Fleiri fréttir

Töluverðar hækkanir á skuldabréfamarkaði

Töluverðar hækkanir voru á skuldabréfamarkaði í dag. Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,5% í dag í 12,1 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,5% í 3,8 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 8,4 milljarða kr. viðskiptum.

Héraðsdómur staðfestir 315 milljóna sekt Haga

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að 315 milljón kr. stjórnvaldssekt á hendur Haga hafi verið hæfileg viðurlög. Er þetta hæsta sekt sem lögð hefur verið á hér landi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.

Dauft yfir fasteignamarkaðinum en kaupum fjölgar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 12. febrúar til og með 18. febrúar 2010 var 57. Þar af voru 48 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 1.390 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,4 milljónir króna.

Hörður Arnarsson kjörinn í stjórn Samorku

Á aðalfundi Samorku var Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kjörinn nýr inn í stjórn samtakanna. Hörður kemur inn í stjórnina í stað Friðriks Sophussonar, forvera síns hjá Landsvirkjun.

Rússneskir peningar að baki kaupanna á Saab

Nú er komið í ljós að það voru peningar frá Rússanum Vladimir Antonov sem voru að baki kaupunum á Saab í síðasta mánuði. Antonov er grunaður er um náin tengsl við rússnesku mafíuna og talið var að sænsk stjórnvöld ásamt bandarísku alríkislögreglunni FBI hefðu komið í veg fyrir aðkomu hans að kaupunum á Saab.

Upptaka evru kæmi illa við Íbúðalánasjóð

Samkvæmt áliti félags- og tryggingamálaráðuneytisins myndi upptaka evru sem gjaldmiðils koma illa við starfsemi Íbúðalánasjóðs. Hugsanlegt tap sjóðsins myndi nema um 5,5 milljörðum kr.

Icesave lánið olli hörðum deilum í breska stjórnarráðinu

Sú ákvörðun Alistair Darling fjármálaráðherra Bretlands að lána Íslendingum 3 milljarða punda í október 2008 vegna Icesave reikninganna olli hörðum deilum milli hans og æðsta embættismanni fjármálaráðuneytisins, ráðuneytisstjóranum Sir Nicholas Macpherson.

Deutsche Bank fjármagnar kaup Actavis á Ratiopharm

Það verður Deutsche Bank sem leggur Actavis til fjármagn til kaupanna á þýska samheitalyfjafyrirtækinu Actavis. Actavis hefur slitið samstarfi sínu við sænska fjárfestingarsjóðinn EQT að því er segir í frétt á Reuters um málið.

Sterkara gengi krónu gæti leitt til lægri stýrivaxta

Gengisvísitala krónunnar endaði í 231 stigi í gær og hefur krónan ekki verið sterkari gagnvart evru síðan seint í júlí í fyrra. Evran og erlendir gjaldmiðlar fasttengdir henni í Evrópu mynda í kringum helming gengisvísitölu krónunnar. Þar á meðal er danska krónan.

Fyrrum yfirmenn SPRON vinna í þrotabúi sjóðsins

Fyrrverandi stjórnarmaður SPRON, sem skuldar Kaupþingi á annað hundrað milljónir króna, og yfirmaður sem átti að hafa eftirlit með áhættu hins gjaldþrota sparisjóðs, vinna báðir í þrotabúi sjóðsins. Slitastjórnin segir þá ekki vanhæfa.

Gunnar Helgi nýr formaður bankaráðs Landsbankans

Bankasýsla ríkisins hefur skipað þau Gunnar Helga Hálfdanarson, Guðríði Ólafsdóttur, Hauk Halldórsson og Sigríði Hrólfsdóttur sem aðalmenn í bankaráð Landsbanka Íslands (NBI hf.). Gunnar Helgi verður stjórnarformaður bankans. Varamenn skipaðir af Bankasýslu ríkisins eru þau Andri Geir Arinbjarnarson, Guðrún Ragnarsdóttir, Loftur Árnason og Þórdís Ingadóttir. Tók nýtt bankaráð við á aðalfundi bankans fyrir árið 2008 sem haldinn var í dag.

Sjælsö Gruppen selur eignir í Svíþjóð fyrir 7,5 milljarða

Sjælsö Gruppen, stærsta fasteignafélag Danmerkur hefur selt þrjá af eignum sínum í Svíþjóð fyrir 420 milljónir danskra kr. eða um 7,5 milljarða kr. Fyrr í vikunni seldi Sjælsö tvær af eignum sínum í Danmörku fyrir 3,9 milljarða kr.

Tölvuverð viðskipti með óverðtryggð skuldabréf í dag

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 9,9 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,7 milljarða kr. viðskiptum en GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 8,3 milljarða kr. viðskiptum.

Ungir íslenskir námsmenn styrktir um 70 milljónir

Áfram verður styrkur til Íslendinga í fjárhagsáætlun norrænu samstarfsráðherranna fyrir næsta ár. Um er að ræða 3 milljónir danskra kr. eða rúmlega 70 milljónir kr. sem varið verður til styrkja unga íslenska námsmenn á Norðurlöndum.

FME skipar nefnd til að meta hæfi stjórnarmanna

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sett á stofn þriggja manna ráðgjafarnefnd um mat á hæfi stjórnarmanna. Nefndin er skipuðr sérfróðum mönnum en þeir eru Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur sem er formaður, Einar Guðbjartsson, dósent hjá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Rúnar Guðmundsson, sviðsstjóri hjá Fjármálaeftirlitinu.

Gylfi: Ríkið gæti mótmælt

Viðskiptaráðherra segir að ríkið gæti mótmælt of háum launum skilanefndarmanna sem einn af kröfuhöfum bankanna. Hann vill þó ekki fullyrða um að slíkt sé í burðarliðnum.

Gjaldeyristekjur af ferðamönnum áætlaðar 155 milljarðar

Talið er að gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum hafi numið 155 milljörðum króna í fyrra. Það er liðlega tuttugu prósenta aukning , að teknu tilliti til gegnisþróunar. Álíka margir koma til landsins um Reykjavíkurflugvöll og með Norrænu um Seyðisfjörð.

AGS setur hluta af gullbirgðum sínum á almennan markað

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur ákveðið að setja hluta af gullbirgðum sínum á almennan markað. Um er að ræða 191,3 tonn af gulli sem verða seld en ætlunin er að þetta magn fari í smáskömmtum á markaðinn til að trufla ekki verðmyndunina á gulli.

Securitas sett í söluferli

JP Lögmönnum hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að sölu á Securitas hf. Á heimsíðu lögmannsstofunnar segir að söluferlinu eigi að ljúka þann 20. mars n.k.

Eignarhlutur Straums í Royal Unibrew 2 milljarðar

Straumur hefur selt nokkuð af hlutum sínum í dönsku brugverksmiðjunum Royal Unibrew. Samkvæmt tilkynningu um málið heldur Straumur áfram 4,99% eða tæplega 560.000 hlutum. Markaðsverð á hlut er nú 153 danskar kr. þannig að verðmæti eignar Straums í Royal Unibrew nemur um 2 milljörðum kr.

Starfsmannalán Kaupþings færð á núlli yfir í Arion

Þegar Kaupþing féll námu lánveitingar bankans til 130 starfsmanna hans vegna hlutabréfakaupa 47,3 milljörðum króna. Þau lán voru færð yfir til Arion. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að þau hafi verið færð þangað á 0 krónur.

Launamunur karla og kvenna hefur minnkað nokkuð

Í nýju hagtíðindahefti kemur meðal annars fram að á árunum 2000-2007 eru konur með lægri laun en karlar en hlutfallslegur launamunur hefur lækkað á tímabilinu. Árið 2000 voru konur með 24,8% lægra reglulegt tímakaup en karlar en munurinn var kominn í 15,9% árið 2007.

Geir Haarde og krimmar sem strjúka hvítum köttum

„Síðasti stjórnmálamaðurinn sem notaði skuldatryggingaálag sem blóraböggul fyrir erfiðleika þjóðar sinnar var Geir Haarde þáverandi forsætisræaðherra Íslands sjö mánuðum áður en hagkerfi landsins hrundi. Hann óskar þess sennilega núna að hafa einbeitt sér meir að grundvallaratriðunum en leit sinni að krimmum sem strjúka hvítum köttum."

Seðlabankastjóri í formennsku fyrir eignaumsýslu bankans

Seðlabanki Íslands hefur komið á fót sérstöku eignaumsýslufélagi sem ber heitið Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. Már Guðmundsson seðlabankastjóri mun verða stjórnarformaður þess félags til að byrja með.

Atvinnulífið brást fyrir hrun

„Þegar atvinnurekendur fengu 2-300-föld árslaun þá var eitthvað að,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri olíufélagsins N1.

Starfsfólk skilanefnda fékk 4,3 milljarða í laun

Skilanefndir gömlu bankanna greiddu rúma 4,3 milljarða í laun og tengd gjöld á síðasta ári. Launakostnaður var mestur í gamla Landsbankanum, eða 3,4 milljarðar króna. Lægstur var hann í Glitni, eða þrjú hundruð milljónir króna. Hjá skilanefndum bankanna störfuðu um 260 manns í fyrra. Flestir unnu hjá gamla Landsbankanum eða 143. Um helmingur þeirra, eða sjötíu, var hér á landi en 65 í Bretlandi.

Misdýr uppgjör

Í samanburði við uppgjör á erlendum bönkum þykir rekstrarkostnaður íslensku skilanefndanna lágur sem hlutfall af eignum í stýringu. Þeir sem rætt hefur verið við vegna málsins telja að það skrifist á að hér hafi FME tilnefnt marga einstaklinga frá nokkrum lögfræðiskrifstofum og endurskoðendafyrirtækjum í skilanefndir og slitastjórnir, sem greiði þeim laun. Erlendis hafi ákveðin fyrirtæki verið fengin til að stýra uppgjörum fallinna banka.

Færri vilja borga

Einstaklingar sem ekki tóku þátt í uppsveiflunni heldur lifðu á meðallaunum og eiga íbúðir og bíla sem þarf að greiða af er ekki eins viljugt og áður að greiða reikningana sína. Þetta segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hún var á meðal þeirra sem sátu fyrir svörum í pallborði á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í gær.

Mikilvægt að standast ágang sérhagsmunahópa

Skattastefna stjórnvalda og útþensla hins opinbera var harðlega gagnrýnd á Viðskiptaþingi í gær. Forsætisráðherra segir ríkið verða að taka á sig stærri hlut til að koma efnahagslífinu á réttan kjöl.

Byr bútaður niður

Mikil uppstokkun stendur nú yfir á Byr sparisjóði, útibú verða sameinuð, deildir lagðar niður og starfsfólk flutt til. Að hagræðingaraðgerðum loknum mun ríkið væntanlega leggja honum til nýtt eigið fé upp á tæpa ellefu milljarða króna.

Hugleiða að byggja hér lyfjaverksmiðju

Bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Alvogen leitar að stað fyrir nýja verksmiðju sem fyrirhugað er að reisa. Að sögn Róberts Wessman, starfandi stjórnarformanns Alvogen, stendur valið helst á milli Austur-Evrópu og Íslands.

Bankaráð Landsbankans samþykkti tillögu um jafnan hlut kynja

Bankaráð Landsbankans samþykkti á fundi sínum í dag 17. febrúar 2010, tillögu þess efnis að fyrirtækið skuli tryggja fyrir árslok 2013 að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40 prósent í forystusveit bankans og dótturfélaga hans.

Fékk risalán til að kaupa Fons út úr Iceland

Landsbankinn lánaði félagi í eigu Stoða og annarra, rúmlega fimmtíu milljarða til að kaupa Fons, félag Pálma Haraldssonar, út úr Iceland verslanakeðjunni rétt fyrir hrun. Skuldin stendur nú í níutíu milljörðum og þarf skilanefnd bankans væntanlega að taka yfir hlutinn áður en árið er úti. Þessi eign er hluti þess sem á að ganga upp í Icesave.

Róbert Wessman opnar einkasjúkrahús

Félag í eigu Róbert Wessman opnar einkasjúkrahús á gamla hersjúkrahúsinu að Ásbrú á næsta ári, en endurbætur á húsinu hefjast í mars. Sjúklingarnir verða sóttir til útlanda í liðskipta- og offituaðgerðir. Allt að 300 störf munu skapast í Reykjanesbæ, segir bæjarstjóri.

Stjórnvöld hagræði meira í rekstri ríkissjóðs

Tómas Már Sigurðsson formaður Viðskiptaráðs segir að það sé ljóst að stjórnvöld ættu að leggja mun ríkari áherslu á hagræðingu í rekstri ríkissjóðs. Viðskiptaráð hafi ítrekað bent á hversu illa hefur tekist að hemja útþenslu hins opinbera á undanförnum árum.

Sjá næstu 50 fréttir