Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nafnabreyting rædd hjá MP banka en engin ákvörðun tekin Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, segir nafn og merki bankans aukaatriði. Hann segir að nýtt nafn hafi verið rætt en enga ákvörðun hafa verið tekna í þeim efnum. "Það getur vel verið að nafn og ásýnd breytist, en það verður þá bara fylgifiskur þess hvert við erum að fara með bankann. “ 28.12.2011 21:00
Actavis þarf að greiða tíu milljarða í staðinn fyrir 20 Actavis hefur náð samkomulagi við Texas-ríki um að greiða 84 milljónir dollara í sekt, fyrir að hafa hækkað verð á samheitalyfjum til þess að fá meira úr opinberum tryggingum, sem heita Medicaid þar í landi. 28.12.2011 18:53
Japan stendur frammi fyrir áskorunum Japan er skuldum vafið og með efnahag sem varð fyrir gífurlegu áfalli, þegar jarðskjálfti skók landið fyrr á árinu. Framleiðsla margra stórra fyrirtækja hrundi við skjálftann, m.a. hjá Toyota. Það er þó ekki öll nótt úti enn. 28.12.2011 09:00
Sérstakur ákærir fimm fyrir skattalagabrot Sérstakur saksóknari hefur ákært fimm einstaklinga fyrir að hafa vantalið vörsluskatta í atvinnustarfsemi. Ákærur voru gefnar út í vikunni fyrir jól. 28.12.2011 18:35
Hermann Guðmundsson: Það er kominn pínulítill taktur í samfélagið "2012 verður aðeins skárra ár en ég hélt sjálfur fyrir aðeins þremur til fjórum mánuðum síðan,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, í viðtali í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. 28.12.2011 17:50
Miður sín eftir jól án iPad Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Á hinum helga tíma er það jólaandinn, skreytingar, gjafirnar, fríið og samveran sem við þá nánustu sem skiptir mestu máli. En þó ekki fyrir alla. Vefurinn Gizmodo hefur tekið saman twitterummæli frá hinum vanþakklátu, sem bölva sínum nánustu í sand og ösku fyrir að hafa ekki valið réttu gjöfina handa sér. Og rétta gjöfin var auðvitað iPhone. 28.12.2011 16:07
Makrílveiðar skiluðu 25 milljörðum Makrílveiðar Íslendinga skiluðu þjóðarbúinu meira en 25 milljörðum króna í ár og sköpuðu yfir 1000 ársverk á sjó og landi, eftir því sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið fullyrðir. Meirihluti makrílafla íslenskra skipa kom að landi á Austfjörðum eða um 55% af heildinni. 28.12.2011 16:22
Dalurinn hefur rokið upp um 10 krónur Bandaríkjadalur hefur hækkað um tíu krónur á tæplega tveggja mánaða tímabili, eða frá því í byrjun nóvember. Þetta þykir nokkuð skörp hækkun. Jón Bjarki Bentsson, hjá Greiningu Íslandsbanka, segir að skýringin liggi fyrst og fremst í tveimur þáttum. Annars vegar til þess að dalurinn hafi verið að styrkja sig töluvert alþjóðlega, einkum vegna óvissu í tengslum við skuldakreppuna í Evrópu. "Þá hefur krónan jafnframt verið að veikjast og er talið að þar sé um árstíðabundna lækkun að ræða,“ segir Jón Bjarki. 28.12.2011 14:13
Bók Yrsu seldist mest Brakið, bók Yrsu Sigurðardóttur, er mest selda bók ársins samkvæmt nýjum lista bókaverslananna sem nær til 24. desember síðastliðins. Á eftir henni kemur Einvígið, eftir Arnald Indriðason og þar á eftir Gamlinginn sem Jónas Jónasson skrifaði og Páll Valsson þýddi. Þetta er i fyrsta sinn í ár sem bók Yrsu fer upp fyrir bók Arnaldar á lista yfir mest seldu bækur ársins. 28.12.2011 13:15
Vaxtakostnaður Ítalíu hríðféll í morgun Ítalska ríkið endurfjármagnaði skammtíma skuldir í morgun upp á 9 milljarða evra, jafnvirði tæplega 1.500 milljarða króna, með vaxtaálagi upp á ríflega 3,2 prósent. Það eru um helmingi lægra álag en ríkinu bauðst í nóvember, að því er greint er frá í frétt breska ríkisútvarpsins. Þá neyddist ríkið til þess að endurfjármagna hluta skulda sinna á ríflega 6,5 prósent vaxtaálagi. 28.12.2011 11:46
Spjaldtölvan stóð undir væntingum "Ég get alveg fullyrt að spjaldtölvur voru mikið keyptar í jólagjafir, rétt eins og spáð hafði verið,“ segir Gunnar Jónsson, sölustjóri Tölvulistans. 28.12.2011 09:00
Fleiri Bretar atvinnulausir á næsta ári Atvinnuleysi í Bretlandi mun aukast á næsta ári og verða þá tæplega tvær milljónir og níuhundruð þúsund manna atvinnulausar, samkvæmt nýrri skýrslu sem óháð atvinnumálasamtök þar í landi birtu í gær. Þau búast svo við því að atvinnuleysi muni ná hámarki árið 2013. Samtökin gera ráð fyrir að opinberum störfum í landinu muni fækka um 120 þúsund á næsta ári. Fjöldi starfa í einkageiranum muni hins vegar standa í stað. Samtökin segja að aðgerðir stjórnvalda í landinu ættu að miða að því að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi og atvinnuleysi á meðal ungs fólks. 28.12.2011 07:13
Tómas Már verður forstjóri Alcoa í Evrópu Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, mun taka við sem forstjóri Alcoa í Evrópu með aðsetur í Genf þann 1. janúar næstkomandi. Tómas mun jafnframt hafa með höndum yfirstjórn álframleiðslusviðs Alcoa í álfunni. Starfsfólki Fjarðaáls var tilkynnt um breytinguna í dag. 27.12.2011 15:31
Yfir 1500 þúsund lítrar seldust Alls seldust 1509 þúsund lítar af áfengi í Vínbúðunum í ár fyrstu 24 dagana i desember, en um 1525 þúsund lítrar seldust sömu daga í fyrra. Sala áfengis dróst því saman um 1% í lítrum talið á milli ára á þessu tímabili. Alls komu 327 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar en sömu daga í fyrir ári voru þeir 332 þúsund. 27.12.2011 14:48
Ekki tilkynnt um löggjafabreytingar Ísland hefur komið verr út í alþjóðlegum samanburði en ástæða var til vegna þess að OECD var ekki upplýst um raunverulega stöðu löggjafar hér á landi. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir sérkennilegt að ekki hafi verið hirt um að tilkynna um löggjafabreytingar. Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti Árni Páll að uppfærðar upplýsingar um stöðu löggjafar um erlenda fjárfestingu hér á landi hefði verið send til OECD. 27.12.2011 13:39
2500 kall meira í skatt Meðallaunamaður greiðir 2500 kalli meira í skatta á mánuði á næsta ári, en lægra hlutfall tekna sinna. Skatthlutföll breytast nánast ekkert, en viðmiðunarmörk þrepaskattsins hækka og persónuafslátturinn líka. 27.12.2011 13:21
Einungis tvö félög hafa hækkað á árinu Aðeins tvö af þeim sex félögum sem skipuðu Úrvalsvísitöluna í Kauphöll Íslands á árinu sem er að líða hafa hækkað í verði. Hin fjögur félögin hafa lækkað, en mesta lækkunin hefur verið hjá Atlantic Petroleum og BankNordik. Mest hefur veltan verið með bréf Marel, samkvæmt úttekt greiningardeildar Arion banka á stöðunni. 27.12.2011 13:05
Landsvirkjun semur um 24 milljarða króna lán Landsvirkjun hefur skrifað undir sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði. Þetta er fyrsti samningur af þessu tagi sem íslenskt opinbert fyrirtæki gerir síðan í október 2008. 27.12.2011 10:15
Hagkerfi Brasilíu stærra en það breska Brasilía er orðið sjötta stærsta hagkerfi veraldar. Áður var Bretland í sjötta sætinu, því hefur brasilíska hagkerfið siglt fram úr því breska. Þetta er niðurstaða breska rannsóknarsetursins Centre for Economics and Business Research (CEBR). 26.12.2011 17:04
Síðasta vika skilanefndanna að hefjast Skilanefndir bankanna hefja á morgun síðustu starfsviku sína. Viðskiptaráðherra vildi hraða endurskipulagningu skulda fyrirtækja með því að leggja þær niður um áramótin, en skilanefndarmenn segja að starfsemin breytist ekkert eftir sem áður. 26.12.2011 13:00
Breskir fjárfestar vilja svör um ofurlaunastefnu Samtök breskra fjárfesta ætla að funda með stjórnendum stærstu bankanna þar í landi eftir áramót og ræða við þá um launastefnu bankanna og ofurbónusa sem starfsmenn í bönkunum fá greidda. Samtökin vilja að hömlur verði settar á ofurlaun og bónusa sem þykja vera komnir út úr öllu valdi. 26.12.2011 13:06
Japanar vilja kínversk ríkisskuldabréf Japönsk stjórnvöld ætla að reyna að kaupa kínversk ríkisskuldabréf, samkvæmt tilkynningu frá japönsku ríkisstjórninni. Yoshihiko Noda, forsætisráðherra Japans og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, áttu í viðræðum um þetta í Peking í morgun. Í yfirlýsingu japanskra stjórnvalda er þó ekkert kveðið á um það í hve miklu mæli skuldabréfin verða keypt né heldur á hvaða verði. 25.12.2011 16:45
Næsta ár verður erfiðara í bílabransanum Næsta ár verður erfiðara fyrir bílaframleiðendur en árið sem er að líða undir lok, segir Rupert Stadler, forstjóri Audi, í samtali við Reuters fréttastofuna. 25.12.2011 14:48
Ranglátt að kreppuvaldarnir fái himinháa bónusa Erkibiskupinn af York gagnrýnir harðlega það bil sem er að myndast á milli tekjuhárra og tekjulágra í Bretlandi. Hann spyr hvort það sé rétt að bankamenn sem tóku þátt í að skapa efnahagskreppuna þar í landi eigi að fá himinháa launabónusa. 25.12.2011 13:09
FME gagnrýnir Kauphöllina Fjármálaeftirlitið (FME) hefur gert athugasemd þess efnis að Kauphöll Íslands hafi ekki tekið nógu snemma eftir viðskiptum tiltekinna fjármálafyrirtækja með eigin hlutabréf á árinu 2008. Ekki er tiltekið hvaða fjármálafyrirtæki er um að ræða. Þetta kemur fram í niðurstöðu athugunar FME á rafrænu eftirliti Kauphallarinnar sem birt var á vef eftirlitsins í fyrradag. 24.12.2011 11:00
Sóun á tíma og peningum Framkvæmdastjóri LÍÚ segir það óforsvaranlegt að ríkisstjórnin bjóði stórum atvinnurekendum þessa lands upp á frumvörp sem skaði sjávarútveginn sem atvinnugrein en meini svo ekkert með því. Með því sé bæði tíma og peningum sóað. 23.12.2011 20:00
Efnahagsráðuneyti tekur upp tillögur Vickers fyrir Ísland Aldrei aftur verður tekin áhætta í bönkunum með sparifé almennings ef áform efnahags- og viðskiptaráðuneytisins ganga eftir. Í upphafi nýs árs verður kynnt áætlun um breytingar á fjármálafyrirtækjum en stefnt er því að smíða sérstakar girðingar utan um innlán til að tryggja hag sparifjáreigenda, að breskri fyrirmynd. 23.12.2011 18:52
Fyrirtæki Framtakssjóðs á markað strax næsta haust "Það er engin spurning," segir Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verslunarmanna, um hvort fyrirtæki í eigu Framtakssjóðs verði sett á markað á næstunni. 23.12.2011 17:20
Mótmæltu kaupaukakerfi og var ýtt til hliðar Stjórnarformaður eins stærsta lífeyrissjóðs landsins segir að sjóðirnir hafi mótmælt þegar kaupaukakerfi voru fyrst tekin upp á landinu, en ekki fengið rönd við reist. Lífeyrissjóðirnir hafi þótt of íhaldssamir eigendur og verið ýtt til hliðar. 23.12.2011 16:41
Apple þróar vetnisrafhlöðu fyrir fartölvur Svo virðist sem að tæknirisinn Apple sé nú að þróa vetnisrafhlöður fyrir fartölvur sínar. Fartölva sem knúinn er af slíkri rafhlöðu gæti starfað vikum saman án þess að þurfa á endurhleðslu. 23.12.2011 12:30
Bakslag í rannsókn á Tchenguiz-bræðrunum Ákveðið bakslag virðist hafa komið í rannsókn SFO, efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, á bræðrunum Roberts og Vincent Tchenguiz sem voru einir stærstu lántakendur Kaupþings fyrir hrun. Handtökutilskipun sem gefin var út á hendur Vincent Tchenguiz virðist hafa byggst á röngum forsendum og þar með verið ólögmæt. 23.12.2011 12:17
Segir alla græða á sölu Landsvirkjunar Lífeyrissjóðirnir lýstu yfir áhuga á Landsvirkjun á fundi með fjármálaráðherra í nóvember. Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir fjárfestingu í Landsvirkjun afar góðan fjárfestingarkost. Nú sé boltinn hjá ríkisstjórninni að taka pólitíska ákvörðun um hlutafjáraukning í fyrirtækinu. Allir landsmenn græði á því. 23.12.2011 12:06
Moody's staðfestir lánshæfiseinkunn Íslands Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's tilkynnti í morgun að lánshæfi Íslands haldist óbreytt. Lánshæfiseinkunn ríkisins verður því áfram Baa3 með neikvæðum horfum. Sú einkunn var staðfest í apríl 2011 þrátt fyrir að Íslendingar hefðu þá hafnað Icesave samkomulaginu í þjóðaratkvæðagreiðslu. 23.12.2011 08:43
Íslandsbanki og Eykt eignast Höfðatorg Íslandsbanki og byggingarfélaigð Eykt hafa samþykkt nauðasamning fyrir fasteignafélagið Höfðatorg ehf. Samningurinn felur í sér að Íslandsbanki og Eykt eignast allt hlutafé í Höfðatorgi. Aðrir kröfuhafar en Íslandsbanki og Eykt voru smærri og áttu ekki aðild að nauðsamningnum. Íslandsbanki var aðal lánveitandi Höfðatorgs og hefur nú eignast 72,5% hlutfjár. Eykt, sem átti kröfu á hendur Höfðatorgi vegna áfallins byggingarkostnaðar við verkefnið, eignast 27,5% hlutafjár. Stjórn félagsins skipa nú tveir fulltrúar Íslandsbanka og einn fulltrúi Eyktar. Fulltrúar Íslandsbanka eru óháðir bankanum eins og vinnureglur bankans mæla fyrir um. Eykt mun áfram hafa umsjón með rekstri félagsins og annast útleigu fasteigna þess. Höfðatorg er fasteignafélag sem hefur til leigu um 47 þúsund fermetra af skrifstofuhúsnæði á Höfðatorgsreit og í nálægum byggingum við Skúlatún og Borgartún í Reykjavík. Þar af eru útleigðir 40 þúsund fermetrar. Félagið stóð í miklum framkvæmdum á þeim tíma þegar fjármálakerfið hrundi og hækkuðu erlend lán þess þá mikið. Í kjölfarið ákváðu samningsaðilar að ljúka við byggingu turnsins á Höfðatorgi og var það gert í sameiningu. Aðrir kröfuhafar Höfðatorgs en Íslandsbanki og Eykt sem nú eiga félagið munu fá kröfur sínar greiddar. Íslandsbanki stefnir að því að selja sinn hlut í félaginu. 22.12.2011 16:31
Hjartavernd tapaði rúmum 80 milljónum á viðskiptum við Landsvaka Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að Landsvaka, dótturfélag gamla Landsbankans, er ekki skylt að greiða Hjartavernd tæpar 83 milljónir króna sem töpuðust þegar lokað var fyrir viðskipti með fjárfestingasjóði Landsvaka, sem nefndur var Peningabréf, þann 6. október 2008, daginn sem neyðarlögin voru sett. Hjartavernd óskaði eftir innlausn á hlutdeildarskírteinum sínum í fjárfestingarsjóðnum með tölvupósti rétt fyrir tíu þann dag, en pöntunin er skráð hjá Landsvaka klukkan tíu mínútur í fjögur. 22.12.2011 15:27
Icelandair og Frontier Airlines í samstarf Icelandair og bandaríska flugfélagið Frontier Airlines kynntu í dag nýtt samstarf flugfélaganna sem meðal annars felur í sér sölu og farseðlaútgáfu á flugleiðum hvors annars samkvæmt tilkynningu frá Icelandair. 22.12.2011 14:33
N1 vill stækka á matvörumarkaði N1 ætlar í framtíðinni að hasla sér frekari völl á markaði með matvöru og jafnframt annarri smásölu sem tengist ekki eldsneyti. Þetta sagði Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, í viðtali við Þorbjörn Þórðarson í Klinkinu hér á Vísi. 22.12.2011 11:14
Intel þróar snjallsíma Bandaríska tæknifyrirtækið Intel hefur opinberað frumgerð snjallsíma sem knúinn er af nýjasta örgjörva fyrirtækisins. Intel var frumkvöðull á sviði einkatölvunnar en hefur á síðustu árum verið fjarverandi í þróun snjallsíma. 22.12.2011 09:49
Lækkanir þrátt fyrir risa innspýtingu Lækkanir urðu á Asíumörkuðum í nótt og evran lét undan í morgun sem talið er merki um efasemdir fjárfesta um að 500 milljarða evra innspýting Seðlabanka Evrópu inn í hagkerfi álfunnar í gær hafi tilætluð áhrif. 22.12.2011 09:19
Lögfræðingur kanni lögmæti Perlusölu Á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur í gær var samþykkt að fela lögfræðingi að kanna lögmæti þess að veita upplýsingar um tilboðsgjafa í Perluna og fjárhæðir tilboðanna. Þetta var samþykkt í framhaldi af tillögu Kjartans Magnússonar fulltrúa minnihlutans í borgarstjórn, sem gagnrýndi farmvindu málsins harðlega. 22.12.2011 09:18
Skapar það vandamál þegar stórir bankar selja bensín? Innan skamms verður Framtakssjóður Íslands mögulega orðinn stærsti hluthafinn í bensín- og smásölurisanum N1 því sjóðurinn hefur gert tilboð í hlut Arion banka. Forstjórinn segir þetta jákvætt, því eignarhald banka í samkeppnisrekstri hefði auðvitað ekki gengið til lengdar. 22.12.2011 09:00
N1 tilbúið í Kauphöllina og skráning á næsta ári Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir fyrirtækið að verða tilbúið í skráningu í Kauphöllina. Hann segir stefnt að því að skrá félagið á næsta ári, en því gæti þó mögulega seinkað fram á vorið 2013. 21.12.2011 21:00
Auglýsingar munu birtast í fréttaveitu Facebook Notendur samskiptasíðunnar Facebook munu brátt sjá auglýsingar í fréttaveitu síðunnar. Talsmaður Facebook segir að auglýsingarnar munu birtast í janúar á næsta ári. 21.12.2011 21:00
"Skipulagt, ólögmætt, markvisst og refsivert" Einn af yfirmönnum Kaupþings bar fyrir dómi að krafa bankans á hendur sér vegna hlutabréfakaupa væri ekki gild vegna þess að Kaupþing hefði stundað markaðsmisnotkun með því að hafa með "skipulögðum, markvissum, ólögmætum og refsiverðum hætti" haldið uppi verði hlutabréfa í bankanum. 21.12.2011 19:35
Sala á hlut í Landsvirkjun gæti fært þjóðinni skattlaust ár Hægt væri að bjóða upp á skattlaust ár fyrir heimilin í landinu með með útgáfu nýs hlutafjár upp á 25 prósent í Landsvirkjun. Eða leiðréttingu á fjárlagahalla yfirstandandi árs, næsta árs og gott betur. 21.12.2011 18:52