Hægt verði að standa við ákvæði kjarasamninga 12. desember 2012 16:22 Vilhjálmur Egilsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Vilhjámur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins reiknar með að hægt verði að standa við ákvæði kjarasamninga um almennar launahækkanir hinn 1. febrúar næst komandi. Hann segir forsendur kjarasamninga hins vegar hafa veikst af ýmsum ástæðum. Í hádegisfréttum okkar sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri að ekki væru miklar forsendur til launahækkana á næsta ári umfram kjarasamninga. „Við höfum verið að vinna út frá því hér að samningarnir myndu halda og 3,25% hækkun myndi koma til framkvæmda 1. febrúar og breytingar á töxtum og launatöflum líka," segir Vilhjálmur í samtali við Bylgjuna. Samkvæmt forsendum kjarasamninga sem gerðir voru vorið 2011 á að endurskoða forsendur þeirra áður en til síðustu launahækkana samkvæmt honum koma til framkvæmda í febrúar. Vilhjálmur segir að þá hafi verið gert ráð fyrir því að fjárfestingar yrðu meiri og efnahagslífið almennt á betri leið. Vilhjálmur segir atvinnulífið hafa reiknað með lægri greiðslum í atvinnuleysistryggingarsjóð, vegna minna atvinnuleysis á næsta ári. „Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fara ekki eftir því sem kemur fram í hennar yfirlýsingu og var samið um á sínum tíma. Að því leytinu til má segja að forsendur kjarasamninganna hafi veikst," segir hann. Hann segir fyrirtækin standa misjafnlega að vígi hvað varðar launahækkanir, en útflutningsgreinar standi þar einna best.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent