Fleiri fréttir

Vilhjálmur: Við munum aldrei una skattahækkunum

„Samtök atvinnulífsins munu aldrei una skattahækkunum sem eru til þess fallnar að dýpka og lengja kreppuna og geta heldur ekki unað því að gengið sé þvert á það sem búið er að semja um. Verði það niðurstaða ríkisstjórnarinnar skilja leiðir,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í pistli sem birtist á heimasíðu samtakanna.

Grímur Sæmundsen varaformaður SA

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins (SA) nýverið var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., kjörinn varaformaður samtakanna.

Telja að skattahækkanir muni fækka ferðamönnum

Í fréttum að undanförnu hefur verið greint frá alls kyns hugmyndum og tillögum um miklar skattahækkanir á m.a. flestallar greinar ferðaþjónustu og ef hugmyndir þessar ná fram þá stefnir augljóslega í fækkun erlendra ferðamanna hingað til lands.

Áform sjávarútvegsráðherra eru nánast óframkvæmanleg

„Hafnarvog Vestmannaeyjahafnar hefur hvorki tæki né þau tól sem til þarf við að brúttóvigta öll ílát sem berast að landi í viku hverri ... Við núverandi aðstæður telja hafnaryfirvöld það nánast óframkvæmanlegt miðað við það magn af afla sem berst að landi á þeim skamma tíma sem um ræðir," segir í bréfi sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur sent til sjávarútvegsráðherra.

Straumur seldi rekstur Magasin en heldur fasteignunum

Solstra Holding seldi Debenhams aðeins reksturinn í Magasin du Nord en heldur áfram fasteignum verslunarinnar. Þar að auki fylgdi með í kaupum Debenhams 25 ára leigusamningur á fasteignunum sem hýsa Magasin du Nord.

Marel að selja Stork Food and Dairy Systems

Marel hefur undirritað viljayfirlýsingu við hollenska fjárfestingasjóðinn Nimbus varðandi sölu á Stork Food and Dairy Systems, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Stefnt er að því að ljúka viðskiptunum fyrir árslok.

Mikill áhugi í útboði ríkisvíxla í morgun

Alls bárust 68 gild tilboð í flokkinn RIKV 10 0315 að fjárhæð 64.7 milljarða kr. að nafnverði í útboði í morgun. Tilboðum var tekið fyrir 20 milljarða kr. að nafnverði á verðinu 97,425 (flatir vextir 8,00%).

Leigumarkaðurinn heldur áfram að vaxa

Alls voru þinglýstir 861 leigusamningar nú í októbermánuði sem eru 20% fleiri samningar en gerðir voru á sama mánuði í fyrra. Þessi aukning er í takt við þá þróun sem hefur verið á árinu og lýsir hún aukinni sókn í leiguhúsnæði.

Íslenskir fjárfestar í samstarf við rafbílaframleiðendann REVA

Íslenska fjárfestingarfélagið Northern Lights Energy og rafbílaframleiðandinn REVA undirrita samkomulag um sölu og markaðssetningu REVA á Íslandi. Fyrstu eitthundrað rafbílarnir verða afhendir á næsta ári og hagkvæmisathugun er í gangi um uppsetningu samsetningaverksmiðju rafbíla hér á landi.

Moody´s segir óvissu um getu stjórnvalda til að styðja OR

Lánsmatsfyrirtækið Moody´s segir í áliti sínu um nýtt lánshæfismat sitt á Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að lækkunin á matinu niður í rusl-flokk sé meðal annars vegna óvissu um hvort stjórnvöld geti staðið við bakið á fyrirtækinu.

Hollenska ING bankasamstæðan velur íslenskt hugvit

Hollenska ING banka- og tryggingasamstæðan hefur valið íslenska hugbúnaðarfélagið Applicon til þess að vinna að innleiðingu á SAP bankahugbúnaði fyrir útlán bankans. ING er í hópi 25 stærstu banka Evrópu þegar miðað er við markaðsvirði.

Forstjóri Magasin mjög ánægður með kaup Debenhams

Jón Björnsson forstjóri Magasin du Nord er mjög ánægður með kaup bresku verslunarkeðjunnar Debenhams á dönsku stórversluninni. „Það er óskastaða fyrir Magasin að vera nú komið í eigu verslunarmanna," segir Jón í samtali við börsen.dk.

Actacvis býður rúma 372 milljarða í Ratiopharm

Samkvæmt frétt á Reuters er Actavis í hópi tíu fyrirtækja/fjárfesta sem gert hafa tilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Tilboðin liggja á bilinu 2 til 2,5 milljarðar evra eða 372 til 465 milljarða kr.

Orkuveitan í ruslflokk

Lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið lækkuð hjá matsfyrirtækinu Moody's og er nú í svokölluðum ruslflokki. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Seðlabankastjóri: Bankakerfinu ekki hleypt í áhættusama starfsemi

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að núverandi bankakerfi landsins verði ekki leyft að fara í mjög áhættusama starfsemi út fyrir landamærin eins og gömlu bankarnir gerðu. „Við höfum enga burði til að verja slíkt og við eigum ekki að verja okkar fjármunum í það," segir Már.

Innistæðubréf Seðlabankans tvöfölduðust í útboði

Seðlabankinn tók tilboðum í innstæðubréf fyrir 30 milljarða kr. í gær sem er það hámark sem peningastefnunefnd ákvað á síðasta vaxtaákvörðunarfundi. Innstæðubréfaflokkurinn nærri tvöfaldaðist í útboðinu og er nú orðinn 64,8 milljarða kr. þar sem endurkaupadagur var á bréfum fyrir 10,6 milljarða kr. sem voru seld 14. október s.l.

Ræða tímabundinn skatt á lífeyrissjóði

Tímabundinn skattur á fjármagnstekjur lífeyrissjóða hefur verið ræddur í efnahags- og skattanefnd Alþingis. Lífeyrissjóðirnir hafa ekki verið skattlagðir með þeim hætti áður.

Segja allar upplýsingar um Sjóð 9 hafa verið aðgengilegar

Stjórnendur Íslandssjóða, sem áður kölluðu sig Glitnissjóði, fullyrða að fjárfestingar og eignasafn Sjóðs 9 hafi verið í samræmi við fjárfestingarheimildir eins og lög og reglur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða geri ráð fyrir. Þetta kemur fram í orðsendingu sem stjórnendur sjóðsins hafa sent Vísi vegna fréttar af fyrirhugaðri málshöfðun gegn Íslandssjóðum vegna taps sem sjóðsfélagar í Sjóði 9 urðu fyrir þegar sjóðunum var slitið.

Landsbankinn tapaði 19 milljörðum frá þjóðnýtingu til áramóta

Nýi Landsbankinn tapaði nítján milljörðum króna frá því bankinn var tekinn yfir af ríkinu eftir hrun á síðasta ári til áramóta. Á þessum rúmu tveimur mánuðum hagnaðist Nýja Kaupþing hins vegar um fimm milljarða. Þetta kemur fram í nýrri vinnuskýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu efnahagsmála á Íslandi sem birt var í síðustu viku.

Century Aluminum Company hækkaði um 4,47%

Hlutabréf í Century Aluminum Company, móðurfélagi Norðuráls, hækkuðu um 4,47% í Kauphöllinni í dag og hlutabréf í Marel hækkuðu um 0,46%. Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum lækkaði um 9,78% og Føroya Banki um 0,73%. Gengi krónunnar lækkaði um 0,05%

Stefna Glitnissjóðum vegna Sjóðs 9

Hópur hlutdeildarskírteinishafa í peningamarkaðssjóðnum Sjóður 9 sem starfræktur var á vegum Glitnis hyggst stefna sjóðnum. „Útgreiðsluhlutfallið úr Sjóði 9 var 85,12% miðað við síðasta skráða gengi sjóðsins þann 6. október í fyrra,“ segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá Ergó lögmönnum, sem undirbýr málsóknina.

Ný jarðvarmaveita á vegum Enex Kína og Sinopec

Shaanxi Green Energy, félag í eigu Enex Kína og kínverska fyrirtækisins Sinopec Star hefur skrifað undir samkomulag við yfirvöld Xiong sýslu í Kína um uppbyggingu jarðvarmaveitu.

Landsbankinn semur við tæknilega gjaldþrota Gift

Skilanefnd Landsbankans hefur höfðað skuldamál á hendur Gift fjárfestingafélaginu sem var í eigu Samvinnutrygginga. Fyrirtaka fór fram í málinu í morgun en þar var málinu frestað fram í desember. Þar kom einnig fram að Landsbankinn og Gift eiga í samningaviðræðum varðandi skuldina.

Kolaport fyrir milljarðamæringa á netinu

Milljarðamæringar hafa nú fengið sinn eigin útimarkað eða kolaport á netinu. Síðan heitir billionaireXchange.com og þar getur maður m.a. skipta á villunni sinni í Beverly Hills fyrir víngarð í Frakklandi.

Intermarket semur við Rothschild vegna kaupa á West Ham

Fjármálafyrirtækið Intermarket, sem staðsett er í London, segir að það hafi nægilegt fjármagn til þess að kaupa enska úrvalsdeildarliðið West Ham. David Byrne forstjóri Intermarket segir í samtali við blaðið Telegraph að fyrirtækið hafi gert samning við Rothschild bankann sem sýni getu þeirra til að kaupa liðið.

Nordea: Flensan gæti kostað Dani 225 milljarða

Helge J. Petersen aðalhagfræðingur Nordea bankans hefur reiknað það út að flensufaraldurinn sem herjar á Danmörku gæti kostað þjóðarbúið 9 milljarða danskra kr. eða um 225 milljarða kr.

AGS: Hættuleg niðursveifla íbúðaverðs var stöðvuð

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir í nýjustu skýrslu sinni um íslensk efnahagsmál að komið hafi verið í veg fyrir flóð framboðs íbúðarhúsnæðis hér á landi með frystingu í fjárnámi í íbúðarhúnæði, skuldbreytingu íbúðalána og aukinni notkun markaskiptasamninga. Segir sjóðurinn að með þessu hafi verið komið í veg fyrir hættulega niðursveiflu íbúðaverðs.

Skráð atvinnuleysi var 7,6% í október

Skráð atvinnuleysi í október 2009 var 7,6% eða að meðaltali 12.682 manns og eykst atvinnuleysi um 4,4% að meðaltali frá september eða um 537 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,9%, eða 3.106 manns.

Sparisjóðirnir lækka vexti um allt að 1%

Sparisjóðirnir á Íslandi hafa ákveðið að lækka vexti á inn- og útlánum frá og með deginum í dag. Lækkunin nemur allt að 1%, mismunandi eftir reikningum og lánum.

Moody´s: Matið á Íslandi hækkar ekki um fyrirsjáanlega framtíð

Í nýju áliti Moody´s sem fylgir með ákvörðun matsfyrirtækisins um að lækka lánshæfismatið á Íslandi um tvo flokka niður í Baa3 en með stöðugum horfum kemur fram að matið er háð töluverðri óvissu. Þar að auki valdi miklar skuldir hins opinbera því að takmarkað er hve matið getur hækkað um fyrirsjáanlega framtíð.

Moody´s lækkar lánshæfismat Íslands

Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfismat íslenska ríkisins um tvo flokka samkvæmt frétt Bloomberg. Lækkar einkunn ríkissjóðs úr Baa1 í Baa3. Horfur eru sagðar stöðugar.

Nýr viðskiptavefur opnaður

Þann 11. nóvember opnaði www.keldan.is, nýr upplýsinga- og viðskiptavefur fyrir íslenska fjármálamarkaðinn. Hlutverk Keldunnar er að veita yfirsýn á fjármálamarkaði, bjóða upp á skilvirka fjármálaþjónustu og vera til gagns og gamans.

Bókhaldshneyksli hjá Viðskiptaskóla Kaupmannahafnar

Stjórn Viðskiptaskóla Kaupmannahafnar, Copenhagen Business School, glímir nú við töluvert bókhaldshneyksli sem fyrrum rektor skólans lét eftirmanni sínum í té er hann lét af störfum í ágúst s.l.

Erlendar eignir Seðlabankans jukust og skuldir minnkuðu

Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 506 milljörðum kr. í lok október samanborið við 489 milljarða kr. í lok september 2009. Erlendar skuldir Seðlabanka Íslands voru 260 milljarða kr. í lok október en voru 274 milljarðar kr. í lok sept. 2009.

DeCode sækir sér lán á háum vöxtum

DeCode, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, frestaði í gær birtingu uppgjörs fyrirtækisins fyrir þriðja fjórðung. Þetta er í annað skiptið á árinu sem deCode frestar uppgjöri. Frestur er gefinn til mánaðamóta, líkt og fram kemur í tilkynningu til bandaríska fjármálaeftirlitsins í gær.

Hlutafé Nova aukið um þrjá milljarða

Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, helsta eiganda fjarskiptafyrirtækisins Nova, lagði Nova til tæpa 2,9 milljarða króna í aukið hlutafé á síðasta ári.

Sjá næstu 50 fréttir