Fyrrum yfirmenn SPRON vinna í þrotabúi sjóðsins Sigríður Mogensen skrifar 18. febrúar 2010 18:25
Fyrrverandi stjórnarmaður SPRON, sem skuldar Kaupþingi á annað hundrað milljónir króna, og yfirmaður sem átti að hafa eftirlit með áhættu hins gjaldþrota sparisjóðs, vinna báðir í þrotabúi sjóðsins. Slitastjórnin segir þá ekki vanhæfa. Fréttastofa greindi frá málefnum slitastjórnar Spron síðustu helgi. Hefur nú fengist staðfest að tveir fyrrverandi yfirmenn hjá Spron starfi fyrir slitastjórnina. Annar þeirra, Ari Bergmann Einarsson, sat í stjórn Spron, var útibússtjóri og náinn samstarfsmaður Guðmundar Haukssonar, fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Ari var einnig stofnfjáreigandi í Spron, og fékk lán hjá Kaupþingi fyrir bréfunum, sem eru verðlaus í dag. Viðskiptin fóru fram í gegnum einkahlutafélag Ara. Í ársreikningi félagsins má sjá að skuld hans við Kaupþing stóð í 130 milljónum í lok 2008. Heimildir herma að skuldin sé enn ógreidd, og þarf að öllum líkindum að afskrifa hana. Arðgreiðslur til einkahlutafélags hans námu 140 milljónum frá 2006 til 2008. Ari starfar í þrotabúi Spron og situr þar lánanefndafundi, þar sem ákvarðanir eru teknar um afskriftir og innheimtu lána. Þá fundi sitja einnig starfsmenn Arion banka - þar sem Arion hefur sinnt ýmsum málum fyrir þrotabú Spron. Annar starfsmaður þrotabúsins sem einnig situr lánanefndarfundi er Páll Árnason, fyrrverandi regluvörður og yfirmaður áhættustýringar Spron. Sem slíkur átti hann að hafa eftirlit með áhættu í rekstri sparisjóðsins, sem nú er gjaldþrota. Hvorki náðist í Pál né Ara í dag, en þau svör fengust hjá slitastjórn Spron að þegar hæfi er metið sé litið til fyrri starfa, reynslu og persónulegra fjármála. Ari og Páll sinni þjónustustörfum og taki engar ákvarðanir vegna lánamála. Þær séu teknar af slitastjórn. Þar sem Ari sé ekki í persónulegri ábyrgð fyrir skuldum sínum hafi þær ekki áhrif á hæfi hans.
Mest lesið Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Fleiri fréttir Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Sjá meira