Þetta kemur fram í nýjum tölum frá greiningarfyrirtækinu Experian sem byggir á upplýsingum frá 178.000 dönskum fyrirtækjum. „Síðasta greining okkar sýnir mynd af dönsku atvinnulífi sem er aðþrengt eftir langvarandi kreppu," segir Camilla Rose upplýsingafulltrúi Experian í samtali við Politiken.
Í heildina er meir en fimmta hvert fyrirtæki í Danmörku á leiðinni í gjaldþrot. Best er staðan í suðurhluta landsins, í héruðum vestan við Stórabeltisbrúnna og á Borgundarhólmi þar sem 19,1% fyrirtækja er ógnað af gjaldþrotum.
Fasteignasölur eru þau fyrirtæki í Danmörku sem harðast hafa orðið úti hvað gjaldþrotahættu varðar. Fjöldi þeirra í slíkri stöðu hefur aukist um 68% frá febrúar í fyrra og til nóvember í ár.
Í Kaupmannahöfn er ástandið verst eins og fyrr segir þar sem 25,4% fyrirtækja eru á leið í gjaldþrot. Ástandið er síðan lítt skárra í bæjarfélögum sem talin hafa verið með þeim efnaðri í Danmörku hingað til. Mörg þeirra bæjarfélaga ná inn á topp tíu listan hvað þetta varðar og má þar nefna Gentofte, Lyngby, Frederiksberg og Lejre.