeir Jónsson, doktor í hagfræði, sem veitti verðlaunin en hann var formaður dómnefndar.

Bakreikningur ógnar framtíð FIH bankans

Dómsmál sem er í uppsiglingu gegn Bankaumsýslu Danmerkur (Finansiel Stabilitet) gæti endað með stórum bakreikningi til FIH bankans. Þar með myndu minnka enn frekar möguleikar Seðlabanka Íslands á að fá helminginn af söluverðinu fyrir FIH bankann endurgreiddan.

Vaxtagjöld heimilanna hafa dregist saman

Vaxtagjöld íslenskra heimila drógust nokkuð saman árin 2010 og 2011 í kjölfar lægri vaxta og endurskipulagningar á efnahagsreikningum heimila. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn á Alþingi um vexti og framfærslukostnað.

Finnar kaupa Royal Copenhagen

Búið er að ganga frá sölunni á dönsku postulínsgerðinni Royal Copenhagen til finnska fyrirtækisins Fiskars.

Sá besti með tæplega 60 prósent ávöxtun

Sá sem bestum árangri hefur náð í Ávöxtunarleiknum hefur náð að ávaxta spilapeninga sína um 59,6 prósent, en sá sem er í öðru sæti hefur náð að ávaxta spilapeninga sína um 41,86 prósent.

Leigusamningum fjölgaði milli ára í nóvember

Þinglýstir leigusamningar um íbúðarhúsnæði á landinu öllu voru 690 talsins í nóvember s.l. og er það fjölgun um 1,9% frá sama mánuði í fyrra. Hinsvegar fækkaði samningunum um 21,6% miðað við október s.l.

Rúmur helmingur fullorðinna á snjallsíma

Könnun Rúmlega helmingur landsmanna yfir 18 ára aldri, um 54 prósent, á snjallsíma samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Það er veruleg aukning frá því árið 2010 þegar 43 prósent áttu slík tæki.

PWC krefst frávísunar

Endurskoðunarfyrirtækið PWC krefst þess að máli slitastjórnar Glitnis gegn fyrirtækinu verði vísað frá dómi, en fyrirtaka var í málinu Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Slitstjórn Glitnis krefst viðurkenningar á bótaskyldu PWC þar sem ársreikningar bankans hafi ekki gefið rétta mynd af stöðu hans.

Heppilegra ef stjórnarmaðurinn hefði vikið af fundi

Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna segir að heppilegra hefði verið að tiltekinn stjórnarmaður hefði vikið af fundi þegar málefni fyrirtækis sem hann var framkvæmdastjóri hjá var tekið til umfjöllunar hjá stjórn sjóðsins.

Rannsóknarnefnd um ÍLS skilar af sér í febrúar

Rannsóknarnefnd um starfsemi Íbúðalánasjóðs stefnir á að skila skýrslu sinni til Alþingis um miðjan febrúar. Forseti Alþingis fundaði með nefndinni í byrjun mánaðarins, en vinna nefndarinnar hefur reynst mun tímafrekari en gert var ráð fyrir þegar henni var komið á fót.

Sjá næstu 50 fréttir