Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir 12 þúsund kröfur í þrotabú Landsbankans Bretar og Hollendingar fyrir hönd 350 þúsund innistæðueigenda gera rúmlega tólf hundruð milljarða króna kröfu í þrotabú Landsbankans. Sex hundruð starfsmenn gamla bankans gera launakröfur upp á hátt í fimm milljarða. 16.11.2009 18:30
Athugasemdir gerðar við lánveitingu TM til Samherja Gögn sem send voru Fjármálaeftirlitinu sýna að athugasemdir voru gerðar við lánveitingu Tryggingarmiðstöðvarinnar til Samherja vegna kaupa á eigin hlutum félagsins. Fjármálaeftirlitið kannast samt sem áður ekki við að hafa fengið erindi vegna þess. 16.11.2009 18:54
Kaupþing mun ræða við Guðmund Franklín um Haga Bankastjóri Nýja Kaupþings segir að bankinn muni ræða við Guðmund Franklín Jónsson vegna sölu Haga ef eftir því verður óskað þótt fyrsti kostur sé að núverandi eigendur komi inn með nýtt fé. Guðmundur á sjálfur litríkan feril að baki í viðskiptalífinu. 16.11.2009 18:41
HB Grandi hækkaði um 40% í dag HB Grandi hækkaði um 40% í Kauphöllinni í dag og Icelandair um 11,11%. Bakkavör Group lækkaði um 16,67%, Össur lækkaði um 0,74% og Marel um 0,73%. Krónan hækkaði um 0,16% 16.11.2009 17:10
Velta á skuldabréfamarkaði nam 4,93 milljörðum króna Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 4,93 milljarðar króna. Þar af var 3,96 milljarðar í óverðtryggðum ríkisbréfum en 0,97 milljarðar í verðtryggðum íbúðabréfum. 16.11.2009 16:58
HS Orka hagnast um 2,2 milljarða fyrstu 9 mánuði ársins Hagnaður HS Orku á fyrstu níu mánuðum ársins var rúmlega 2,2 milljarðar kr. Eiginfjárhlutfall er komið í 23,0% en var 16,3% í upphafi ársins. 16.11.2009 15:33
Markaðurinn verðmetur HB Granda á 32 milljarða Markaðurinn verðmetur sjávarútvegsfyrirtækið HB Granda á 32 milljarða kr. ef mið er tekið af viðskiptum með hlutina í kauphöllinni í dag. 16.11.2009 14:51
Hagsmunasamtök heimilanna boða nýtt greiðsluverkfall Hagsmunasamtök heimilanna boða til greiðsluverkfalls 15. nóvember til 10. desember og hvetja fólk til að greiða ekki af lánum á þeim tíma og jafnfram að taka peninga sína út úr bönkunum. 16.11.2009 14:08
Fjórða hvert fyrirtæki í Kaupmannahöfn á leið í gjaldþrot Fjórða hvert fyrirtæki í Kaupmannahöfn er á leiðinni í gjaldþrot. Hlutfallið er aðeins minna ef Stór-Kaupmannahafnarsvæðið er skoðað eða rúmlega 22%. Fjöldi þeirra fyrirtækja sem er á leiðinni í gjaldþrot í Danmörku hefur slegið nýtt með. 16.11.2009 13:29
Hertar reglur Seðlabankans gætu reynst skammgóður vermir Líklegt er að skýringar á styrkingu krónu frá opnun markaða síðastliðinn fimmtudag sé að verulegu leyti að finna í breyttum reglum Seðlabankans um gjaldeyrismál sem í rauninni fela í sér að gjaldeyrishöftin hafa verið hert. Þetta gæti þó reynst skammgóður vermir að áliti greiningar Íslandsbanka. 16.11.2009 12:24
Íslendingar nota nú kort meira erlendis en útlendir hérlendis Dregið hefur umtalsvert úr úttektum erlendra debet- og kreditkorta hérlendis síðan sú úttekt náði hámarki í tæplega 8,7 milljörðum kr. í toppi ferðamannastraumsins í ágúst síðastliðinn. Í október nam þessi úttekt 3,3 milljörðum kr. 16.11.2009 11:53
Madoff eyðir útivistinni í félagskap mafíuforingja Stórsvindlarinn Bernhard Madoff afplánar lífstíðardóm sinn í breiðum hópi glæpamanna en útivistinni innan múranna eyðir hann í félagsskap mafíuforingjans Carmine John Persisco Jr. sem er núverandi höfuð Colombio-fjölskyldunnar þrátt fyrir að sitja bakvið lás og slá. 16.11.2009 11:20
Gengi krónunnar styrkist Gengi krónunnar hefur styrkst í fyrstu viðskiptum dagsins í morgun eða um tæpt hálft prósent. Gengisvísitalan stendur í 235 stigum. Til samanburðar fór hún hæst í þessum mánuði í 240,5 stig þann 6. nóvember en það var jafnframt hæsta gildi ársins. 16.11.2009 10:41
Moody´s: Reiknar með frekari afskriftum hjá ÍLS Matsfyrirtækið Moody´s reiknar með frekari afskriftum hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) vegna niðursveiflunnar í efnahagslífi Íslands í yfirstandandi kreppu. Þetta kemur m.a. fram í áliti Moody´s sem fylgdi með lækkun þess á lánshæfiseinkunn ÍLS í Baa3 í síðustu viku. 16.11.2009 10:21
Fasteignaverð í Danmörku hækkar í fyrsta sinn í þrjú ár Eftir að hafa lækkað nær stanslaust í þrjú ár fer fasteignaverð í Danmörku loksins hækkandi á ný. Þetta sýna nýjar tölur frá hagstofu Danmerkur. 16.11.2009 09:19
Danske Bank upplifir írska martröð Danske Bank hefur neyðst til þess að afskrifa írskar bankaeignir sínar um nokkra milljarða danskra kr., eða um 100 milljarða kr., það sem af er árinu. Danske Bank festi kaup á tveimur írskum bönkum árið 2005 þegar „Keltneski tígurinn" tók stökkið. Fyrir bankana borgaði Danske Bank sem svarar til 10,4 milljarða danskra kr. 16.11.2009 08:52
Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka og slær nýtt verðmet nær daglega þessa stundina. Í morgun var verðið komið í tæpa 1.130 dollara á únsuna og hefur aldrei verið hærra í sögunni. 16.11.2009 08:24
Komnir með nægt fjármagn til þess að kaupa Haga Guðmundur Franklín Jónsson kaupsýslumaður segir hann og hóp fjárfesta nú þegar komna með nægt fé til að standa undir tilboði í hlutafé Kaupþings í Högum. Hann vill ekki upplýsa hverjir það eru sem standa að því með honum að reyna að eignast hlutinn. 15.11.2009 18:50
Magma tapar tæplega þremur milljónum dollara Félagið Magma Energy tapaði 2,7 milljónum dollara á fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma fyrir ári tapaði fyrirtækið rúmlega áttahundruð þúsund dollurum. Magma Energy á meðal annars hlut í HS orku á Suðurnesjum. 15.11.2009 15:36
Uppboð á eignum Maddof skilar milljón dollurum Uppboð á eignum óheiðarlega verðbréfamiðlarans Bernie Maddoff skilaði inn milljón dollurum eða 124 milljónum króna. Maddoff var, eins og kunnugt er, dæmdur í 150 ára fangelsi fyrir að svíkja út 21 milljarð dollara fyrr á árinu. 15.11.2009 13:20
Spá 9% samdrætti samanlagt árin 2009 og 2010 „Hagkerfið mun dragast verulega saman á árunum 2009-2010. Það bætir hinsvegar nokkuð úr skák að vöru- og þjónustuhalli hefur snúist í afgang sem mun taka mesta höggið af hagkerfinu hvað framleiðslu varðar. Greiningardeild spáir því „einungis" 9% samdrætti í landsframleiðslu samanlagt á árunum 2009-2010. Í framhaldi af því mun hinsvegar taka við fjárfestingadrifinn hagvöxtur á árunum 2011-2012." 15.11.2009 11:25
Neytendastofa bannar bensínauglýsingar Olíuverslun Íslands og N1 hafa undanfarið auglýst tilboð til viðskiptakorthafa sinna þar sem boðinn er fimm króna afsláttur af dæluverði eldsneytis til handa korthöfunum en auglýsingarnar hafa verið bannaðar af Neytendastofu. 15.11.2009 10:56
Íslendingar nota kreditkortin meira en fyrr í ár Heildarvelta kreditkorta í októbermánuði var 23,6 milljarða kr. samanborið við 24,4 miljarða kr. á sama tíma í fyrra og er þetta 3,0% samdráttur milli ára að því er segir í hagtölum Seðlabankans. Samkvæmt þessu dregur ört úr minnkun veltunnar frá því s.l. sumar. 14.11.2009 14:21
Ríkið jók eignir tryggingarfélaga um 13 milljarða milli mánaða Heildareignir tryggingarfélaganna námu 136,2 milljarðar kr. í lok september og hækkuðu um 13,3 milljarða kr. milli mánaða. Hækkun stafar af framlagi ríkisins til Sjóvár til að forða því félagi frá þroti. 14.11.2009 13:50
Orkuveitan segist geta staðið við skuldbindingar Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Hjörleifur Kvaran, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Morgunblaðsins þar sem fullyrt var að fyrirtækið gæti lent í greiðslufalli. Í tilkynningunni segir Hjörleifur þetta rangt. 14.11.2009 13:27
Keypti Baugssnekkju og hélt nafninu óbreyttu vegna hjátrúar Viðskiptajöfurinn Ron Leyland sem er búsettur í Flórída, í Bandaríkjunum, keypti snekkjuna “thee Viking” af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og hélt upprunalega nafninu vegna hjátrúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá auðjöfrinum. 14.11.2009 13:11
Evran betri en krónan fyrir atvinnulífið „Fjármálamarkaðir eru flóknir og stýrast af pólitískum og efnahagslegum þáttum. Með evrunni fækkar óvissuþáttunum og stöðugleiki eykst. Til lengri tíma litið er evran því góð fyrir vinnumarkaðinn,“ segir Vladimír 14.11.2009 05:00
Krafðir um samtals 3 milljarða króna vegna söluréttarsamninga Hreiðar Már, Sigurður Einarsson, Bjarni Ármannsson og Lárus Welding eru meðal tuttugu og átta stjórnenda Kaupþings og Glitnis sem skattayfirvöld krefja um þrjá milljarða króna í tengslum við endurálagningu Ríkisskattstjóra vegna söluréttarsamninga. 13.11.2009 18:30
Atlantic Petroleum hækkaði um 3,92% Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum hækkaði mest í Kauphöll Íslands í dag eða um 3,92%. Marel hækkaði um 2.38% og Icelandair hækkaði um 1,41%. Össur lækkaði mest eða um 0,37%. 13.11.2009 17:19
Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 11,13 milljörðum Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 11,13 milljörðum í dag. Þar af námu viðskipti með íbúðabréf 3,41 milljörðum og 7,72 milljörðum með ríkisbréf. 13.11.2009 17:04
FME ekki borist kvörtun frá stjórnarmönnum TM Fjármálaeftirlitið (FME) segir að því hafi ekki borist nein kvörtun frá stjórnarmönnum Tryggingarmiðstöðvarinnar (TM). 13.11.2009 15:20
Hagar: Hagsmunir allra best tryggðir með lausn sem unnið er að Í yfirlýsingu sem borist hefur fá Finni Árnasyni forstjóra Haga segir að hagsmunir félagsins, hagsmunir viðskiptavina, hagsmunir 2.500 starfsmanna og hagsmunir lánveitenda eru sameiginlegir og best tryggðir með þeirri lausn, sem nú er unnið að. 13.11.2009 14:38
Gengi krónunnar að styrkjast Gengi krónunnar hafði styrkst um 1,2% skömmu eftir hádegið í dag og fór gengisvísitalan niður í 236 stig. 13.11.2009 14:18
WTM: Aukin bjartsýni og meiri áhugi á ferðum til Íslands Viðmælendur fulltrúa Ferðamálastofu voru sammála um að það gætti heldur meiri bjartsýni um næsta ár samanborið við raunniðurstöðu þessa árs á hinni árlegu ferðasýningu World Travel Market (WTM)í London sem lauk í gær. Hún er ein stærsta ferðasýning í heimi. 13.11.2009 13:40
Royal Unibrew tekur upp slaginn gegn Carlsberg Royal Unibrew næststærstu bruggverksmiðjur Danmerkur ætla að taka upp slaginn við stórabróður á markaðinum Carlsberg. Þetta kemur fram í sjónvarpsviðtali á börsen.dk við Henrik Brandt forstjóra Royal Unibrew. 13.11.2009 13:30
Gjaldþrotakóngur Dana komst í þrot 97 sinnum á 3 árum Tíu mestu gjaldþrotakóngar/kennitöluflakkarar Danmerkur eru með dauða 271 fyrirtækja/félaga á samviskunni. Einn þeirra hefur 97 sinnum lýst yfir gjaldþroti á síðustu þremur árum. 13.11.2009 13:00
Vilja kaupa Haga Rúmlega eitthundrað og fimmtíu manns hafa skráð sig fyrir hlut í tilboði sem hópur fjárfesta hyggst gera í Haga. Hópurinn vill að fyrirtækið verði að almenningshlutafélagi og standi vörð um sanngjarna samkeppni í smávöruverslun. 13.11.2009 12:14
Vilhjálmur Þorsteinsson verður lykilhlutafi í Auði Capital Vilhjálmur Þorsteinsson hefur bæst í hóp lykilhluthafa Auðar Capital. Mun hann taka sæti í stjórn félagsins að því er segir í tilkynningu um málið. 13.11.2009 12:07
Lífleg fasteignasala í Kópavogi miðað við markaðinn Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 6. nóvember til og með 12. nóvember 2009 var 51. Athygli vekur að af þessum fjölda voru 20 samningar í Kópavogi og hafa 10 fasteignir verið seldar í Kópavogi að meðaltali á viku síðustu þrjá mánuði. 13.11.2009 11:56
Evrusvæðið réttir úr kútnum Vöxtur var á þriðja ársfjórðungi á evrusvæðinu samkvæmt nýjum hagtölum. Hagvöxtur hjá þeim 16 löndum sem nota evru sem gjaldmiðil mældist 0,4 prósent á tímabilinu júlí til september en samdráttur var á sama svæði á tímabilinu Apríl til júní. Hagkerfi Þýskalands og Frakklands hafa nú sýnt vöxt síðastliðna tvo fjórðunga sem þykir staðfesta að tvö stærstu hagkerfi evrusvæðisins séu laus við samdráttinn. 13.11.2009 11:16
Samdrátturinn heldur áfram í smávöruversluninni Velta í dagvöruverslun dróst saman um 3,9% á föstu verðlagi í október miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 9.7% á breytilegu verðlagi 13.11.2009 10:45
Kostnaður við að bjarga bönkum gerir Íra brjálaða í skapinu Hjúkrunarkonur, slökkviliðsmenn og þúsundir opinberra starfsmanna á Írlandi hóta nú verkfallsaðgerðum ef laun þeirra verða lækkuð til að mæta kostnaði hins opinbera við að bjarga bönkum landsins. Almenningur á Írlandi telur almennt að kostnaðurinn muni verulega íþyngja komandi kynslóð landsins. 13.11.2009 10:42
Fyrrum bankastjórar að kaupa gjaldþrota banka Nokkrir fyrrverandi bankastjórar hyggjast bjóða í gjaldþrota banka sem brátt fara á uppboð hjá innistæðustryggingarsjóði Bandaríkjanna (FIDC). Bankastjórarnir eru studdir af bönkum á borð við Goldman Sachs og Deutsche Bank. 13.11.2009 09:42
Afli íslenskra skipa minnkaði um 3,2% í október Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 3,2% minni en í október 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 5,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. 13.11.2009 09:14
Atlantic Airways tapar 110 milljónum á 3. ársfjórðung Færeyska flugfélagið Atlantic Airways tapaði 4,4 milljónum danskra kr. eða 110 milljónum kr., fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi. Hinsvegar er hagnaður upp á 7,8 milljónir danskra kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. 13.11.2009 09:09